Morgunblaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 62
R
agnar Bragason leik-
stjóri tekur við leik-
stjórakeflinu af Óskari
Jónassyni þegar fram-
leiðsla á nýrri syrpu af
Stelpunum hefst á sunnudaginn en
Óskar mun vera kominn í fæðing-
arorlof. Ragnar Bragason er ekki
óvanur því að ganga í fótspor Ósk-
ars þegar grínþáttagerð í sjónvarpi
er annars vegar en Ragnar tók
einnig við af Óskari þegar Fóst-
bræður voru og hétu. Ragnar
segist hlakka mikið til að tak-
ast á við verkefnið.
„Þetta verður mjög hress-
andi svona í skammdeginu, að
vera að djóka en svo kemst
maður líka í snertingu
við eigin tilfinningar
og konuna í sjálfum
sér, sem er ekki
verra.“
Spurður hvort
aðdáendur þáttanna
muni sjá breytingu á
Stelpunum með hann á
bak við stýrið segir
Ragnar að það sé ólík-
legt.
„Það er búið að forma
þáttinn og ég er ekkert
að stokka þetta mikið
upp en það eru þó
alltaf nýjar áherslur
með nýjum mönn-
um.“
Fyrsti þátturinn
undir sjórn hins nýja
leikstjóra verður
frumsýndur um miðj-
an febrúar og í þátt-
unum verða þrír nýir
leikarar, þau Harpa
Arnardóttir,
Birgitta
Birg-
isdóttur og Pétur Jóhann Sigfússon,
grínari og meðlimur Strákanna.
Ástæðuna segir Ragnar þá að
Katla Margrét Þorgeirsdóttir og
Kjartan Guðjónsson, sem leikið hafa
í þáttunum frá upphafi, muni taka
sér tímabundið frí vegna annarra
leikanna.
Um valið á Pétri Jóhanni, sem er
sá eini í leikhópnum sem ekki getur
talist lærður leikari, segir Ragnar
að enginn annar hafi komið til
greina.
„Þegar Kjartan datt út varð ég að
finna annan karlleikara og Pétur
Jóhann lá beint við. Hann er fynd-
inn frá náttúrunnar hendi og þó að
hann sé ekki menntaður leikari er
hann langt í frá að vera byrjandi á
þessu sviði. Svo er hann líka svo
mikið krútt og það ætti að auka
áhorfið.“
Úr einu gríni í annað
„Já, krútt selur, það er nýjasta
kenningin,“ segir Pétur Jóhann Sig-
fússon, vel með á nótunum, þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hann.
„Mér líst mjög vel á að byrja í
Stelpunum, er fullur eftirvænt-
ingar og það er mikill heiður
að fá að taka þátt í
þessu.“
Pétur vill þó
ekki kannast við
að vera kominn
í samkeppni
við sinn eigin
þátt, Strákana.
„Nei, nei, við
höfum aldrei litið
þannig á þetta en ég
verð hins vegar kominn
með mikið uppsafnað áhorf
þegar það fer á líða á árið.
Við Strákarnir förum aftur
í loftið 16. janúar og ég hef
verið að vinna með þeim í
dag og svo er ég núna að
fara á æfingu með Stelp-
unum. Ég verð kannski að-
eins minna í atriðum hjá
Strákunum til að byrja með
en svo ætti þetta að jafnast
út,“ segir Pétur Jóhann,
hvergi banginn.
Sjónvarp | Pétur Jóhann og Ragnar Braga ganga til liðs við Stelpurnar
Stelpurnar fá Strák
Ragnar Bragason
leikstjóri.
62 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
Jólamyndin 2005
Upplifðu ástina og kærleikann
Sýnd kl. 2 og 4 Íslenskt tal
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
20% afsláttur af miðaverði
fyrir viðskiptavini KB Banka
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
„ áhugaverð og fáguð kvikmynd sem
veitir ferskum straumum inn í íslenska
kvikmyndagerð“
eeeeHJ / MBL
„Mynd sem stendur
fyllilega fyrir sínu"
„...A Little Trip sýnir
mann (Baltasar) sem
hefur náð fullum tökum
á list sinni"
Valur Gunnarsson /
Fréttablaðið
Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliam
byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með Matt
Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum
EINNIG SÝND Í LÚXUS kl. 3.45, 5.50, 8 og 10,10
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
20% afsláttur af miðaverði
fyrir viðskiptavini KB Banka
Sýnd kl. 8 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 4 Íslenskt tal kl. 5.45 og 10 B.i. 12 ára
ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM
SJÚKUSTU
FANTASÍUR
ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA!
Stranglega bönnuð innan 16 ára
ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM
SJÚKUSTU
FANTASÍUR
ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA!
Stranglega bönnuð innan 16 ára
eeee
Dóri DNA / DV
eeee
Ó.Ö.H. / DV
eeee
Ó.Ö.H. / DV
eee
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 4 og 6
JUST FRIENDS
Sími 564 0000Miðasala opnar kl. 13.30
eeee
H.J. / MBL
“…mikið og skemmtilegt sjónarspil...”eee
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
....eiturgóð mynd....
Sirkus 30.12.05
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
FEITASTI
GRÍNSMELLUR ÁRSINS!
eeee
H.J. / MBL
A.G. / BLAÐIÐ
A.G. / BLAÐIÐ
Pétur Jóhann er
ánægður með að
vera orðinn Stelpa.
Stelpunum
berst góður
liðsauki.