Réttur


Réttur - 01.08.1975, Side 4

Réttur - 01.08.1975, Side 4
samning. Það var skiljanlegt og viturlegt. Kalda stríðið var hafið gegn þeim, er þau flakandi í sárum höfðu lagt ófreskju fasism- ans að velli. Og allan tímann hafa þau orðið að fórna miklu af lífsgæðum þjóða sinna, til þess að geta staðið auðugum Bandaríkjunum á sporði í hervæðingu, — þessu vitfirrta kapphlaupi, sem er hið eina sem auðvald Vesturheims virðir og skilur. Sovétríkin ját- ast nú undir það að beita ekki valdi gagnvart öðrum Evrópuríkjum til að hafa áhrif á inn- anlandsmál þeirra. Slíku hefur að vísu verið lýst yfir áður fyrr og brotið, — svo sem 21. ágúst 1968, — en það eru ýmis rök, sem mæla með því nú að Sovétríkin og Banda- ríkin muni ekki héreftir eins og hingað til, beita herstyrk (— né þá gildum hótunum um hann), til að leggja Evrópuríki undir vilja sinn, — a. m. k. ber öllum Evrópuríkj- um að gera sitt til þess að bæði stórveldin standi við þetta nýja fyrirheit. Nú reynir á ríki Evrópu, frá austur-landa- mærum Póllands og Rúmeníu til Atlantshafs að fylgja á eftir frelsi því, sem stórveldin tvö óbeint veita þeim, hagnýta sér til fulls þá möguleika, sem í lokum kalda stríðsins felast. Reynir nú á sjálfstæði þeirra og þor hvers um sig að knýja fram afnám þess ófarnaðarástands, er kalda stríðið skóp. Það ætti tafarlaust að byrja með heim- kvaðningu þeirra herja stórveldanna tveggja, sem nú dvelja í Evrópu utan heimalanda sinna og ljúka þeim aðgerðum með upp- lausn hernaðarbandalaganna beggja, enda sé þá um leið sú ákvörðun tekin að hvorugt stórveldið geri tvíhliða samning við Evrópu- ríki. Það færi ekki illa á því t.d. að heimkvaðn- ingarnar hæfust á því að ameríski herinn væri kvaddur heim frá Islandi og sovéski her- inn frá Tékkóslóvakíu samtímis. (Hvað segir ríkisstjórn Islands um að hafa frumkvæði um slíkt, — vart þyrfti að óttast að „jafnvægið" margumtalaða raskaðist við það, hernámslið- ið í Tékkóslóvakíu er vafalaust miklu fjöl- mennara en hernámsliðið á íslandi?). Það verður nú fyrst og fremst komið undir verklýðsflokkum Evrópu hvernig til tekst um þróun þessara mála. ÞEKKJA VERKALÝÐSFLOKKAR EVRÓPU VITJUNARTÍMA SINN? Ég bar þá von í brjósti sem fleiri eftir stríð að verklýðsflokkar Evrópu mundu, — eftir allar þær hörmungar, er þeir urðu sam- an að þola undir ógnarstjórn fasismans, og eftir þann fórnfreka sigur, er þeir og fleiri unnu á fasismanum, bera gæfu til þess að taka höndum saman.2) Sú von brást. Eftir að Bandaríkjaauðvaldið hóf kalda stríðið tókst því að ná tökum á flestum sósí- aldemókrataflokkum Evrópu, — nema þeim sænska. Stjórn Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna tók þá að reyna að knýja kommúnista- flokka Evrópu undir ægishjálm sinn og er Kommúnistaflokkur Júgóslavíu stóð gegn því var ofsókn hafin gegn honum og sjálf- stæðustu kommúnistum Evrópu, en CIA hjálpaði til.3) íslenski Sósíalistaflokkurinn neitaði hinsvegar að taka þátt í aðförinni að „titoistum" og barðist harðri baráttu gegn yfirdrottnunarstefnu ameríska auðvaldsins gagnvart Islandi. — Verklýðshreyfing heims klofnaði hastarlegar en nokkru sinni fyrr: Verklýðsflokkarnir voru hvorir fyrir sig í næsmm jafn andstæðum fylkingum og heimsveldin tvö sjálf og verklýðssamband veraldar klofnaði í tvennt — að undirlagi CIA. Þessu óheillaástandi þarf nú endanlega að ljúka. Verklýðsflokkarnir, kommúnistar sem sósíaldemókratar, þurfa að hefja samstarf, innan hvers lands og þvert yfir landamærin. 148

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.