Réttur - 01.08.1975, Page 55
INNLEND nrr
VÍÐSJA □JE7 “
GEGN ORSÖKUM
VERÐBÓLGU
Miðstjórn Alþýðusambands íslands hefur
samþykkt yfirlýsingu vegna viðhorfa í kjara-
málum. Þessi yfirlýsing, sem birtist í Þjóð-
viljanum 19- sept. sl. hljóðar á þessa leið:
„Miðstjórn Alþýðusambands íslands beinir
því til allra sambandsfélaga sinna að þau
segi upp gildandi kjarasamningum sínum
fyrir 1. des. n.k. þannig að þeir renni úr
gildi á áramótum.
Með tilliti til ógnvekjandi verðbólgu, sem
nú hefur brennt allan eða nær allan þann
ávinning, sem náðist í kjarasamningum fyrr
á árinu og enn heldur áfram án þess að
nokkurt viðhlítandi viðnám sé veitt af stjórn-
arvöldum, lítur miðstjórnin á allsherjar upp-
sögn kjarasamninganna sem fyrsta skref til
þess að mynduð verði öflug samstaða allrar
verkalýðshreyfingarinnar til baráttu gegn
verðbólgunni og þeirri geigvænlegu kjara-
skerðingu, sem af henni hefur leitt og mun
leiða, ef ekki verður nú þegar um gagngerða
stefnubreytingu að ræða í efnahagsmálum
og kjaramálum."
í framhaldi þessarar yfirlýsingar lýsti for-
seti ASI því yfir að verkalýðshreyfingin yrði
að berjast gegn orsökum verðbólgunnar ekki
síður en afleiðingum hennar en orsakir verð-
þennslunnar að undanförnu liggja einkum
í stefnu ríkisstjórnarinnar. Annars staðar í
heftinu er sýnt fram á hversu kaupmáttur
almennra launa hefur þróast á undanförnum
mánuðum.
VL-MÁLIÐ
í júnímánuði voru kveðnir upp í borgar-
dómi tveir dómar í VL-málunum svonefndu.
Dómarnir voru þeir fyrstu sem kveðnir eru
upp af 13 alls sem væntanlegir eru í þessum
málum. Niðurstaða dómanna tveggja varð
sú að ákærðir, Ulfar Þormóðsson, blaðamað-
ur og Guðsteinn Þengilsson, læknir, voru
alfari sýknaðir af refsikröfum og miskabóta-
kröfum. Hins vegar var þeim gert að greiða
hluta málskostnaðar og nokkur umstefndra
ummæla voru dæmd dauð og ómerk. Stefn-
urnar urðu því algert klámhögg. Nú í haust
hefjast málaferlin að nýju og má gera ráð
fyrir að mál þessi taki ein tvö ár enn fyrir
borgardómi.
VL-ingar una málalokum fyrir borgardómi
illa og hafa þeir því tekið þá ákvörðun að
áfrýja málunum til hæstaréttar. Má gera ráð
fyrir að málastappið þar taki enn lengri tíma
en málin hafa tekið fyrir borgardómi.
Lögmaður stefndra í VL-málunum var
Ingi R. Helgason, en hann hefur langflest
málanna á sinni könnu. Hefur hann haldið
á málunum af miklum myndarskap og rök-
festu.
ÁRMANNSFELL
Armannsfellsmálið svonefnda varð eitt
199