Réttur


Réttur - 01.04.1986, Qupperneq 48

Réttur - 01.04.1986, Qupperneq 48
átVé. NEISTAR Aðvörun til almennings „Fyrst makt heims er við myrkur líkt, mín sál, halt þig í stilli, varastu þig að reiða ríkt á ríkismanna hylli." Hallgrímur Pétursson Passíusálmar 8,22 Fátæktin komin aftur á íslandi Rödd ákærandans: „Heyrið þér, Satans börn, ef nokkrir eru, sem megið orð mín heyra, eður til þeirra spyrja: Eruð þér enn nú ekki óþyrstir orðnir af blóði fátæks almúga hér á landi? Nær viljið þér láta af að útsjúga hús þeirra, sem yður forsorgun veita með sínu erf- iði?“ Jón biskup Vídalín (sd. á Miðföstu) Frelsun alþýðunnar verður að vera hennar eigið verk „Skæruhernaðurinn og ný- sköpunin ollu ekki aðeins lífs- kjarabyltingu, heldur skóp sú bylt- ing jafnframt bakhjarl þeirrar þjóð- frelsisbaráttu, sem þá var á næsta leyti viö ameríska imperialismann og síðan hefur staðið á fjórða ára- tug. Einnig vannst sigur á þessum árum í annari frelsisbaráttu: bar- áttu alþýðu fyrir frelsi af oki fátækt- arinnar. Með lífskjarabyltingunni var lagður grundvöllur að því að útrýma fátæktinni á íslandi. Síðan var það undir pólitískum þroska, og það merkir sósíalískum þroska alþýðunnar komið, hvort því krafta- verki einnar kynslóðar væri haldið við og það fullkomnað. Enginn getur frelsað alþýðuna frá því böli, ranglæti og viður- styggð fátæktarinnar, nema hún sjálf, en þá má hún heldur engum gleyma, sem ekki getur barist eins og hún sjálf og sigrað, heldur þarf á hjálp hennar að halda. Meðan einhver er vanmegna og þjáist því af skorti, hefur byltingin gegn fátæktinni ekki sigrað endanlega. Því kann svo að fara að bylta þurfi sjálfu þjóðfélaginu að lokum til þess að tryggja endanlegan, full- an og óafturkallanlegan sigur á þeim glæp, sem Bernard Shaw taldi verstan allra, fátæktinni. Meðan auðvald lifir og ræður verður það eilíf árátta þess að koma fátæktinni á að nýju til þess að geta þjónað guði sínum, gróð- anum. Takist andlega frjálsri, og það merkir sósíalískri alþýðu um tíma að útrýma fátæktinni, en láta samt auðvaldið halda völdum, þá mun það ganga berserksgang til þess að gera alþýðuna aftur andlega fátæka, andlega undirgefna yfir- drottnurum sínum. Þá mun ekki langur timi líða, uns hin gamla vofa gægist fram að nýju, og svo verður þar til alþýðan lærir að kveða þann draug svo niður, að hann aldrei rísi upp framar." „ísland í skugga heims- valdastefnunanr 1980. Bls. 182. „Amerískt frelsi“ 11 ára drengur þrælar í kola- námu í Bogota í Kolumbíu til að foröa fjölskyldunni frá hungurdauöa. 112

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.