Réttur - 01.08.1975, Blaðsíða 61
[ Norður-Portúgal hafa verið gerðar árásir á fundahús kommúnista að undirlagi fasistískra
afla. Sjást hér vegsummerkin á einum stað.
nægt að tveim þriðju hlutum með innflutn-
ingi.
Eftir byltinguna 1974 hófst verkalýðurinn
handa að reyna að fá aðstöðunni gerbreytt,
fyrst og fremst að brjóta á bak aftur ofurvald
hinna forríku en fámennu einokunarklíkna:
Þrettán stœrstu einkabankarnir voru þjóð-
nýttir, þar með kemst 90% bankastarfsem-
innar undir opinbera stjórn. — Sást þá
hvernig voldugustu einkabankarnir höfðu
með miklum fjárfúlgum staðið bak við til-
raunina til valdráns 11. mars 1975. Einkum
stóð „banki hins heilaga anda og verslunar(!)
í Lissabon” (Banco Espirito Santo & Com-
ercial de Lisboa) framarlega í samsærinu.
Ennfremur voru tryggingarfélögin þjóð-
nýtt, — nema þau, sem að miklu leyti voru
rekin með erlendu fé, — fjórtán raforku-
fyrirtœki, olíuhreinsunarstöðvar og olíufélög,
tóbaks- og sementsverksmiðjur, járnbrautir,
námur, tvö stærstu skipafélögin og flugfé-
lagið JAP.
I suðurhluta Portúgal var um ein miljón
hektara lands tekið eignarnámi frá stórjarð-
eigendum: það er: jarðir, sem eru stærri en
50 hektarar ræktaðs lands eða 500 hektarar
205