Morgunblaðið - 08.01.2006, Side 27

Morgunblaðið - 08.01.2006, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 27 Domus Vox Skúlagata 30. 2h. 101 Reykjavík Sími 511-3737 / Fax 511-3738 www.domusvox.is domusvox@domusvox.is Innritun 9-14 janúar kl. 16-18 Samhljómur Árangur Gleði Kennsla og kóræfingar hefjast 16. janúar samkvæmt stundarskrá Domus Vox söngskóli fyrir karla og konur: • Einsöngsdeild og Unglingadeild • Stúlknakór Reykjavíkur - fullskipað í eldri deild (10-16 ára) - nokkur sæti laus í yngri deild 6-9 ára. • Gospelsystur Reykjavíkur - bjóða nýjar söngkonur velkomnar • Vox feminae fullskipaður • Vox junior fullskipaður Skólastjóri og kórstjórnandi: Margrét J. Pálmadóttir Kennarar: Agnar Már Magnússon, Arnhildur Valgarðsdóttir Ástríður Haraldsdóttir, Hanna B. Guðjónsdóttir Inga Backman, Ingunn Ragnarsdóttir Seth Sharp, Stefanía Ólafsdóttir, Stefán S. Stefánsson og Xu Wen. Domus Vox heldur upp á 250 ára afmæli W.A. Mozarts 27. janúar næstkomandi. Fáðu úrslitin send í símann þinn nóg af vetrarhangsi við norður- ströndina. Maginn gaf skipanir með hækkandi vatnshita og því ekki annað að gera en kíkja markvisst á eitthvað ætilegt. Nokkur sporðtök og hann var kominn að suður- ströndinni. Nú var gaman að lifa og varla komið sumar þegar Þingvalla- vatn bauð upp á skordýraveislu með ströndinni samhliða fiskmet- inu. Murtan, hans helsta æti, átti þó hug hans að mestu sem fyrr og því ekki undan því skorist að stinga sér annað slagið niður í dýpið að deg- inum í leit að góðri máltíð. Þá sjald- an að hann sá ástæðu til að kljúfa hitaskiptalag sumarsins á þeim ferðum þá stoppaði hann stutt við í svala dýpisins. Af sama murtu- áhuganum fylgdist hann vel með þegar murtan þétti sig upp undir yfirborði þegar sól var lágt á lofti eða hnigin til viðar. Sumarið leið í góðu fiskeríi og hann var feitur eft- ir því. Haustið gekk í garð og hann sá að flestir félagarnir voru farnir að kíkja á riðin í Öxará. Vanalega hefði ætisgöngunni verið lokið hjá honum á þessum tímapunkti en þetta árið brá svo við að hann leit ekki einu sinni í áttina að hrygn- unum sem syntu upp í Öxará. Murt- an sem eiginlega var aldrei betri á bragðið en akkúrat núna um hrygn- ingartímann átti hug hans allan. Ekki sakaði að hafa mitt vatnið nánast út af fyrir sig og skreppa síðan í enn frekari veiði í austur- hluta vatnsins í nágrenni við Mjóa- nes. Gamla sagan Veturinn barði dyra einn ganginn enn með tilheyrandi vetursetu. Að endingu gerði vorið vart við sig og ekki leið á löngu þar til að átvakt- irnar voru staðnar enn á ný allan sólarhringinn sumarið á enda. Sumarsólin gaf að endingu eftir og gamalkunnar hvatir gerðu illi- lega vart við sig svo mjög að hann varð endanlega að taka hlé á átinu í október. Atlætið síðustu tvö árin höfðu skilað sér í 2 viðbótarkílóum enda lá við að hann strandaði á grynningunum við Öxarárhólmann. En lykt af tilkippilegri hrygnu gerði það að verkum að hann fór þennan sundsprett á nýju meti með tilheyrandi vatnsröst til himins á báða bóga. Hann var enn á ný kom- inn heim. Lokaorð Vinur minn risaurriðinn minnir á þá staðreynd að þeir eru enn ríga- vænir urriðarnir í Þingvallavatni. Þeir tiltölulega fáu veiðimenn sem verða þess aðnjótandi að veiða stór- urriða í yfirstærð fá að kynnast við- ureign sem á ekki sinn líka. Í kjöl- farið er það veiðimannsins að meta hvort sú upplifun hafi ekki verið það sem öllu skipti í þeim sam- skiptum. Ef svo er þá er víst að urriðinn er tilbúinn að kljúfa djúp Þingvallavatns enn um sinn með smá frátöfum á riðunum þegar ást- in kallar. Rannsóknir Laxfiska á atferlis- vistfræði Þingvallaurriða eru komn- ar vel af stað. Niðurstöður þeirra rannsókna hafa nú þegar gefið mik- ilvæga innsýn í líf þessara fiska. Þegar rannsóknunum hefur verið lokið og marktækni þeirra náð því stigi sem til er ætlast verður tiltæk notadrjúg þekking á lífsháttum Þingvallaurriða. Nauðsynlegt er að slík vitneskja liggi fyrir um þennan íbúa Þingvallavatns, ekki síst til þess að stuðla að því að aðgerðir af mannavöldum á Þingvallasvæðinu taki mið af þessum lífsháttum Þing- vallaurriðans. Þannig er stuðlað að því að urriðinn í Þingvallavatni skipi áfram þann eðlilega sess sem hann hefur í merkri náttúru Þing- vallavatns. Höfundur er líf fræðingur og starfar hjá rannsóknafyrirtækinu Laxfiskum ehf. Mynd 6: Línuritið sýnir ferðir risahængsins í Þingvallavatni fyrri hluta dags 1. ágúst 2004 með hliðsjón af dýpinu sem hann hélt sig á og vatnshitanum á því dýpi. Mælt var á einnar mínútu fresti. Á dýptarferlinum er hver mæling dregin fram með ljósbláu, tígullaga tákni. Sjá má að urriðinn fer þennan dag af 15 m dýpi niður á 45 m og aftur upp á 20 m dýpi á tveimur mínútum. Getur verið að einhver murtan hafi þurft að forða sér af síðdegismatseðli urriðans?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.