Morgunblaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐMUNDA ÞORBJÖRG JÓNSDÓTTIR
frá Kjörvogi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn
9. janúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabba-
meinsfélagið.
Alda Guðjónsdóttir, Ásgeir Gunnarsson,
Laufey Kristinsdóttir,
Elísabet Guðjónsdóttir, Bragi Eggertsson,
Sólveig Guðjónsdóttir,
Guðmundur H. Guðjónsson, Dagný Pétursdóttir,
Guðrún M. Guðjónsdóttir, Óskar Pétursson,
Haukur Guðjónsson, Vilborg G. Guðnadóttir,
Fríða Guðjónsdóttir, Karl Ómar Karlsson
Rannúa Leonsdóttir,
Kristín Guðjónsdóttir, Þórir Stefánsson,
Daníel Guðjónsson, María Ingadóttir,
Þuríður H. Guðjónsdóttir, Garðar Karlsson,
ömmubörn og langömmubörn.
Okkar ástkæra,
BRYNJA SIGURÐARDÓTTIR,
Reynimel 72,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 5. janúar.
Útför Brynju verður gerð frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 13. janúar kl. 13.00.
Erla Ingadóttir, Húnbogi Þorsteinsson,
Erla Inga Hilmarsdóttir, Dagbjartur Eiður Ólafsson,
Brynja Rán Eiðsdóttir,
Þorfinnur Hilmarsson,
Sigurður Sigurðsson,
Guðný Björk Hauksdóttir,
Þorsteinn Húnbogason, Siv Friðleifsdóttir,
Védís Húnbogadóttir, Snorri Bergmann.
Nú ertu farin Þóra
mín. Síðast þegar ég
kom til þín í lok september gerði
ég mér grein fyrir því hvað þrek
þitt var að fjara.
ÞÓRA STEINUNN
STEFÁNSDÓTTIR
✝ Þóra SteinunnStefánsdóttir
fæddist á Arnar-
stöðum í Núpasveit í
Norður-Þingeyjar-
sýslu 12. maí 1920.
Hún lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
19. október síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Garðskirkju í
Kelduhverfi 29.
október.
Fyrstu kynni okkar
voru þegar þú fluttir
1990 í Smyrilshóla 2.
Mér var sagt að það
væri kominn nýr íbúi
í húsið. Ég ákvað að
hringja bjöllunni til
að bjóða hann vel-
kominn í húsið. Á
móti mér tók glaðleg
og vinaleg kona.
Kynni okkar og vin-
skapur tókust strax.
Margar góðar stundir
áttum við saman á
þínu fallega og
snyrtilega heimili,
annað hvort prjónandi eða yfir
kaffibolla og spjalli. Þá má ég til að
þakka þér þegar þú stóðst með
mér í sláturgerðinni, því þar var ég
algjör viðvaningur. Ekki má
gleyma því þegar þú varst að fara á
mannamót eða annað, hvað þú
varst alltaf flott í tauinu, því alltaf
áttir þú fín föt. Handavinna var þér
mikið yndi og þú varst dugleg að
fara í Gerðubergið í útsaum og
postulínsmálun, komst alltaf með
eitthvað fallegt heim þaðan. Þegar
þú fluttir úr Smyrilshólunum í
Lönguhlíðina, fannst mér mikill
söknuður að þér, ekki var hægt að
skreppa í kaffi til Þóru. Ég var
ákveðin í að halda okkar vinskap
traustum og þegar ég kom í heim-
sókn í Lönguhlíðina var alltaf strax
lagað kaffi.
Elsku Þóra mín, ég kveð þig
núna með það í huga að þér líði vel.
Alltaf mun ég minnast góðrar og
hjartahlýrrar konu.
Kveðja frá Þráni, við vottum
börnum Þóru og öðrum aðstand-
endum samúð. Þín vinkona,
Brynhildur.
Með fáeinum
kveðjuorðum vil ég
minnast Magnúsar,
fyrrverandi starfs-
manns í mælastöð Rafmagnsveit-
unnar sálugu en hann hefur nú kvatt
eftir langt og farsælt ævistarf.
Það varð hlutskipti Magnúsar að
starfa alla tíð hjá sama fyrirtækinu,
jafnvel þótt annað byðist sem var
betur borgað og er þá átt við seinni
stríðsárin þegar menn héldust illa í
vinnu. En tryggð Magnúsar við sinn
vinnuveitanda segir kannski meira
en mörg orð og lýsir best heilindum
hans og trúmennsku sem var ein-
kennandi fyrir hans lífsstíl.
Tveimur árum eftir að hann var al-
kominn til landsins frá Kanada hóf
hann fyrst störf við Elliðaárnar og
síðar við Sogið sem þá var nýbúið að
virkja. En hann skipti um starfsvett-
vang innan fyrirtækisins og gerðist
starfsmaður í mæladeild sem þá var
til húsa í rishæð Slökkvistöðvarinnar
við Tjarnargötu 12 þar sem hann
starfaði næstu árin.
Árið 1950 flutti starfsemi mæla-
stöðvar í nýbyggt hús í Aðveitustöð
við Meistaravelli og þar bar fundum
okkar Magnúsar fyrst saman, en
starfsdeild okkar spennistöðvar-
manna sem ég tilheyrði hafði aðsetur
fyrir efni og verkfæri í suðurhluta
hússins, auk þess sem þar var líka í
sama húsi skiptistöð sem þjónaði
Vesturbænum.
MAGNÚS MÁR
SIGURJÓNSSON
✝ Magnús MárSigurjónsson
fæddist að Wynyard
Sask 21. október
1916. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 29. nóvem-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Kópavogskirkju
7. desember.
Það var því stutt að
fara til að blanda geði
við Magnús og mæla-
stöðvarmenn.
Magnús starfaði í
rúm fjörutíu ár á
mæladeildinni og var
verkstjóri þar síðustu
tólf árin. Vinna við
mælapróf og viðgerðir
á mælum er mjög sér-
hæft starf og krefst
mikillar nákvæmni því
á þessum árum voru
tækin frumstæð. Í við-
tali við Sigurð Guð-
mundsson rafiðnaðarfræðing sem
birtist í Línunni, fréttabréfi Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, segir m.a.:
„Þetta er eftirminnilegur tími frá
þessum árum. Við höfðum engin
sjálfvirk tæki eins og tíðkast í dag.
Allt var handreiknað á reiknistokk.
Ég var með samanburðarmæli svo
varð ég að reikna út prósentur í
skekkju og telja snúninga. Þetta
varð mannsaugað að rjúfa og
kveikja. Var þessi aðferð viðhöfð þar
til að við fengum nýtt prófunarborð
frá Siemens. Það prófunarborð var
tekið í notkun í fyrsta skipti 18. júní
1980 og var eftirminnilegur dagur
hjá okkur starfsmönnum mæla-
stöðvar.“
Eitt stærsta áhugasvið Magnúsar
var tengt tónlist. Hann spilaði í
Lúðrasveit Reykjavíkur í tugi ára
við ýmsar athafnir í bæjarlífi
Reykjavíkurborgar og var um árabil
formaður Lúðrasveitar Reykjavík-
ur, meðstjórnandi og gjaldkeri. Þá
var hann lengi lausráðinn við Sinfón-
íuhljómsveit Íslands.
Magnús var safnari í eðli sínu.
Hann henti helst engu sem tengdist
starfinu, hélt eftir eintaki af öllum
rafmagnsmælum sem höfðu verið í
notkun hjá Rafmagnsveitunni frá
fyrstu tíð. Með merkilegri munum
sem eru vistaðir á Minjasafni Orku-
veitunnar er hemilprófunartafla sem
prófaði og stillti hemlamælana sem
voru notaðir í árdaga rafmagnsins.
Starfsemi mæladeildar var fyrst til
húsa í Kaupangi við Lindargötu á
móts við Vitastíg. Þar hefur nú risið
hús aldraðra. Þá hefur einnig varð-
veist mælaprófunarborð til að prófa
Kwh mæla en það var keypt til
landsins 1925. Var þá ráðinn sænsk-
ur tæknifræðingur, fröken Martha
Hulqist, til að starfa við mælaprófun.
Hún starfaði hjá Rafmagnsveitunni
til ársins 1932.
Að sögn eins elsta starfsmanns
RR vakti koma hennar til RR nokkra
athygli starfsmanna. Tuttugu og
fimm ára kventæknifræðingur með
óvenju fallegt rautt hár var næg
ástæða til að hækka blóðþrýsting
ungs manns á þeim árum. Einnig
unnu við þetta mælaprófunarborð
um tíma, þegar mælaprófun var í
Edinborgarhúsinu, þeir Jakob Guð-
johnsen verkfræðingur og síðar raf-
magnsstjóri, Júlíus Björnsson, síðar
umsjónarmaður á Barónsstíg 4 og
Haraldur Lárusson sem starfaði við
mælingaprófunarborðið þegar hann
kom til starfa 1938. Mæladeildin var
þá í Tjarnargötu 12.
Það er ekki síst að þakka árvekni
Magnúsar, starfsmönnum mæla-
deildar og skilnings yfirmanna á
varðveislugildi þessa gömlu tækja,
að þessum munum var bjargað, en
ekki hent, þegar tækin voru endur-
nýjuð. Svo heppilega vildi til að ná-
inn samstarfsmaður Magnúsar í
mæladeild kom til samstarfs við
Minjasafn Orkuveitunnar og flokk-
aði og skráði mælana sem Magnús
hafði bjargað frá glatkistunni. Veit
ég fyrir víst að það gladdi Magnús að
sjá að mælunum var sýnd sú virðing
sem þeir áttu skilið þegar hann
heimsótti Minjasafnið nokkrum
mánuðum fyrir andlát sitt.
Við vinir hans og samstarfsmenn
munum minnast góðs manns með
þökk og virðingu og vottum eigin-
konu, börnum og ættingjum innilega
samúð okkar.
Guðmundur K. Egilsson.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Ef útför hefur farið fram eða grein
berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar sem
pláss er takmarkað getur birting
dregist, enda þótt grein berist áð-
ur en skilafrestur rennur út.
Undirskrift Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningar-
greinar
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HELGI INGVAR VALDIMARSSON
frá Fosshóli,
Miðfirði,
Brekkubyggð 93,
Garðabæ,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 3. janúar.
Jarðsungið verður frá Garðakirkju þriðjudaginn 10. janúar kl. 13.00.
Bryndís Stefánsdóttir,
Jónína Helga Helgadóttir, Kristinn Gunnarsson,
Þorsteinn Baldur Helgason, Ásta Sveinsdóttir,
Valdimar Helgason, María Sif Númadóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
HULDA SIGMUNDSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 10. janúar kl. 13:00.
Sverrir Már Sverrisson, Kolfinna Sigurvinsdóttir,
Hulda Sverrisdóttir, Gauti Arnar Marinósson,
Rannveig Sverrisdóttir, Kjartan Þórðarson,
Sólrún Sverrisdóttir, Baldur Þór Vilhjálmsson,
Kolfinna, Rebekka og
Aþena Gautadætur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÁRNI VILHELM JÓNSSON,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti fimmtudaginn
5. janúar sl.
Hulda Bjarnadóttir,
Hrafnhildur Árnadóttir, Svavar Þorvaldsson,
Bjarni Árnason, Margrét Stefánsdóttir,
Arna Svavarsdóttir, James R. Brown,
Árni Hrafn Svavarsson, Hrönn Skaptadóttir,
Hulda Bjarnadóttir
og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
DANÍEL D. BERGMANN
fv. bankaútibússtjóri,
Langagerði 82,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn
9. janúar. Athöfnin hefst kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd.
Kristbjörg Þ. Bergmann,
Kristín Bergmann, Gabriel A. Espi Moro,
Þórður Daníel Bergmann, Kristín Valtýsdóttir,
Sigríður Bergmann, Guðjón Sívertsen,
barnabörn og langafabarn.