Morgunblaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Vorum að fá í einkasölu 93 fm 3ja herbergja
íbúð á 4. hæð í fallegu viðhaldsfríu 12 hæða
lyftuhúsi á einum besta útsýnisstað
höfuðborgarsvæðisins. Eigninni fylgir stæði í
upphituðu bílskýli. MIKIÐ ÚTSÝNI. Björt stofa
með útgangi á suðursvalir með stórkostlegu
útsýni í suður og vestur. Allar innréttingar og
innihurðir eru spónlagðar með mahóní. Sérstök
gæðahljóðeinangrun er í öllu húsinu. Allur
frágangur er mjög góður. Verð 22,3 millj.
Ingvar (bjalla 04-02) tekur vel á móti
væntanlegum kaupendum frá kl. 17-18 í dag.
BLÁSALIR 22
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL 17-18
Fallegt og vel skipulagt 230 fm einbýlishús á einni hæð á vinsælum stað á sunnanverðu
Seltjarnarnesi. Eignin skiptist í anddyri, gestasalerni, hol, þrjár stofur (auðvelt að breyta einni í
svefnherbergi), rúmgott eldhús með nýlegri innréttingu, tvö barnaherbergi, rúmgott hjónaher-
bergi og nýstandsett baðherbergi með baðkari og sturtu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.
Bílskúrinn er tvöfaldur og innaf honum er gott herbergi með glugga. Húsið hefur fengið gott
viðhald í gegnum tíðina. Parket og flísar á gólfum. Garður er í góðri rækt og sunnanmegin er
falleg verönd með heitum potti. Ólafur Finnbogason, s. 822 2307, sölumaður DP FASTEIGNA
tekur á móti gestum ásamt Guðna eiganda frá 14-16 í dag sunnudag.
SÓLBRAUT 11
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL 14-16
OPIÐ HÚS FRÁ KL. 14-16
Í DAG, SUNNUDAG
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Vorum að fá í einkasölu
glæsilega 3ja herb. efri
sérhæð í þessu fallega
húsi. Íb. var endurnýjuð að
mestu 1997 og þak lagfært
árið 2004. Rúmgóð stofa,
2 svefnherb. Parket, flísa-
lagt baðherb. Frábær stað-
setning í grónu hverfi. Fal-
legt útsýni. V. 19,8 millj.
Leone og Sif taka á móti
áhugasömum í dag,
sunnudag, frá kl. 14-16.
SÓLHEIMAR 7 –
GLÆSILEG EFRI SÉRHÆÐ
Í einkasölu vel skipulögð
94 fm íbúð á 3. hæð sem
er efsta hæð í klæddri
blokk. Í kjallara er herbergi
sem fylgir íbúð, suðursval-
ir. Þvottahús í íbúð.
V. 16,2 millj.
Opið hús í dag,
sunnudag, frá kl. 14-16.
LEIRUBAKKI 26 – ÍBÚÐ 0302 –
M. AUKAHERBERGI Í KJALLARA
Í einkasölu glæsil. 95 fm
íb. á 1. h. (jarðh.) í vönd-
uðu álkl. fjölbýli ásamt st. í
bílskýli. Glæsilegt eldhús
og baðherb. Vandað park-
et á gólfum. Sérþvottahús.
Útg. á stóra timburverönd.
V. 22,8 millj.
Opið hús verður í dag,
sunnudag, frá kl. 14-16.
Ragnhildur tekur á móti
áhugasömum.
NAUSTABRYGGJA 18 – ÍBÚÐ 0101
– GLÆSILEG ÍBÚÐ – M. BÍLSKÝLI
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030
johann@eignaborg.is
☎ 564 1500
25 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
Opið hús sunnudag kl. 13.00 til 16.00
Hólmsheiði 18 í Fjárborg
Til sölu eitt glæsilegasta hesthúsið
í Fjárborg. Húsið er nánast fullfrá-
gengið. Húsið er með steyptum
vegg milli hlöðu og húss, járnklætt
að utan, loft eru klædd með báru-
járni, milligerði úr stálrörum. Undir
húsinu er haughús sem er dælt
upp úr. Gert er ráð fyrir 34 hross-
um, þrjú útigerði og því er upplagt
fyrir nokkra aðila að kaupa saman.
Nýklædd 49 fm kaffistofa er yfir hlöðu, rotþró er við húsið. Til afhendingar strax.
Áhvílandi hagstætt lán sem getur fylgt. Nánari uppl. gefur
Vilhjálmur í síma 864 1190.
ÉG ÁTTI því láni að fagna að vinna
með Skarphéðni Berg Steinarssyni,
stjórnarformanni Flugleiða, þegar
hann var ritari einkavæðing-
arnefndar og Hreini Loftssyni, sem
var formaður nefnd-
arinnar. Við unnum að
sameiginlegu áhuga-
máli: frelsisvæðingu ís-
lensks viðskiptalífs –
einkavæðingu fjár-
málakerfisins. Að losa
um kverkatak stjórn-
málamanna á fjár-
málastofnunum. Að
mínu mati mikilvæg-
asta verkefni tíunda
áratugarins. Þá mætti
einkavæðing andbyr og
erfitt var að skapa sam-
stöðu um málið. Það var
í heimóttarlegu hjólfari
íslenskrar dægurþrætu og erfitt að fá
umræðu um kjarna málsins. Ég var
ásamt öðrum beðinn að skila tillögum
til að breyta þessu.
Til vitrænnar umræðu
Mínar tillögur voru valdar, en ég
lagði meðal annars áherslu á að fá
umræðu að utan. Komast frá hinu ís-
lenska dægurþrasi um ekki neitt til
vitrænnar umræðu. Fá erlenda
áhrifamenn til þess að ræða einka-
væðingu. Hvernig hafði til tekist í út-
löndum? Hápunktur átaksins var al-
þjóðleg ráðstefna. Til landsins kom
helsti hugmyndasmiður einkavæð-
ingar úti í hinum stóra heimi, Vaclav
Klaus, forsætisráðherra Tékklands,
mest var það persónulegur greiði við
Davíð Oddsson, að ég held. Þetta
tókst vel og þeir Skarphéðinn og
Hreinn unnu afar gott starf sem
skipti miklu máli fyrir íslenskt sam-
félag. Nagg um einka-
væðingu varð að nöldri.
Bankarnir voru einka-
væddir og nú síðast
Síminn. Þegar maður
hugsar áratug aftur í
tímann þá gengur
einkavæðingin krafta-
verki næst en öllum
finnst hún nú sjálfsögð.
Verkefnið var að
koma umræðunni frá
upphrópunum um ekki
neitt til þess að greina
kjarna málsins. Fá vit-
ræna umræðu. Það
fannst mér einn helsti
styrkur Skarphéðins auk þess að
vera afburðastjórnandi. Þess vegna
skil ég ekki upphrópanir Skarphéðins
um ritstjóra Morgunblaðsins á dög-
unum. Orðaleppa sem hann grípur til
en eru merkingalausir við nánari
skoðun.
Hann sakaði Morgunblaðið um
árásir á Baug vegna innherjagreinar.
Lítið er við því að segja enda algengt
að bisnessmenn reiti hár sitt yfir
skrifum fjölmiðla. Skarphéðinn er
frjáls að þeirri skoðun sinni, þó auð-
vitað sé það eilítið broslegt þegar
maður hugsar til þess að þar fer gam-
all stjórnarformaður Baugsmiðla.
Svo hringsnýst vitleysan
En svo hringsnýst vitleysan.
Styrmir Gunnarsson er sakaður um
að hafa verið einn upphafsmanna
Baugsmálsins; að hafa fengið valda-
mikla menn til þess að ýta málinu
gegn Baugi úr vör. Stenst sú fullyrð-
ing? Hvar er upphaf Baugsmálsins?
Þegar kjarninn er skoðaður þá er
upphaf Baugsmála í Baugi. Það er
svo einfalt. Samverkamaður Baugs
kærði félagið. Gömul sambýliskona
Jóa í Bónus vann nótt sem nýtan dag
við að koma höggi á Baug.
Samverkamaðurinn leitaði til rit-
stjórans og sagði farir sínar ekki
sléttar af viðskiptum við Baug. Var
ofan á allt með spæjara á hælunum í
Bandaríkjunum. Vildi Morgunblaðið
fréttir af háttalagi Baugs? Morg-
unblaðið hafnaði því. Hinn ofsótti
spurði þá um lögmenn. Honum
fannst þeir flestir taglhnýtingar
Baugsfeðga sem öllu virtust stjórna á
Íslandi og höfðu nána samverkamenn
forsætisráðherra í vinnu. Engum
væri treystandi. Ritstjórinn nefndi
nöfn nokkurra lögmanna. Þetta er
kjarni málsins.
En Baugur kýs að hrópa samsæri.
Bullið er endurtekið aftur og aftur.
Það er holur hljómur í þessum ásök-
unum, enda merkingalausar upp-
hrópanir. Þú verður að gera betur,
minn kæri Skarphéðinn.
Þú verður að gera
betur, Skarphéðinn
Hallur Hallsson segir frá sam-
skiptum sínum og Skarphéðins
Bergs Steinarssonar
’Það er holur hljómur íþessum ásökunum, enda
merkingarlausar upp-
hrópanir.‘
Hallur
Hallsson
Höfundur er blaðamaður.
ÞEGAR fréttir berast af því að
fólk liggi látið á heimilum sínum um
lengri tíma verða allir slegnir. Ýmsar
fleiri tilfinningar bærast með manni
eins og hryggð, samúð og sam-
viskubit. Látum ekki lamast af þess-
um tilfinningum heldur nýtum þær
til uppbyggingar
þjónustu við þá sem
eru einangraðir.
Samfélag okkar
veitir margháttaða
þjónustu og má þar
fyrst nefna félags- og
heilbrigðisþjón-
ustuna. Þar vinnur
áhugasamt fólk sem
sinnir náunga sínum
á nóttu sem degi. Það
gera einnig margir
aðrir t.d. þau sem
sækja kirkju og
starfa innan hennar
að ógleymdum öðr-
um frjálsum félagasamtökum eins og
Rauða krossinum og félögum eldri
borgara.
Vandinn virðist ekki vera auðleyst-
ur því ekki er hægt að neyða fólk til
samskipta. Til að rjúfa einangrun
einstaklings þarf frumkvæði utan frá,
þolinmæði, gott skipulag en umfram
allt kærleika. Við þurfum öll að setja
okkur sameiginlegt markmið sem er
að enginn lifi svo einangrað að hans
eða hennar sé ekki saknað svo vikum
skipti.
Kirkjan þarf að íhuga hvort starf
hennar á þessum vettvangi sé nógu
útbreitt og markvisst. Eða er mikið
starfað meðal einangraðs og einmana
fólks í söfnuðum þjóð-
kirkjunnar? Hvernig er
hægt að komast í tengsl
við fólk sem er sjúkt eða
félagsfælið? Hver sem
svörin kunna að vera er
ljóst að enginn söfnuður
getur breytt þessu innan
sinna vébanda nema að
vera í samstarfi við aðra
sem sinna þessu verkefni.
Sumir söfnuðir hafa
byggt upp heimsókn-
arþjónustu sem stundum
er einnig kölluð vinaþjón-
usta. Það er komin nokkur
reynsla af slíku starfi en
það er ástæða til að minna söfnuðina
á mikilvægi þessa starfs. Í könnun
sem undirrituð gerði í haust kom í
ljós að aðeins örfáir söfnuðir sinna
þessari þjónustu. Best er að henni
staðið í Eyjafjarðarprófastsdæmi en
á höfuðborgarsvæðinu eru aðeins 12
af 38 sóknum (32 prestaköllum) með
slíka þjónustu. Tölurnar sýna að
þetta verkefni hefur ekki notið for-
gangs.
Nú er lag að setja þetta verkefni
efst í forgangsröðina og sýna trú sína
í verki á vettvangi þar sem þörfin
öskrar á mann.
Til að rökstyðja þessa hvatningu
þarf ekki annað en að benda á hið
þekkta boðorð Jesú Krists: „Elska
skaltu náungann eins og sjálfa þig“
(Lúk. 10.27) en sú hvatning er í beinu
framhaldi af boðinu um að elska Guð.
Einnig vil að ég benda á að við öll í
kirkjunni höfum samþykkt að hefja
sókn í kærleiksþjónustu. Það var
formlega samþykkt á Kirkjuþingi
2003 eftir að vinna á öllum sviðum
innan kirkjunnar hafði farið fram.
Samþykktin heitir „Stefna og starfs-
áherslur þjóðkirkjunnar 2004–2010.“
Á árunum 2006–07 er áhersla á kær-
leiksþjónustu og þar er talið upp
starf meðal einstæðinga, heimsókn-
arþjónusta og að þjálfa sjálfboðaliða
til að sinna henni. Þá er nauðsynlegt
að ráða starfsfólk til að skipuleggja
slíkt starf og það eru margir djákna-
og guðfræðikandídatar sem gjarna
vilja sinna slíku starfi og beinlínis
bíða eftir að vera kallaðir til starfa.
Að lokum skal bent á að til er
fræðsluefni á kirkjan.is sem einnig
fæst ókeypis á biskupsstofu. (Sjá:
www.kirkjan.is/kirkjustarf/
?safnadarstarf/heimsoknarthjon-
usta).
Þar er lögð áhersla á samstarf við
aðra sem sinna fólki í heimahúsum og
því lögð áhersla á að vinna í faglegum
teymum.
Hér er tækifæri fyrir söfnuðina að
mæta lífsnauðsynlegri þörf og efla
starf sitt í kærleiksþjónustunni sem
er einfaldlega að elska náungann í
verki.
Sýnum trú í verki
Ragnheiður Sverrisdóttir
fjallar um þjónustu kirkjunnar
við einangraða
’Við þurfum öll að setja okkur sameig-
inlegt markmið sem er
að enginn lifi svo ein-
angrað að hans eða
hennar sé ekki saknað
svo vikum skipti.‘
Ragnheiður
Sverrisdóttir
Höfundur er verkefnisstjóri kær-
leiksþjónustusviðs Biskupsstofu.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn