Réttur - 01.08.1975, Blaðsíða 20
Sigurjón Ólafsson myndhöggvari: Móðirin.
Oft er að því vikið við hátíðleg tækifæri að
það hafi verið karlmannleg seigla feðrtinna og
ódrepandi tryggð þeirra við tungu og bókmenntir
sem fleytt hafa þjóðinni fram á þennan dag. En
stundum dcttur manni í hug hvort bæði karl-
mennirnir og bókmenntirnar hefðu ekki diáð út
þegar harðast blés ef hinar blessuðu eiginkonur
og mæður fortíðarinnar — hinar nafnlausu og
allslausu — hefðu ekki reynst innsta eðli sínu
trúar og vakað dag og nótt yfir hinum fölskvaða
neista í brjóstunum.
V.
Nútímakonunni, sem efla vill menningu og
frið á jörðunni, er mikill vandi á höndum.
Þarna stendur hún nú við hlið karlmannsins á
ofurháu fjalli og við þcim blasa öll ríki verald-
ar og þeirra dýrð. En hverskonar menning og
hverskonar friður ríkir í þessari veröld sem hin
útsækna, vöðvasterka og valdamikla hetja henn-
ar, karlmaðurinn, hefur skipulagt og mótað? Skal
það framvcgis vera aðal konunnar að standa á
jöfnum rétti sínum til að halda áfram að skipu-
leggja og móta þcssa veröld í tákni karlcðlisins?
Eða er hún komin upp á fjallið til þess að láta
hinn blíða blæ kveneðlisins, frjóvgandi og græð-
andi, líða yfir heimsbyggðina?
Ég ætti ckki að þurfa að lýsa hinu svokallaða
heimsástandi eins og það er í dag. Við vitum
að tæknibyltingin mikla með öllum sínum vís-
indasigrum hefur skapað möguleika til allsnægta
sem vissulega ættu að geta eflt og treyst menn-
inguna og friðinn. En við vitum líka að annað-
hvert barn sem fæðist í heiminn deyr úr hungri.
Við vitum ennfremur að mannkynið stendur á
brún hengiflugs sem það getur steypst fram af,
hversu lítið scm út af ber. Hinir stórkostlegu sig-
urvinningar mannsandans hafa verið keyrðir und-
ir mótstríðandi vald risakerfa sem ögra hvort
öðru með algerri tortímingu. Eins og brákaður
reyr hvilir hin innri menning atómaldarinnar á
vopnuðum friði — köldu stríði sem getur fyrr
en varir orðið heitt.
Hvað getur konan á fjallinu, hin frjálsa kona,
hin íslcnska kona, tekið til bragðs undir slíkum
kringumstæðum?
Ef við rennum augum yfir feril hennar og
viðbrögð að undanförnu sjáum við að hin auknu
réttindi hafa fært henni margskonar ytri gæði
sem formæður hennar fóru á niis við. Námsskil-
yrði hennar hafa stöðugt batnað og rýmst. Hún
stundar nú ekki einungis lögfræði, læknisfræði,
og jafnvcl guðfræði, heldur og flestar þær grein-
ar í atvinnulífi, listum og vísindum sem karl-
menn leggja stund á. Ógifta konan leitar svo nær
undantekningarlaust út á hinn almenna vinnu-
markað og gifta konan gengur í æ ríkara mæli
164