Réttur - 01.08.1975, Síða 10
VIENTOS DEL PUEBLO
(Vindar fólksins) 1973
Enn einu sinni vilja þeir ata
land, mitt með blóði verkamannanna
Þeir sem tala um frelsi
og bera svartar hendur
Þeir sem vilja slíta
synina frá móðurinni
Og endurbyggja krossa Krists.
Þeir vilja fela blóðskömmina,
arf aldanna
En andlitslitur morðingjanna
verður ekki afmáður
Nú þegar hafa þúsundir á þúsundir ofan
fómað blóði sínu
og örlátir farvegir þess
hafa margfaldað brauðið.
Nú vil ég lifa
við hlið sonar míns og brœðra
Flétta saman vor það,
sem við öll vefum á degi hverjum.
Þið hrceðið mig ekki,
herskarar eymdarinnar.
Stjarna vonarinnar
heldur áfram að vera okkar.
Vindur fólksins talar til mín
vindur fólksins ber mig,
dreifir hjarta mínu
og blæs gegnum öndunarfceri mín
Skáldið mun halda áfram söng sínum
meðan andi minn lifir
meðal fólksins
bceði nú
og að eilífu.
ESTADIO CHILE
(Leikvangur Chile)
Við erum fimmþúsund talsins
í þessum borgarhluta
Fimmþúsund
Hve mörg skyldum við vera
í öllum borgum og öllu landinu?
Bara hér
eru tíu þúsund hendur
sem sá frcejum
og halda verksmiðjum gangandi
Hversu margar manneskjur
standa óvarðar
gegn hungri, kulda, hrceðslu, sársauka,
andlegri þvingun, hermdarverkum og
brjálceði!
Sex okkar hurfu
líkt og inní
stirndan nátthiminn
Finn láitinn
annar barinn og misþyrmt
á þann hátt
sem ég aldrei hefði getað trúað
að hœgt vœri að misþyrma einni manneskju
Hinir fjórir
reyndu að binda endi á skelfingu sína
Finn kastaði sér út í eilífðina
annar barði höfði sínu í vegginn
En allir báru þeir frosna grímu dauðans
Þvílíka ógn og þvílíka skelfingu
vekur ekki andlit fasismans!
Þeir framkvcema ácetlanir sínar með
hárbeittri nákvcemni
Fkkert skiþtir þá máli
Fyrir þá er blóð heiðursmerki
slátrun hetjudáð
ó, Guð minn
er þetta heimurinn, sem þú skópst?
Afrek og kraftaverk sjö daga — — —
Vegna þessa?
154