Réttur


Réttur - 01.04.1986, Síða 41

Réttur - 01.04.1986, Síða 41
að skipa stúlkunum burt af Elliheimilinu“, segir í fundargerð. Pegar formaður hafði skýrt frá þessu stóð upp Steinunn Þórarins- dóttir og „taldi að mál þetta hefði ekki end- að svona ef Sókn væri í Alþýðusamband- inu. Skýrði hún síðan nokkuð frá þeim skyldum og hlunnindum, sem fylgdu því að vera innan Alþýðusambandsins.“ Tóku margar konur til máls og studdu sjónarmið Steinunnar. Hún flutti síðan tillögu um inngöngu Sóknar í ASÍ og var hún samþykkt með 25 atkvæðum gegn einu. Deilurnar innan verkalýðshreyfingar- innar milli Alþýðuflokksins og kommún- ista komu á næstu árum öðru hvoru upp á félagsfundum. Þannig samþykkir félag- ið t.d. áskorun á fyrrnefnda flokka að sameinast og skömmu fyrir stríð hvetur félagið til þess að ASÍ sé gert að hreinu fagsambandi sem og var samþykkt á þingi ASÍ árið 1940 og kom til framkvæmda tveim árum síðar. Haustið 1935 sendir félagið í fyrsta sinn fulltrúa í fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík og vorið 1936 kýs félagið í fyrsta sinn fulltrúa í 1. maí-nefnd. Þess má geta um leið að Sókn átti aðild að ýmsum fleiri samtökum og nefndum. Þannig var yfirleitt kosinn á aðalfundi fulltrúi einn eða fleiri á þing Landssam- bands kvenna og í mæðrastyrksnefnd. „Eftirstöðvar frá þrælahaldi“ Eins og áður var getið, var það ætlun stofnenda félagsins að það næði einnig til vistráðinna stúlkna og ynni að því að bæta kjör þeirra, sem ekki var vanþörf á. En það reyndist erfitt að ná skipulags- tengslum við stúlkurnar í vistum. Þessi þáttur í sögu félagsins varpar hins vegar mjög skýru ljósi á, hve íslenskt þjóðfélag var að taka miklum stakkaskiptum. Af- skipti félagsins af málefnum vistráðinna stúlkna veitir okkur sem nú lifum innsýn í þjóðlífsmynd sem nú er horfin. Sú var tíð í upphafi 19. aldar að 25% þjóðarinnar var vistráðin vinnuhjú á býl- um bænda. Svo var alla síðustu öld, en þó höfðu Vesturheimsferðirnar og vax- andi þéttbýlismyndun á seinni hluta aldarinnar losað mjög um hið svokallaða vistaband, en samkvæmt því var vinnu- fólk með lagaboði skuldbundið til að vistráða sig frá 14. maí (vinnuhjúaskil- degi) til árs í senn. Undir lok 19. aldar slakar löggjafinn á þessum ákvæðum, enda var verkafólk farið að sniðganga ákvæðið um vistarband. Þegar kemur fram á 20. öld fer þeim fækkandi er starfa á einkaheimilum, enda hafði verksvið heimilanna minnkað, fjölskyldustærðin var minni en áður og heimilisiðnaður að leggjast af. En eitt hélst þó áfram fyrstu fjóra áratugi 20. aldarinnar, en það var að hafa vinnukonur. Á manntali 1920 eru yfir 5000 konur skráðar sem vistráðnar á einkaheimilum. Samhliða þessari þróun að umsvif heimilanna minnka, fjölgar þeim félagslegu stofnunum er taka til sín verkefni sem fjölskyldan sá um áður m.a. umönnun aldraðra, hjúkrun sjúkra, gæslu barna o.s.frv. Starfsstúlknafélagið Sókn er stofnað á þeim tímamótum er fjöldi stúlkna er vinna á slíkum stofnunum: þ.e. sjúkrahúsum, hælum, elliheimilum og barnaheimilum (síðar í auknum mæli) er orðinn það mikill að þörf er á stéttasam- tökum í starfsgreininni, en jafnframt fyrirfinnst þá (árið 1934) enn vistráðið fólk nær eingöngu stúlkur og þeim er að félagsstofnuninni standa finnst sjálfsagt að þær konur er sinna báðum þessum 105

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.