Réttur


Réttur - 01.04.1986, Síða 42

Réttur - 01.04.1986, Síða 42
þáttum séu í einu og sama félagi. Telja má líklegt að einmitt í hópi starfsstúlkna á sjúkrahúsum hafi verið margar sem áður höfðu starfað sem vistráðnar stúlkur og þekktu því gjörla kjör þeirra og ófrelsi. Strax á fyrstu fundunum koma kjör vistráðinna stúlkna til umræðu og þá eink- um hinn langi vinnutími þeirra. Þannig hvetur t.d. María Guðmundsdóttir til þess í janúar 1935 að félagið beiti sér fyrir því að stúlkur ráði sig þá um vorið (þ.e. 14. maí) með því skilyrði að ekki komi til þess að þær þurfi að vinna eftir kl. 8 á kvöldin. Á næsta fundi 28. mars tekur Vilborg Ólafsdóttir svo sterklega til orða að „þau kjör sem stúlkur ættu við að búa í mörgum vistum væru eftirstöðvar frá þrælahaldinu". Önnur nefndi mörg dæmi um „vangæfar húsmæður" og er tekið fram að hún hafi talað skýrt og skorinort. Aðalheiður benti á að ef vinnutími stúlknanna væri bundinn við kl. 8 þá „mundi það stuðla að reglubundnum mál- tíðum, því flestar húsmæður mundu hugsa um það að kvöldstörfum yrði lokið áður en stúlkan færi.“ P>ann 2. maí 1935 komast félagskonur að þeirri niðurstöðu að því miður væri félagið of fámennt til samtaka aðgerða í þessum efnum fyrir 14. maí það ár, en samþykkt var að halda út- breiðslufund 12. maí. Um haustið komu kjör vistráðinna stúlkna enn á dagskrá hjá félaginu og var þar upplýst að algengt væri að kaup í vist væri 35 krónur á mánuði. Töldu konur að lágmarkskaup í slíkri þrælkun væri 50 krónur en ein kona sagðist hafa reynt að ráða sig fyrir þá upphæð, en hvergi fengið vist. Ári síðar eru þessi mál enn á dagsskrá og þá sett nefnd í það að kanna hvort ekki væri hægt að ná samningum við einkaspítala og samningum um kjör vistráðinna stúlkna og mun þar einkum hafa verið haft í huga ákvæði um vinnu- tíma. Fyrir aðalfundi félagsins í mars 1938 lá frumvarp frá nefnd sem fjallað hafði um vinnutíma stúlkna í vistum og var hug- mynd nefndarinnar að fá frumvarp þetta lagt fyrir alþingi. Formaður félagsins Aðalheiður Hólm lagði fram tillögu á fundinum þess efnis að fela stjórn félags- ins að gera sitt ýtrasta til að koma þessu frumvarpi fyrir yfirstandandi alþingi. Pá var jafnframt skorað á alþingi að koma sem fyrst á skóla fyrir starfsstúlkur. Vorið 1939 eru málefni vistráðinna stúlkna í síð- asta sinn á dagskrá félagsfundar. Þá var skýrt frá því að vinnutími vistráðinna stúlkna hefði verið ræddur á ASÍ þingi haustið áður og kynnti formaður aftur frumvarp að lögum um þetta efni sem fundurinn samþykkti að skora á alþingi að flytja og samþykkja. Eina vonin um árangur í þessu máli væri að fá sett lög um ■ vinnutíma stúlknanna. Ekki var meira rætt um þessi málefni á fundi félagsins en í Alþingistíðindum kemur fram að Brynj- ólfur Bjarnason þingmaður Sósíalista- flokksins hefur flutt frumvarp til laga um vinnutíma starfsstúlkna á heimilum. Þar er gert ráð fyrir að hámarksvinnutími sé 10 stundir á dag 6 daga vikunnar og ákvæði um einn heilan frídag í viku. Stúlka sem raðin er í ársvist skal fá 14 daga sumarfrí. F>á er einnig að finna í frumvarpinu ákvæði um eftirvinnu- greiðslur. Flutningsmaður segir í greinar- gerð með frumvarpinu og reyndar einnig í stuttri framsöguræðu að frumvarp þetta sé flutt vegna ítrekaðra óska frá stúlkum. Það hafi oft verið rætt í Starfsstúlknafé- laginu Sókn og samþykkt þar. Einnig hafi landsfundur kvenna sumarið 1938 sam- þykkt ályktun er gekk í sömu átt. Á 71. fundi efri deildar var frumvarpið tekið 106

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.