Réttur - 01.10.1976, Side 38
Flokkr áð sf un dur
Alþýðubandalagsins 1976
Flokksráð Alþýðubandalagsins, flokks íslenskra sósíalista, hélt fund sinn 12.—14.
nóvember 1976 í hinu nýja húsi Þjóðviljans. Þar voru mættir 109 fulltrúar frá 39 fé-
lögum af 42.
Fundinn einkenndi ólgandi líf vaxandi hreyfingar, hreinskilnar umræður frjálst hugs-
andi fólks, svo enginn, sem viðstaddur var, gat efast um að hér var á ferðinni vaxtar-
broddurinn í verkalýðs- og þjóðfrelsishreyfingu íslendinga.
Við blasti hin þjóðhættulega stjórnarstefna
íslenskrar yfirstéttar, sem undir áhrifum sam-
viskulauss verslunarauðvalds er að fjötra
þjóðina á skuldaklafa amerísku bankanna,
sakir óhófs í innflutningi, bröskurum til
gróða, — og undirbýr að ofurselja orku-
lindir Islands erlendu stóriðjuvaldi í von um
að gerast vellaunaðir þjónar þess.
Samtímis fara hagsmunamótsetningarnar
innan íslenskrar borgarastéttar sívaxandi og
er einkum greinilegt hvernig allir þeir, er að
íslenskum iðnaði standa: jafnt verkafólk
sem atvinnurekendur í einkarekstri og sam-
vinnurekstri, hafa sameiginlega hagsmuni af
því að yfirgangi og þjóðfjandsamlegri stefnu
verslunarauðvaldsins verði hnekkt.
Flokksráðsfundurinn samþykkti einróma
stórhuga stefnu í orkumálum, sem undirbúin
var framúrskarandi vel af orkunefnd, er í voru
þeir Páll Bergþórsson, Ragnar Arnalds, Hjör-
leifur Guttormsson, Tryggvi Sigurbjarnar-
son og Þröstur Olafsson. Hafði hin mikla og
merka skýrsla verið rædd á ágætri orkuráð-
stefnu að Hótel Esju nokkru áður að við-
stöddum helstu sérfræðingum íslenskum í
þessum málum, ný nefnd síðan undirbúið
álykmn fyrir flokksráðstefnuna undir for-
ustu Oddu Báru Sigfúsdóttur. Var öll með-
ferð þessa máls til mikillar fyrirmyndar um
skilgreiningu, rannsókn og stefnumótun í
stórmálum. Hafði Hjörleifur síðan langa og
merkilega framsögu í þessu máli á fundin-
um. — Hyggur flokkurinn á svipaðan und-
irbúning mála á sviði heildaráætlunar um
þróun íslensks þjóðarbúskapar, svo og sér-
staklega um iðnað og landbúnað samkvæmt
238