Morgunblaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 51
MINNINGAR
Okkur langar með
örfáum orðum að
minnast vinkonu okk-
ar og samstarfskonu
Sigríðar Svövu Kristinsdóttur, sem
lést hinn 27. desember síðast liðinn.
Undanfarna mánuði höfum við
fylgst með hetjulegri baráttu hennar
við illvígan sjúkdóm sem nú hefur
lagt hana að velli. Svava sýndi mik-
inn kjark og æðruleysi í veikinda-
stríði sínu. Hún kvartaði aldrei og
stundum fannst okkur eins og hún
hefði meiri áhyggjur af líðan sinna
nánustu en sinni eigin. Velferð ást-
vina var ávallt efst í huga hennar, og
eiginmaður hennar og fjölskylda
áttu hug hennar allan.
Svava hóf störf í Bókasafni Garða-
bæjar fyrir tæplega 15 árum og
starfaði lengst af í hálfu starfi. Auk
þess að sinna útlánum og afgreiðslu í
SIGRÍÐUR SVAVA
KRISTINSDÓTTIR
✝ Sigríður SvavaKristinsdóttir
fæddist í Reykjavík
31. mars 1948. Hún
lést á Landspítalan-
um í Reykjavík að-
faranótt 27. desem-
ber síðastliðinn og
var jarðsungin frá
Vídalínskirkju í
Garðabæ 4. janúar.
Bókasafni Garða-
bæjar sá Svava um
viðgerðir og frágang á
bókum. Þessum störf-
um sinnti hún af mik-
illi alúð og samvisku-
semi. Nákvæmni og
vandvirkni einkenndu
störf hennar. Hún var
líka mjög myndarleg
húsmóðir og góður
kokkur, og þau voru
ófá skiptin sem hún
hafði með sér eitt-
hvert góðgæti með
kaffinu til að deila með
okkur vinnufélögum sínum. Tóma-
rúm hefur skapast í bókasafninu við
fráfall hennar og margir safngestir
og lánþegar eiga eftir að sakna
hennar.
Lengi ólum við þá von í brjósti að
hún myndi ná heilsu og snúa aftur til
starfa, en sú von brást og eftir sitj-
um við vanmáttug og orðlaus. Við
hefðum svo gjarnan viljað njóta
samvista við hana svo miklu lengur.
Góður félagi og vinkona er nú fallin
frá. Við kveðjum hana með söknuði
og þökkum af alhug vináttu hennar
og samfylgd. Við vottum Sigfúsi eft-
irlifandi eiginmanni hennar og öllum
aðstandendum okkar innilegustu
samúð.
Blessuð sé minning Svövu.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson.)
f.h. starfsfólks Bókasafns Garða-
bæjar,
Oddný H. Björgvinsdóttir.
Ég veit ekki hvort þú hefur,
huga þinn við það fest.
Að fegursta gjöf sem þú gefur
er gjöfin sem varla sést.
Ástúð í andartaki,
augað sem glaðlega hlær,
hlýja í handartaki,
hjarta sem örar slær,
Allt sem þú hugsar í hljóði,
heiminum breytir til.
Gef þú úr sálarsjóði,
sakleysi, fegurð og yl.
(Úlfur Ragnarsson.)
Við sendum Fúsa, Kristni, Ingi-
björgu, Garðari, Fjólu, systkinum,
barnabörnum og tengdabörnum
samúðarkveðjur og biðjum Guð að
gefa þeim styrk til að takast á við
sorgina.
Kveðja,
Saumaklúbburinn.
Í dag kvaddi ég
hana Margréti mína
þar sem hún var jarð-
sett og nú sest ég við skriftir til að
minnast hennar. Það bærast marg-
ar tilfinningar í mínu hjarta, eins
og sorg og reiði gagnvart því hvað
lífið getur verið óréttlátt. Margrét
féll frá langt fyrir aldur fram og
þurfti einnig að heyja erfiða bar-
áttu við krabbamein, sem hún háði
af miklu æðruleysi og dugnaði. Við
Margrét kynntumst haustið 2002
þegar við sóttum sjálfstyrkingar-
námskeið saman í endurhæfingar-
stöð krabbameinsdeildar Landspít-
alans í Kópavogi. Ég hafði greinst
með krabbamein og misst hönd og
var að koma mér út í lífið aftur eft-
ir þessi veikindi. Leiðir okkar Mar-
grétar lágu aftur saman ári síðar
þegar hún greindist með bein-
krabbamein og fótur hennar fjar-
lægður. Við vorum með svipaða
reynslu að baki og gátum því stutt
hvor aðra. Við skildum hvor aðra
svo vel því við fengum báðar
sarkoma-krabbamein og misstum
báðar útlim, þess vegna var auðvelt
fyrir okkur að spjalla saman því
svipaðar tilfinningar bærðust með
okkur. Enginn getur skilið þessar
aðstæður okkar til fulls nema að
lenda í þeim, þess vegna var svo
gott að hafa stuðning hvor af ann-
arri. Reyndar var Margrét mín
ekki eins lánsöm og ég og mein
hennar tók sig upp aftur og aftur.
Það var óskaplega erfitt og sorg-
legt að vera svona hjálparlaust peð
og geta ekkert gert. En ég dáðist
að dugnaði og hetjuskap hennar
allan tímann þótt ég viti að oft hafi
henni liðið illa, en alltaf var hún
samt til staðar fyrir mig hvort sem
það var á gleði- eða sorgarstund-
um. Ég eignaðist lítinn dreng í
september og hún samgladdist mér
svo innilega þótt þetta væri hennar
draumur sem hún sá ekki fram á að
rættist. Einnig var hún til staðar
MARGRÉT
JÓNSDÓTTIR
✝ Margrét Jóns-dóttir fæddist á
Akranesi 31. mars
1981. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 21.
desember síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá
Grensáskirkju 30.
desember.
fyrir mig í lok nóv-
ember þegar ég
greindist með æxli,
ekki stóð á henni og
hún kom til mín á
spítalann. Í dag ylja
ég mér við þær minn-
ingar þar sem hún
hitti son minn litla og
hélt honum í fanginu,
og ég náði að taka
margar skemmtilar
myndir af þeim sam-
an. Ekki bjóst ég við
að þessi stund yrði
okkar síðasta og ég
ætti ekki eftir að faðma hana aftur
að mér. Maður heldur alltaf að
maður hafi nægan tíma og ég vildi
óska að ég hefði náð að segja henni
þær góðu fréttir að mitt mein
reyndist góðkynja, það var orðið of
seint þegar ég reyndi að hafa sam-
band við hana. En ég hef samband
við hana í gegnum bænir og bið
fyrir henni á hverju kvöldi og
hugsa til hennar dag hvern. Ég
þakka fyrir að hafa fengið að kynn-
ast elsku Margréti minni og ylja
mér við minningarnar og þær
myndir sem ég á af henni, ham-
ingjuóskirnar um son minn sem ég
geymi ætíð í farsímanum mínum og
kveðjuna í gestabókina á heimasíðu
sonar míns á barnalandi.
Hún Margrét skilur eftir sig
stórt skarð og ég mun ávallt minn-
ast hennar. Ég vildi að við hefðum
náð að gera það sem við töluðum
um síðast þegar við hittumst, en
því miður hef ég þurft að kveðja
hana í hinsta sinn. Hvíl í friði,
elsku Margrét mín.
Ég votta Begga, unnusta Mar-
grétar, foreldrum, systkinum,
tengdaforeldrum og öðrum ástvin-
um mína dýpstu samúð. Guð varð-
veiti ykkur og styrki í þessari
miklu sorg.
Elísabet Stephensen.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
DAGUR HERMANNSSON,
Snægili 6,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 9. janúar kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vilja
minnast hans, er bent á heimahlynningu á Akureyri.
Jóna Kristín Jónsdóttir,
Aðalsteinn Dagsson, Selma Dröfn Ásmundsdóttir,
Arnar Þór Dagsson, Anja Wernay Lynge,
Ægir Þormar Dagsson,
Sonja Björk Dagsdóttir, Steinþór Örn Gunnarsson,
Dagur Fannar Dagsson, Helga Mjöll Oddsdóttir,
Ágúst Svan, Miranda og Balthazar.
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu í veikindum
og við andlát og útför okkar ástkæru móður, teng-
damóður, ömmu og langömmu,
ÖNNU JÓNU RAGNARSDÓTTUR,
Blikahöfða 5,
Mosfellsbæ.
Guð blessi ykkur öll.
Úlfhildur Guðmundsdóttir, Sveinn Val Sigvaldason,
Sigrún Guðmundsd. Fenger, Pétur U. Fenger,
Jóhannes Guðmundsson, Björg Guðmundsdóttir,
Ólafur Guðmundsson, Anna Björk Jónsdóttir,
ömmubörnin Anna Ýr, Úlfhildur, Stella, Geir Torfi,
Karitas, Kristjana, Rakel Ýr, Thelma Rut, Ólafur Ingi
og langömmubarnið Þórarinn Sigurður.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát
og útför
ÞORBJARGAR JÓNSDÓTTUR
fyrrverandi skólastjóra
Hjúkrunarskóla Íslands.
Sérstakir þakkir færum við starfsfólki Sóltúns fyrir
alúð og umhyggju síðustu árin.
Systkini og systkinabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
ARNKELS BERGMANNS GUÐMUNDSSONAR,
Dalbraut 16.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Hrafnistu við
Jökulgrunn H-2 fyrir hlýja og góða umönnun.
Hulda Guðmundsdóttir,
Ásdís J.B. Arnkelsdóttir, Róbert V. Tómasson,
Arnkell Bergmann Arnkelsson, Hulda Nanna Lúðvíksdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við ykkur, sem sýnduð
okkur samúð og vinarhug við andlát, minningar-
athöfn og útför
PÁLS HALLGRÍMSSONAR.
Svava Steingrímsdóttir,
Drífa Pálsdóttir, Gestur Steinþórsson,
Kristinn Ingvarsson, Anna Hjartardóttir
og barnabörn.
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
Elskuleg frænka okkar,
ÁSTA GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
laugardaginn 31. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
9. janúar kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svava Hjaltadóttir,
Oddný Finnbogadóttir.
Okkar ástkæru
ÓLÖF LINDA ÓLAFSDÓTTIR
og
JÓN INGI TÓMASSON
eru látin.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Theodóra Alfreðsdóttir, Þórður Júlíusson,
Ólafur Baldursson,
Jóhanna Óskarsdóttir
og fjölskyldur.