Morgunblaðið - 08.01.2006, Síða 33
„Þetta var tíu ára púl og maður
varð að passa börnin sín sjálfur. Ég
fékk sogæðabólgu eftir eina fæð-
inguna og var mikið veik.
Ég lá og gat ekki gengið. Þá lækn-
aði Jónas Kristjánsson mig. Hann
var sóttur í fjarveru heimilislæknis
míns. Hann spurði hvað ég hefði leg-
ið lengi og þegar ég sagði honum að
ég væri búin að liggja í nokkra mán-
uði dreif hann mig í bað, vafði mig
svo inn í teppi og nuddaði fótinn á
mér á eftir. Hann kom á hverjum
degi í hálfan mánuð og eftir það gat
ég farið að nota fótinn. Þetta var ár-
ið 1942 og Jónas var nýkominn frá
Sauðárkróki þar sem hann hafði ver-
ið læknir, kominn á eftirlaun og bjó
á Grettisgötunni.
Um leið og ég komst á fætur fór
ég til Jónasar, maðurinn minn
keyrði mig til hans á morgnana og
sótti mig í hádeginu. Og einn daginn
þegar sól skein gat ég gengið heim,
frá Grettisgötu og upp á Leifsgötu,
þá var komið vor.
Það var afskaplega gaman að
hitta þennan lækni, við töluðum svo
mikið saman því hann hafði þá ekki
svo mikið að gera. Hann kenndi mér
að setja hveitiklíð í hafragrautinn og
búa til krúsku, ég hef haldið upp á
það alla tíð síðan og þennan lækni.
Ég átti um þetta leyti bágt með að
fá góða mjólk, þá var Mjólkursam-
salan að byrja með gerilsneydda
mjólk sem ég vildi ekki, ég hafði
lengstum keypt nýmjólk hjá Geira í
Eskihlíð en ég átti ekki gott með að
sækja hana. Þá komst ég að því að
maður einn hafði pláss fyrir kú en
hafði ekki ráð á að kaupa hana. Ég
keypti kú og hún var í fjósi hjá karl-
inum. Úr henni fékk ég senda mjólk,
– en þetta var dýr kýr, maðurinn
sem hafði kúna var alltaf að biðja um
meiri og meiri peninga fyrir heyi
handa henni. Ég borgaði því mikið
fyrir þá mjólk. En svo frétti ég að
hann hefði að lokum farið að kaupa
samsölumjólk og setja í brúsann. Þá
hætti þessi útgerð mín með kúna og
vissi ég aldrei hvað varð um hana, en
oft skemmtum við okkur yfir kúa-
kaupunum og útgerðinni á kúnni,“
segir Þóra.
Vinndu það úr þér góða mín
Ég spyr Þóru hvernig henni líði á
Hrafnistu.
„Mér líður hér ágætlega. Auðvitað
var erfitt að fara úr húsinu sínu en
þegar maður getur ekki verið einn
og vill ekki vera einn er gott að fara
inn á svona stað. Mér finnst þó
óskaplega gaman að fara eitthvað
út. Þegar einhver heimsækir mig
segi ég gjarnan: „Komum eitthvað
og fáum okkur kaffi.“ Þá fer maður
kannski í Smárann og fær sér
súkkulaði. Gömlu vinkonur mínar
eru flestar dánar, allar nema Bára
mín Sigurjónsdóttir, en aðrar hafa
tekið við.“
Ég spyr um trúmál.
„Ég hef mína barnatrú og les mín-
ar bænir, ég var alin upp við svo
mikinn bænalestur að ég þekki allar
bænir sem verið er að lesa í útvarp-
ið,“ svarar Þóra stuttlega.
„Það kemur alltaf eitthvað fyrir
mann sem maður ekki skilur. Mig
dreymdi oft fyrir ýmsu sem gerðist
en sá það þó ekki fyrr en síðar. Ég
hef alltaf verið með fæturna á jörð-
inni og notað það sem mamma
kenndi mér: „Vinndu það úr þér
góða mín, besta ráðið er að vinna,“
sagði hún ef ég var leið. Maður var
alinn upp við að vera ekki upp á aðra
kominn. Strákarnir mínir voru líka
vandir við að vinna. Við hjónin efn-
uðumst, það er ekkert einkennilegt
við það, það efnast allir sem nenna
að vinna myrkranna á milli og fara
vel með.“
Þóra hefur sem fram hefur komið
mikla reynslu af stjórnun, hvað
skyldi hún telja mikilvæga eiginleika
starfsmanns?
„Ég hef unnið nær eingöngu með
konum og þær eru eins misjafnar og
þær eru margar, en hitt veit ég að ef
allir ættu að fá sömu laun myndi
enginn skara fram úr. Ef fólk er hins
vegar í akkorði þá skal það fá tvöföld
laun áður en maður veit af. Þetta
sannreyndi ég. Það var t.d. stúlka
hjá mér einu sinni sem var óánægð.
Verkstjórinn hvatti mig til að halda
henni áfram. Ég setti hana í að
sauma slankbelti í akkorði. Hún
komst í tvöföld laun og lék sér að
því.
Mikilvægasti eiginleiki starfs-
manna er að mínu mati að þeir vinni
með sínu fyrirtæki. Ég fór á árum
áður oft inn hjá Silla og Valda á
Laugavegi til að kaupa kaffi nýmal-
að. Svo kom stelpa þangað í vinnu
sem vildi ekki mala fyrir mig. „Ég
hef svo mikið að gera,“ sagði hún.
„Jæja, láttu mig þá hafa pakka, en
ertu ekki ánægð með að hafa svona
mikið að gera?“ sagði ég. Hún vildi
vita af hverju hún ætti að vera það.
„Nú þá græða Silli og Valdi,“ svaraði
ég. „Mér sama hvort þeir græða, ef
ég fæ bara mitt kaup.“
Þessi stúlka varð seinna verslun-
arstjóri, þá kom annað hljóð í
strokkinn, þá vildi hún að verslunin
gengi vel.“
En hverjir eru mikilvægir eigin-
leikar stjórnanda?
„Það er erfitt að vera góður
stjórnandi, maður má aldrei æsa sig.
Maður verður að halda ró sinni, ef
ég varð þreytt og pirruð fór ég burt.
Ég vildi hafa það eins og þar sem ég
vann í Danmörku. Verkstjórinn þar
bretti aðeins brýrnar – sagði aldrei
neitt, – það dugði. En þar var líka at-
vinnuleysi, hver stúlka sem hafði
vinnu taldi sig hólpna. Það er allt
annað að hafa fólk í atvinnuleysi eða
þegar nóg er um vinnu. Ef það er
mikið um atvinnu hefur þú lélegt
fólk – ef það er lítið um vinnu þá hef-
ur þú gott fólk.
Ég tók eftir því að eftir að veik-
indadagarnir komu til þá fóru stúlk-
urnar að vera miklu oftar veikar en
áður – nema ein, hún var aldrei veik
þótt hinar væru það. Þegar hún fór í
sumarfrí borgaði ég henni út veik-
indadagana.“
Blaðamaður spyr að lokum: Ef þú
ættir að velja upp á nýtt – hvað
myndir þú þá taka þér fyrir hendur?
„Ég myndi fara í það sama, ég
lenti á réttri hillu,“ svarar Þóra hik-
laust og brosandi.
gudrung@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 33
www.urvalutsyn.is
Nánari uppl‡singar um fer›ir ásamt l‡singum á hótelum
er a› finna á www.urvalutsyn.is
Úrval-Útsýn, Lágmúla 4: 585 4000 – Akureyri: 460 0600 – Vestmannaeyjum: 481 1450
Kenya 11.–22. apríl
Einungs 5 vinnudagar!
Leiguflug með Loftleiðum Icelandic
Fundur um Kenya
12. janúar, kl. 20.00
Salur H – Hótel Nordica
Luxor
l siferðir
Luxor í 9 daga
Verð: 89.920** kr.
á mann í tvíbýli í 9 nætur
á Sheraton Luxor.
Luxor og sigling á Níl
Verð: 109.920*** kr.
á mann í tvíbýli í 5 nætur á Sheraton
og 4 nætur á Royal Regency.
* Innifalið: Leiguflug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting skv. ofangreindu og íslensk fararstjórn.
** Innifalið: Beint leiguflug, akstur til og frá hóteli erlendis, gisting m/morgunverði í 9 nætur og íslensk fararstjórn.
*** Innifalið: Sama og ofangreint, nema 5 nætur í Luxor og sigling með fullu fæði og skoðunarferðum.
Verð m.v. netbókun og VISA-greiðslu.
á framandi slóðir
Ævintýralegar ferðir á framandi og heillandi slóðir
undir íslenskri fararstjórn, fyrsta flokks gisting,
frábærar veitingar, dásamlegt veðurfar og umhverfi
sem lætur engan ósnortinn.
VISA-ferðir til Egyptalands og Kenya í leiguflugi
með Loftleiðum Icelandic
Egyptaland – Luxor
9 daga ferð 21.–30. apríl Beint leiguflug með Loftleiðum Icelandic
Verð: 154.420* kr.
á mann á Indian Ocean Club.
Innifalið hálft fæði.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
08
83
1/
20
06
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn