Réttur - 01.08.1975, Page 52
hagsmuna að gæta andspænis verkamönnum. í
stuttu máli: „auðvald“ nefnum við arðránssam-
bandið milli eignastéttarinnar og verkalýðsstétt-
arinnar.
En hin raunverulega auðvaldsskipan er flókn-
ari: Kenningin um eitt auðvaldskerfi, sem skiptist
í fjölda samkeppniseininga, gefur til kynna sam-
kynja og óskipta auðvaldsstétt ,og er mjög sér-
tekin (óhlutbundin). Hún kemur að notum sem
frásagnar- og kennslutæki, og lýsir nokkurn veg-
inn ástandinu í einu landi (Stóra-Bretlandi) á
tilteknu tímabili (uþb. 1830—1870). Hinsvegar
þarfnast þessi kenning ýmissa viðbótarákvæða, til
að hún eigi við auðvaldsheiminn í heild eða
hluta hans á löngu tímabili.
í raun hafa alltaf verið ýmsar hindranir í
vegi fyrir samkeppni meðal auðvaldsins: lega og
einkenni landsvæða, pólitísk landamæri, ýmis-
háttar skilyrði eftirspurnar og kostnaðar, ofl.
Þessar hindranir valda mismunandi aðstöðu auð-
manna (og einnig verkamanna. en það atriði
ræðum við ekki hér). Sumir auðmenn eru í
einstakri aðstöðu til að arðræna verkalýðinn, —
en varðandi þá hlið máls sem við ræðum hér,
skiptir meira máli að sumir auðmenn geta (td.
með einokunaraðstöðu til verðlagningar) flutt
umframvirðið (arðinn) úr vösum annarra auð-
manna í sína eigin. Þegar á þetta stig er komið,
cinkennist auðmagnið ekki lengur cinungis af
áðurnefndu arðránssambandi tveggja stétta. Það
er nú uppskipt, og sumir geirar þess hafa sterk-
ari aðstöðu til að arðræna verkalýðinn og/eða
til að arðræna aðra auðmenn. Hið einfalda sam-
band milli stétta verður margháttað samband
milli stétta, og hópa innan stétta. Stéttaátökin
mynda eftir sem áður grundvöllinn, en ofan á
þau bætist mergð annarra átaka ,sem sumstaðar
verða þungamiðja tiltekins söguskeiðs.
Af orsökum sem snerta sjálfan uppruna auð-
valdsins, hafa landamæri verið djúpstæðustu og
varanlegustu skilin innan hinnar alþjóðlegu auð-
valdsstéttar. Auðvaldið stökk nefnilega ekki í
heiminn í fullum herklæðum, einsog Aþena úr
höfði Seifs, heldur orsakaðist af löngum og
hörðum átökum milli byltingarsinnaðra borgara
í þéttbýlinu og Iénshöfðingjanna. 1 þessum átök-
um tók borgarastéttin sér venjulega stöðu við
hlið kónga og prinsa sem treysta vildu vald sitt
yfir lénshöfðingjunum og áttu í sífelldu stríði
við þá. Þannig urðu til fjölmörg þjóðríki undir
konungsstjórn. Jafnframt þróun auðmagnsins inn-
an þeirra, sölsaði innlend borgarastétt undir sig
völdin frá hinum konunglega „einvaldi", og réðu
auðmennirnir því ekki einungis hagkerfinu held-
ur cinnig öllu ríkiskerfinu.
Innlendar borgarastéttir notuðu rikisvaldið til
að auka arðinn af auðmagninu: mcð ráðstöfun-
um til að ná meira umframvirði af verkamönn-
um; með því að útiloka útlendinga frá innanlands-
markaði; með hentugum ríkisútgjalda- og skatta-
lögum; með því að þröngva vanmáttugri ríkjum
til nauðungarsamninga; með landvinningum eða
nýlendunámi, osfrv. Skoði maður auðvaldið í
þessu ljósi, sést að það er ekki allt á einn veg:
vald þess og arðvænleiki stafa ekki einvörðungu
af magninu heldur einnig af öðrum sérkennum,
og af þeim er ríkisfangið einna mikilvægast.
Enn ein athugasemd er þetta varðar: Hugmynd-
in um að sumar einingar auðmagns geti verið
algjörlega ríkisfangslausar — cinsog framvinda
fjölþjóðafyrirtækjanna gefur til kynna, að því
haldið er fram í sumum réttlætingarkenningum —
er mótsögn. Auðmagn er einn af tilteknum fram-
leiðsluháttum, sem hvorki eru náttúrulegir né ei-
lífir. heldur bundnir sögutímabili og því breytan-
legir. Þetta ákveðna samband framleiðsluþáttanna,
sem leyfir arðrán einnar stéttar á annarri, mynd-
aðist í heiftarlegum átökum og verður aðeins við-
haldið með nægilega máttugu valdbeitingarkerfi,
þeas. ríkisvaldi. Auðmagn án ríkis er þessvegna
óhugsandi. í dag skiptist heimurinn einvörðungu
í þjóðríki: það er ekki til neitt yfirþjóðlegt ríki.
Hugsum okkur að ríkiskerfi einhverrar þjóðar
mundi falla saman, þá mundi auðmagnið missa
nauðsynlegan verndara sinn. Annaðhvort rynni
þá auðmagnið saman við annarrar þjóðar auð-
magn eða tilveru þess lyki með því að við völd-
um tæki byltingarsinnuð ríkisstjórn sem stefndi
að afnámi þeirrar framleiðsluskipanar. scm auð-
valdið er fólgið í. Loks skal bent á, að auðvald
einnar þjóðar hefur umsvif I öðrum löndum að-
eins vegna þess að allar auðvaldsstéttir viðhalda
í grundvallaratriðum samskonar framleiðsluskip-
an, og vegnaþess að þær sjá sér sameiginlegan
hag í því að leyfa slík alþjóðleg umsvif auð-
magnsins.
Eitt af því mikilvægasta sem Marx lciddi í ljós
var sú staðreynd, að útþensla er auðvaldinu eðl-
196