Réttur - 01.04.1986, Side 25
Frá sjöunda þingi Landssambands iðnvcrkafólks. í ræðustól er Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ en hann flutti
ræðu um kjaramálin á þinginu.
inn að geta sótt fram á mörgum vígstöðv-
um, dregið úr tilkostnaði, treyst atvinnu-
öryggi og séð vaxandi mannafla fyrir lífs-
afkomu, jafnframt því sem laun hækki tií
jafns við það sem best gerist í nálægum
löndum. Til þess að svo megi verða þurfa
allir að taka höndum saman. Stjórnvöld
verða að búa iðnaði bestu aðstæður, iðn-
rekendur að nýta sér möguleika hvar sem
þeir gefast og starfsfólk að fá viðunandi
aðstöðu til starfs- og eftirmenntunar og til
áhrifa og íhlutunar í málefni eigin vinnu-
staðar.
Ályktun um verkmenntunarmál
Ljóst er að krafan um stóraukna iðn-
fræðslu og verkmenntakennslu fyrir starfs-
fólk í verksmiðjuiðnaði er eitt brýnasta
hagsmunamál iðnverkafólks í dag. Fram-
vindan í þessum málum á næstu misserum
og árum mun án efa hafa afgerandi þýð-
ingu í baráttu okkar fyrir því, að skapa al-
mennan skilning og viðurkenningu á
mikilvægi og þýðingu þeirra starfa sem
iðnverkafólk hefur með höndum. Um
leið hlýtur aukin verkmenntakennsla að
verða mikilvægt tæki í baráttu iðnverka-
fólks fyrir stórbættum kjörum þeirra sem
við iðnað starfa.
Við uppbyggingu verkmenntunar í
verksmiðjuiðnaði verður að leggja til
grundvallar, að hún verði bæði aðgengi-
leg og eftirsóknarverð fyrir iðnverkafólk.
Til að svo megi verða er ljóst að náms-
framboð, námstími og öll tilhögun náms-
ins verður öðru fremur að einkennast af
sveigjanleika. Þannig er ljóst að náms-
framboðið verður að taka tillit til þeirrar
þróunar sem orðið hefur í verksmiðjuiðn-
aði og þeirra starfa sem þar eru unnin í
dag. Pá er ekki síður mikilvægt, að skipu-
lag verkmenntunar verði með þeim hætti,
89