Morgunblaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 39
FRÉTTIR
FERÐAKYNNING verður í nýjum
húsakynnum MÍR á Hverfisgötu
105, fyrstu hæð. sunnudaginn 8.
janúar kl. 16, á ferð til Moskvu og
Pétursborgar 30. apríl–10. maí nk.
Framsögu hefur Haukur Hauksson
aðalfararstjóri.
Nánari upplýsingar eru á
www.austur.com.
Ferðakynning
hjá MÍR
GÓÐ aðsókn var að vörubílasýn-
ingu hjá MAN-umboðinu Krafti
nýlega þegar nýi TG-A 4x4H vöru-
bíllinn var kynntur. Verið er að
standsetja fyrsta bílinn af þeirri
gerð fyrir kaupanda hér en það er
sex hjóla dráttarbíll með vökva-
knúnu framdrifi sem er ný út-
færsla á framdrifi.
Nýi framdrifsbúnaðurinn er ein-
faldari að gerð en hefðbundið
framdrif þar sem hann er vökva-
knúinn og liggja leiðslur frá
vökvadælu bílsins út í framhjólin.
Ekki þarf því hefðbundinn drif-
búnað og segir Gunnar Margeirs-
son, sölustjóri hjá Krafti, að með
þessu móti vegi framdrifið aðeins
um 400 kg í stað um 850 kg sem
hefðbundið framdrif vegur. Kostn-
aður er svipaður eða um 870 þús-
und fyrir þennan búnað.
„Þessi búnaður kemur ekki síst
að gagni í dráttarbílum með
sturtuvagna þegar þeir eru t.d.
búnir að losa farm í húsgrunni eða
við aðrar erfiðar aðstæður þar sem
bílarnir geta hreinlega fest sig. Þá
getur munað um að hafa framdrif
til að losa sig en búnaðurinn er
ekki hugsaður fyrir almennan
akstur því við 30 km hraða kúplast
hann út,“ segir Gunnar og telur
þetta mjög góðan kost fyrir bíla í
ákveðnum verkefnum.
Kraftur hefur selt á árinu hátt í
100 bíla og segir Gunnar söluna í
ár svipaða og í fyrra og meiri en
áætlað var á árinu. Forráðamenn
Krafts segjast tæplega eiga von á
svo mikilli sölu á næsta ári.
Nýr framdrifsbúnaður í MAN
Morgunblaðið/Sverrir
UMHVERFISSVIÐ Reykjavíkur
stendur fyrir samráði við borg-
arbúa um sjálfbært samfélag sem
hefst mánudaginn 9. janúar og
stendur í tvær vikur. Hverjum og
einum er boðið að koma á fram-
færi eigin hugmyndum um hvernig
borgaryfirvöld eigi að standa að
því að skapa sjálfbært samfélag á
næstu árum.
Þar er átt við málefni eins og
notkun útivistarsvæða, sam-
göngur, náttúruvernd, landnýt-
ingu, loftgæði, lýðheilsu, ásýnd
borgarinnar, umhverfisfræðslu,
hverfið mitt, sorp og umgengni.
Samráð Umhverfissviðs við
borgarbúa er þáttur í endurskoðun
á umhverfisáætlun Reykjavíkur –
Staðardagskrá 21 og gengur nú
undir heitinu Reykjavík í mótun.
Hugmyndirnar verða síðan notað-
ar til að móta stefnu borgarinnar í
umhverfismálum og sjálfbærri
þróun.
Á slóðinni www.hallveigarbrunn-
ur.is er óskað eftir skriflegum
hugleiðingum um umhverfismál
undir nafnleynd. Einnig má senda
hugleiðingar í tölvupósti á net-
fangið sd21@reykjavik.is eða bréf-
lega til Umhverfissviðs Reykjavík-
urborgar, Skúlagötu 19, 101
Reykjavík, merkt „Reykjavík í
mótun“.
Gjaldfrjálst símanúmer/talhólf
hefur einnig verið opnað og geta
borgarbúar þannig komið hug-
myndum sínum munnlega á fram-
færi. Símanúmerið er 800-1110.
Samráð um
Reykjavík
í mótun
MET var slegið í flugeldasölu um
þessi áramót hjá Landsbjörg og
áætlar Jón Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar, að
um 20% aukning hafi orðið í sölu
síðan í fyrra, en endanlegar tölur
eiga þó enn eftir að skila sér.
Hann segir að flutt hafi verið
inn til landsins um 600 tonn af
flugeldum í ár og sennilega seljist
75-80% þeirra yfir áramótin og
eitthvað fari fyrir þrettándann
líka.
Talið er að flugeldar hafi selst
fyrir um hálfan milljarð í ár og
segir Jón að Landsbjörg sé með
að minnsta kosti helming af mark-
aðnum. Aðspurður um hve stór
hluti söluhagnaðar skili sér til
Landsbjargar segir Jón að það sé
mjög hátt hlutfall enda afar lítill
kostnaður sem falli til, allir starfs-
menn vinni í sjálfboðavinnu og
húsnæði sé ókeypis. Fyrir utan
innkaupakostnað á flugeldum hef-
ur Landsbjörg aðallega kostnað af
auglýsingum.
Jón segir afar ánægjulegt hve
vel hafi tekist til í ár.
„Okkur er efst í huga þakklæti
til allra þeirra sem sýndu stuðning
með því að kaupa flugelda hjá
Landsbjörg,“ segir Jón.
Íþróttafélög stóðu mörg hver
fyrir flugeldasölu og hjá þeim fé-
lögum sem Morgunblaðið setti sig
í samband við hafði salan gengið
vel.
Hjá KR höfðu flugeldarnir til að
mynda nærri því klárast yfir ára-
mótin, slík var salan.
Metár í flug-
eldasölu hjá
Landsbjörg
♦♦♦
SETT hefur verið á laggirnar mats-
nefnd sem ákveða skal verðmæti og
umfang vatnsréttinda vegna Kára-
hnjúkavirkjunar. Almennir kynn-
ingarfundir verða haldnir á næst-
unni, en landeigendum hefur áður
verið kynnt málið sérstaklega.
Nefndin á að skila af sér niður-
stöðum næsta haust og er talið að
starf hennar einfaldi allt ferlið og
sé auðveldara en eignarnámsferli.
Hægt verður að fara með niður-
stöður nefndarinnar fyrir dómstóla
sætti landeigendur sig ekki við úr-
skurð hennar. Reiknað er með að
Landsvirkjun greiði síðan viðkom-
andi rétthöfum eingreiðslu í kjölfar
úrskurðar nefndarinnar í haust.
Vatnsréttindi
metin