Réttur


Réttur - 01.08.1975, Síða 31

Réttur - 01.08.1975, Síða 31
Einar Olgeirsson WILLIAM MORRIS, ÍSLAND OG SÓSÍALISMINN „Réttur“ minntist þess 1973 að öld var liðin frá siðari ferð Williams Morris til íslands með því að birta ágæta grein eftir SVERRIR HÓLMARSSON: „ALDAR- MINNING ÍSLANDSFERÐAR 1873“. Var þar sagt rækilega frá dagbókum Morris. Nú hefur Mál og menning gefið út „Dagbækur úr íslandsferðum 1871—73“ í þýðingu Magnúsar Á. Árnasonar og er það vel farið. Var vissulega tími til kom- inn að sú bók kæmi út á íslensku. Auð- vitað hefði íslenska ríkið fyrir löngu átt að sýna þeim mikla enska íslandsvini þann þakkarvott fyrir það, er hann vann íslandi, að gefa þessa bók út í viðhafn- arútgáfu með teikningum frá þeim ferð- um og vönduðu æviágripi þessa ágæta höfundar. En íslensk borgarastétt gerir ekki slíkt, enda varla hægt að búast við því af þeirri stétt, er hefur Moggann fyrir sína biblíu og Mammon og Nato fyrir sinn guð. En íslensk alþýða þarf að sýna í verki að hún meti þá menn, sem á neyðartímum unnu landi og þjóð — og vísuðu sjálfir veginn til þjóðfrelsis og sósíalisma. Skal Morris því kynntur nokkru nánar, einkum barátta hans fyrir sósíalismanum.1’ LEIÐ HANS TIL SÓSÍALISMANS LÁ UM ÍSLAND ÞJÓÐVELDISINS William Morris er nú af ýmsum álitinn 175

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.