Réttur - 01.10.1976, Síða 28
legan sigur sósíalismans, kommúnismans,
hefur hinsvegar hvergi ræst enn — sem vart
er von. Undirstöðuáföngum hefur verið náð.
Byltingar alþýðu hafa skapað voldug ríkis-
völd í höndum einörðustu forvígismanna
sósíalismans, kommúnista. Um tíma hafa
menn trúað á endanleika eins stórfenglegs
áfangasigurs, er vannst með ótrúlegum hetju-
skap og snilli, — jafnvel samsamað hann
algerum lokasigri stefnunnar. En svo sjá
menn takmarkanirnar og halda áfram bar-
átmnni.
Höfuðatriðið er að alþýðan haldi reisn
sinni, þeirri, er sósíalisminn gaf henni og
skáldin mögnuðu, — hvort sem hún heyr
baráttu sína innan borgaralegs þjóðfélags eða
knýr á með þróun sósíalistísks samfélags síns
til velmegunar, friðar og frelsis, — þess sem
kommúnisminn er fyrirheit um þegar hann
er skilinn rétt, án ofstækis sumra áhang-
enda og haturs fjandmanna.
Að unnum hverjum áfangasigri, mun ís-
lensk alþýða halda aftur af stað á leiðinni
að markinu mikla, — í anda hins fagra sanna
Ijóð Jóhannesar úr Kötlum:
„— en daginn eftir röðull nýr
oss kveikir sama dýra drauminn
um djarft og voldugt æfintýr."
Draumurinn um endanlegan sigur sósíal-
ismans mun enn skapa og stækka marga
menn, sem berjast fyrir því að hann rætist.
Og hugsjónakraftur Kristins Andréssonar
mun verða íslenskri alþýðu eilífur förnunaut-
ur á þeirri leið.
E. O.
228