Réttur - 01.08.1975, Síða 27
FURSTARNIR
AF
SVARTSENGI
Allt frá því fyrir hálfri öld, er nútíma tækni tók að gera öfl og auð í iðrum jarðar dýr-
mæt og vöxtur bæja hækkaði stórum verð ó jarðeignum, hefur staðið barátta um það
að tryggja alþjóð auðlindir þessar en hindra að einstakir menn, sem ekkert hafa að-
hafst til að skapa verðmæti þessara eigna, fái aðstöðu til að skattleggja almenning svo
sem aðall gerði forðum. Einnig eftir stríð hafa forustumenn úr röðum borgaraflokka,
menn eins og Bjarni Benediktsson og Hermann Jónasson flutt frumvörp á alþingi til
að reyna að tryggja allsherjarrétt þjóðarinnar í þessum efnum, — en allt komið fyrir
ekki. Hin „svarta hönd“ brasksins hefur með baktjaldavélum stöðvað alla slíka við-
leitni. — En það er fróðlegt að rifja upp nokkuð af eldri sögu um átök þessi svo
það sjáist hverja þróun íslensk braskarastétt er að taka.
ÁTÖKIN UM „EIGNINA“
Á VATNSAFLINU
Það var skörp skipting, sem upp kom jafnt
meðal landsmanna almennt sem og á Al-
þingi, er ljóst varð hve dýrmætt afl bjó í
fossum og ám á Islandi.
Annarsvegar voru þeir menn, er ýmist af
stórhug, braskhneigð eða gróðalöngun, vildu
ná fossunum í sínar hendur og útlendra auð-
félaga til virkjunar, töldu bændum trú um
að þeir, bændurnir, ættu þetta vatnsafl og
fengu þá til þess að selja sér það eða leigja
til 50 eða 100 ára. Frá því 1897 til 1917
höfðu flestöll virkjanleg vatnsföll þannig
verið ofurseld útlendum auðfélögum og er-
indrekum Jxdrra, þannig að Sogið eitt var
eftir, eign Reykjavíkur og landssjóðs. Stóðu
ýmsir pólitískir fulltrúar bænda fast á því
að eign bænda á fossunum væri ótvíræð og
ráðstafanaréttur þeirra því skýlaus.
Hinsvegar voru svo framsýnustu fulltrúar
íslenskrar borgarastéttar og þjóðarheildar.
Kom afstaða þeirra gleggst fram í frumvarpi
meirihluta þeirrar fossanefndar, er Alþingi
skipaði 1917. Þann meirihluta mynduðu
þessir þrír: Bjarni frá Vogi, Guðmundur
Björnsson landlæknir og Jón Þorláksson,
síðar formaður flokks borgarastéttarinnar
(Ihaldsins, síðar Sjálfstæðisflokksins). Stefna
þeirra er að ríkið skuli hafa eignarrétt eða
umráðarétt yfir allri vatnsorkunni og kalla
þeir stefnu sína „allsherjarstefnuna", en eru
171