Morgunblaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÍBÚAR á Álftanesi
hafa unnið stóran sigur.
Guðmundur G. Gunn-
arsson, bæjarstjóri D-
listans á Álftanesi, hefur
nú verið knúinn til að
fresta framkvæmdum á
miðbæjarsvæðinu fram
yfir kosningar, sbr.
Morgunblaðið sl. þriðju-
dag. Það merkir að íbú-
arnir geta í vor lýst vilja
sínum um skipulag svæðisins. Þessi
ákvörðun er tekin vegna at-
hugasemda á tillögu meirihlutans frá
u.þ.b. 700 kosningabærum íbúum.
Þverpólitískur hópur
sem kallar sig „Betri
byggð á Álftanesi“
stóð fyrir söfnuninni.
Talsmenn hópsins
segja að þrír af hverj-
um fjórum sem náðist
til hafi skrifað undir
mótmæli. Þessi mót-
mæli eru líklega eins-
dæmi í sögu skipu-
lagsmála á Íslandi.
Þátttakan staðfesti
það sem margir vissu,
þ.e.a.s. að núverandi
meirihluti talar í dag
fyrir minnihluta íbúanna. Álftanes-
hreyfingin tekur undir með íbúunum
um mikilvægi þess að fá fram aðrar
tillögur. En það eru þáttaskil í deil-
unni og ástæða er til að fagna áfanga-
sigri.
Enn er gert lítið úr
undirskriftum íbúanna
Morgunblaðsgrein bæjarstjórans ber
með sér að frestun framkvæmda, sem
áttu að hefjast í janúar, er honum erfið.
Þannig reynir hann enn að verja gerðir
meirihlutans segir að skipulagið sé gott
og hafi hlotið góða kynningu. Undir-
skriftir íbúanna séu eins konar misskiln-
ingur. Orðrétt segir hann: „ Ég tel það
vera vegna þess að hluti íbúanna hafi
ekki séð sér fært að kynna sér málið á
eigin forsendum.“ Þetta er sami hrokinn
og kom fram á liðnu vori þegar 500 Álft-
nesingar mótmæltu og kölluðu eftir fleiri
valkostum. Nú eins og þá er gert lítið úr
skoðunum íbúanna sem hafa fylgst vel
með og láta sig varða nánasta umhverfi
sitt.
Bæjarstjórinn hefur miklar áhyggjur
af því að kröfur íbúanna um samkeppni
geti tafið framkvæmdir um 2–3 ár. Hér
fer Guðmundur G. Gunnarsson með
rangt mál eins og svo oft áður. Sam-
keppni um deiliskipulagið væri hægt að
vinna á hálfu til einu ári og mun ég víkja
að því hér á eftir. Ef meirihlutinn hefði
hins vegar samþykkt tillögu Álftanes-
hreyfingarinnar um arkitektasamkeppni
og sérstakt íbúaþing veturinn 2005 í stað
þess að fella hana væri skipulagsvinnan
nú á lokastigi í sátt við íbúana. En þá
eins og nú var ranglega fullyrt að óskir
um aðra valkosti tefði vinnuna um mörg
ár.
Það er svo annað mál að líklega væri
það fjárhagslega hagkvæmara fyrir
sveitarfélagið að hægja á uppbyggingu
og létta þannig t.d. vaxandi álagi á skóla
og aðra þjónustu. Í umræðu um mið-
svæðið sögðu fulltrúar meirihlutans líka,
að Hjúkrunarheimilið Eir gerði að skil-
yrði að skipulaginu yrði lokið á árinu
2005. Seinna kom fram, í viðræðum við
forstöðumann Eirar, að þetta var rangt.
Eir hafði aldrei sett fram ákveðnar tíma-
setningar. Tímasetningar í samningi
Eirar og Álftaness komu frá yfirvöldum
á Álftanesi. Þeir sem hugsanlega hafa
sett skilyrði um tímasetningar eru verk-
takarnir sem eiga þriðjung miðsvæðisins
og keyptu það fyrir lánsfé. Þeir vilja
bæði byggja mikið og hratt. Er það ef til
vill vegna þeirra sem bæjarstjórinn þarf
að flýta sér? Var deiliskipulagstillagan ef
til vill unnin eftir óskum verktakanna og
því ekki hægt að kalla eftir öðrum val-
kostum?
Arkitektasamkeppni
tekur hálft til eitt ár
En víkjum þá að staðhæfingunni að
samkeppni taki tvö til þrjú ár. Nýlega er
lokið arkitektasamkeppni um skipulag
miðbæjar á Egilsstöðum, sem vannst á
innan við ári, sama á við um samkeppni í
landi Helgafells í Mosfellsbæ. Á Ak-
ureyri er nýlokið umfangsmestu arki-
tektasamkeppni um skipulag íbúða-
byggðar og miðbæjar sem fram hefur
farið á Íslandi. Samkeppnin bar nafnið
„Akureyri í öndvegi“ og var alþjóðleg en
ferli hennar tók u.þ.b. ár. Undirbúningur
keppninnar var unninn veturinn 2004.
Keppnin var boðin út að undangengnu
íbúaþingi 11. nóvember 2004. Skiladagur
var 1. mars 2005, og niðurstöður dóm-
nefndar lágu fyrir 25. apríl 2005, rúmu
ári eftir að ferlið hófst. Hér er, eins og
áður sagði, um að ræða viðamestu sam-
keppni af þessu tagi sem fram hefur far-
ið á Íslandi, enda bárust 120 tillögur sem
dæma þurfti á milli. Ég hef rætt við arki-
tekta um skipulag miðsvæðisins á Álfta-
nesi og segja þeir að hægt væri að halda
samkeppni þar sem íbúarnir kæmu að
vali einstakra lausna og ljúka henni á
u.þ.b. hálfu ári. Rangfærslur D-
meirihlutans á Álftanesi um 2–3 ára ferli
eru því settar fram af annarlegum hvöt-
um. Ef til vill er ætlunin að draga úr
kjarki íbúanna til að standa á rétti sínum
um eðlilega aðkomu að skipulagi mið-
bæjarins. Álftnesingar hljóta að spyrja
hvers vegna bæjarstjórinn fari ítrekað
rangt með staðreyndir. Framkoma
meirihlutans í þessu máli fer undir dóm
kjósenda í maí, þökk sé öllum þeim fjölda
Álftnesinga sem andmæltu nú í desem-
ber.
Íbúar á Álftanesi
vinna áfangasigur
Sigurður Magnússon
fjallar um skipulags-
mál á Álftanesi
’Þrír af hverjum fjórumÁlftnesingum andmæla
tillögu meirihlutans.‘
Sigurður
Magnússon
Höfundur er bæjarfulltrúi
Álftaneshreyfingarinnar.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
HOLTSGATA - HF. - EINB.
Sérlega fallegt þrílyft einbýli ca 130 fm auk 17 fm
bílskúrs. 4 svefnh., stofa, borðstofa o.fl. Róleg og
góð staðsetning. Verð 28,5 millj.
SKÚLASKEIÐ - HF. - EINB.
Glæsileg virðuleg húseign á þremur hæðum auk
30 fm bílskúrsplötu, samtals 300 fm. Húseign sem
býður uppá mikla möguleika. Frábær staðsetning
(örstutt frá miðbænum). Útsýni. Verð 52 millj.
VÍÐIVANGUR - HF. - EINB./TVÍB.
Nýkomið sérlega fallegt pallbyggt einbýli með
innbyggðum bílskúr og sér 2ja herb. íbúð á jarð-
hæð m. sérinngangi, samtals 281,5 fm. Parket,
hraunlóð, góð staðsetning. Góð eign. Verð 51,5
millj.
VESTURGATA - HF. - EINB.
Nýkomið glæsilegt ca 150 fm pallbyggt enibýli
sem skiptist þannig: Stofa, eldhús, baðherbergi,
sjónv.hol, þvottaherb., 3 góð barnaherb., stórt
svefnhverb., snyrting o.fl. Húsið hefur allt verið
endurnýjað á sl. árum utan sem innan. Glæsilegt
eldhús og baðherbergi. Sjón er sögu ríkari. Húsið
er laust strax. Góð staðsetning í v-bæ Hafnarfj.
Stutt í miðbæ o.fl. Verð 31,5 millj.
SUÐURVANGUR - HF. - EINB.
Nýkomið í einkasölu glæsilegt tvílyft einbýli m.
bílskúr og kjallara undir bílskúr, samtals 282 fm.
Stofa, borðstofa, glæsilegt eldhús, 6 svefnherb.,
sjónv.skáli, arinn o.fl. Húsið var nánast allt inn-
réttað að innan fyrir ca 2 árum, m.a. sérsmíðaðar
innréttingar, parket o.fl. Verönd m. skjólgirðing-
um og heitum potti. Góð staðsetning, stutt í skóla
og þjónustu.
BJÖRTUSALIR - KÓP. 5 HERB. LAUS
LAUS STRAX! Sérlega glæsileg 130,8 fm 5 herb.
íbúð á annarri hæð í fimm íbúða húsi. Forstofa,
sjónvh., stofa, borðst., eldhús, baðh, 3 barnah.,
hjónah., baðh., þv.hús og geymsla. Fallegar innr.,
parket og flísar. Góðar s-svalir. Frábær stað-
setning. Stutt í skóla og leikskóla. Verð 29,9 millj.
ASPARHVARF - KÓP. - SÉRH. - LAUS
Glæsileg 134,3 fm efri hæð í tvíbýli m. sérinng.
ásamt stæði í bílag. Mikið útsýni. Anddyri,
gestasn., eldhús, stofa, borðst., hjónah., 2 barna-
herb., baðherb., geymsla og þvottah. Glæsileg
eikarinnr., vönduð tæki og flísar. Tilbúið til af-
hendingar.
HRAUNTEIGUR - RVÍK - 3JA - SÉRH.
Nýkomin í einkasölu á þessum frábæra stað
sérlega falleg 87 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð
(kjallari) í mjög góðu þríbýli. Hús í góðu standi að
utan, fallegar innréttingar og gólfefni, talvert
endurnýjuð eign í góðu standi. Verð 18,3 millj.
HÁTEIGSVEGUR - RVÍK - 2JA-3JA
Nýkomin í einkasölu sérlega skemmtileg 64 fm
2ja-3ja herb. íbúð á neðri hæð í góðu fjölb. Eignin
er mikið endurnýjuð m.a. allir gluggar, gler,
raflagnir o.fl. Eitt svefnh. á hæðinni og annað
gott herb. í kjallara. Flísalagt bað, nýstandsett.
Verð 15,9 millj. 112826-1
ÁLFHÓLSVEGUR - KÓP. - SÉRH.
Sérlega falleg 100 fm 4ra herb. íbúð á jarðhæð í
góðu þríbýli. Hús í góðu standi. Fallegar inn-
réttingar, parket á gólfum, þvottahús í íbúð, allt
sér. Falleg eign, mjög vel staðsett. Verð 20,7 millj.
Sléttuvegur - Vönduð 4ra herb.
endaíbúð fyrir 55 ára og eldri
Vönduð 133 fm 4ra herbergja enda-
íbúð á 2. hæð ásamt 23 fm bílskúr í
þessu eftirsótta lyftuhúsi. Íbúðin skipt-
ist í forstofu með skápum, gestasal-
erni, samliggjandi stofur, eldhús með
góðum innréttingum og borðaðstöðu,
tvö góð herbergi með skápum og bað-
herbergi. Flísalagðar suðvestursvalir út
af stofu, lokaðar að hluta, með stór-
kostlegu útsýni og svalir í norðaustur
út af öðru herberginu. Parket á gólfum. Geymsla innan íbúðar með innréttingum
og möguleika á þvottaaðstöðu. Sameiginlegt þvottaherb. á hæðinni. Mikil sam-
eign m.a. matsalur, húsvarðaríbúð, setustofa, gufuböð o.fl. Verðtilboð.
Tjaldhólar - Selfossi
Þrjú ný raðhús á einni hæð við Tjald-
hóla á Selfossi. Um er að ræða 162 fm
endahús og 156,0 miðjuhús með inn-
byggðum bílskúr og skiptast í forstofu,
hol/stofu, opið eldhús, þrjú herbergi,
baðherbergi og þvottaherbergi. Húsin
eru timburhús, klædd að utan og af-
hendast fullbúin með vönduðum inn-
réttingum. Baðherbergi afhendist flísa-
lagt. Eikarparket og flísar á gólfum.
Halogenlýsing í loftum. Eikarhurðir.
VERÐTILBOÐ.
Naustabryggja - 3ja herb.
Glæsileg 80 fm íbúð auk 7,4 fm
geymslu í kjallara í Bryggjuhverfinu við
sjávarsíðuna. Björt stofa, rúmgott eld-
hús, 2 herbergi, bæði með skápum og
flísalagt baðherbergi. Allar innréttingar,
parket og hurðir úr eik. Tvennar svalir í
suður og norður. Verð 21,9 millj.
Nesvegur 53 - Góð 4ra herb. íbúð
með sérinngangi - Opið hús á morg-
un, mánudag, frá kl. 17-18
Góð 113 fm 4ra herb. íbúð á tveimur
hæðum með sérinngangi. Á aðalhæð
er forstofa, tvö herbergi, þvotta-
herb./baðherb., parketlögð stofa með
mikilli lofthæð og opið eldhús við
stofu. Uppi eru tvö herbergi og bað-
herbergi auk geymslu. Útgengi á suð-
ursvalir úr stofu, útsýni til sjávar. Sér-
bílastæði við hús. Verð 28,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis á morgun, mánudag, frá kl. 17-18. Verið velkomin.
Gnitaheiði - Endaraðhús í suður-
hlíðum Kópavogs
Glæsilegt 150 fm endaraðhús, tvær
hæðir og ris, auk 26 fm sérstæðs bíl-
skúrs, afar vel staðsett á frábærum út-
sýnisstað á móti suðri. Eignin skiptist
m.a. í gestasalerni, eldhús með birki-
innrétt., stórar og bjartar glæsilegar
samliggj. stofur með útg. á suðursvalir,
sjónvarpshol, 3 herbergi, öll með
skápum og flísalagt baðherbergi auk
opins rýmis/herbergis í risi með stórum þakglugga. Parket og flísar á gólfum.
Lóð með skjólveggjum og verönd. Verð 45,9 millj.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.