Morgunblaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA Árið 2005, sem í minn-ingunni virtist byrjaí gær, hvarf fyrirrúmri viku í móðualdanna. Margt bar það í faðmi sínum, góða hluti og vonda, eins og öll hin sem á undan fóru. Erum við ánægð með störf okkar á vettvangi jarðlífsins og í þágu Guðsríkisins á liðnum mánuðum? Eða hefði mátt gera öðruvísi á stundum og betur? Og var einhver með í þeim ferð- um, e.t.v. hjálparinn mesti og besti, eða var einungis treyst á eigið hyggjuvit? „Tíminn líður hratt á gervi- hnattaöld“, söng íslenska þjóðin á 9. áratug síðustu aldar, og víst er, að það var bæði satt og rétt. Og þegar árunum fækkar, sem einstaklingurinn hefur til ráð- stöfunar hér á jörð, í bland við þennan gígantíska hraða nú- tímans, er okkur nauðsynlegt að velta því fyrir okkur, hvernig best sé að nýta það sem eftir er af ævinni. Ég rakst fyrir skemmstu á mjög ágengt ljóð, eftir Önnu S. Björnsdóttur, en það kom út í bókinni „Yfir hæðina“ árið 2004 og nefndist Á heiðum. Það er svona: Tvö fjallavötn stara skærum augum til himins þau spyrja ekki um hvernig þau eigi að vera bara eru silfurlitur fiskur syndir glaður í grunnu vatninu augu hans leita einnig til himins Hvert horfa augu þín þegar rökkvar Síðustu orðum ljóðsins beini ég nú til þín og mín, í upphafi ársins 2006. Hvert ætlum við að líta, þegar kvöldið nálgast? Er það til himins, eða eitthvert annað? Þú munt aldrei koma til með að þurfa að glíma við mik- ilvægari spurningu en einmitt þessa. E.t.v. er megn og sár óánægja í huga þér með gengin spor hingað til, og þér finnst erfitt að horfa í spegilinn eða framan í náunga þinn á götunni. Þessi vist ekkert nema mistök, allt dimmt, kalt og vonlaust. En þá skaltu vita, að svo er ekki. Langt því frá. Alf Prøysen (1914–1970) er án efa einhver þekktasti vísna- söngvari Norðmanna fyrr og síðar. Einn af kunnustu textum hans fjallar um lítinn dreng sem grætur, af því að hann er óánægður með teikninguna sína. Svo að hann eyðileggur blaðið og fleygir því. Í sömu andrá heyrist þytur í lofti, og rödd segir eitthvað á þessa leið: „Á morgun færðu annað tækifæri, nýjan dag sem er hreinn og al- veg ónotaður, nýja örk og liti með. Og þá geturðu lagfært það sem aflaga fór í gær og kemur til með að líða vel annað kvöld. En verðirðu ekki ánægður með afraksturinn, ef allt er við það sama, hlustaðu þá á röddina, sem aftur mun hvísla yfir furu- trénu: Á morgun færðu annað tækifæri, nýjan dag sem er hreinn og alveg ónotaður, nýtt blað og liti að auki.“ Sagan er um þig. Við höldum til móts við nýtt ár með óþekktar stundir og daga, erum að leggja út á ókunnar slóðir. Öldur munu rísa og stormar blása í lífi okkar, og á hafi mannlífsins víða um heim. En við skulum ekki gefast upp, því á morgun er nýr dagur og tækifæri. Reynum að nota tím- ann betur en við gerðum á síð- asta ári og kannski þar á undan líka. Endurskoðum þá forgangs- röð, sem verið hefur. Lítum okkur nær, til fjölskyldu, vina og samferðafólksins. Og hugum að því sem eilífðinni tilheyrir, að Guði og englum hans. Og minn- umst herskaranna, safns tím- anna. Þeirra, sem á undan eru farin, og eru í ljósinu. Andi minn stefnir þangað. Vonandi þinn líka. Ég lýk þessum hugleiðingum á gömlu kvæði, þýddu úr sansk- rít. Megirðu, lesandi minn, geyma það í hjarta og sál á veg- inum þínum á hinu nýhafna ári, minnast þess hverja stund: Gæt þessa dags, því að hann er lífið sjálft. Í honum býr allur veruleikinn og sannleikur tilverunnar, unaður vaxtar og grósku, dýrð hinna skapandi verka, ljómi máttarins. Því að gærdagurinn er draumur og morgundagurinn hugboð, en þessi dagur, sé honum vel varið, umbreytir hverjum gærdegi í verðmæta minningu og hverjum morgundegi í vonarbjarma. Gæt því vel þessa dags. Nýr dagur Við áramót er öllum hollt að líta um öxl og rýna í sporin, athuga hjartað og ávexti þess. Og margir landsmenn hafa eflaust gert þetta nýverið. Sigurður Ægisson er einn af þeim, og veltir m.a. fyrir sér í þessum pistli glötuðum tækifærum. sigurdur.aegisson@kirkjan.is ÞÚ ERT ÞAÐ SEM ÞÚ REYKIR Skordýraeitur, etanól, tjara, blásýra, ammoníak, arsenik, aceton, kvikasilfur, brennisteinsvetni, kveikjarabensín, blý, eldflaugaeldsneyti, kolsýringur o.fl. Bridsfélag yngri spilara Yngri spilara æfingar eru á mið- vikudögum í Síðumúla 37, 3. hæð. Byrjum aftur eftir jólafrí 11. janúar. Kl. 18–19.30 eru léttar æfingar og spjall. Kl. 19.30–22.30 er spilaður tví- menningur eða sveitakeppni. Spilað um bronsstig. Þátttaka er ókeypis. Tilvalið fyrir þá sem hafa stigið sín fyrstu skref t.d. í heimahúsum eða á bridsnámskeiðum í framhaldsskól- um og vilja læra meira og æfa sig að spila. Létt og skemmtileg stemmn- ing. Bridsfélag Hafnarfjarðar Bridsfélag Hafnarfjarðar byrjar aftur að spila mánudaginn 9. jan með léttri eins kvölds upphitun. Síðan hefst Aðaltvímenningur. Stjórn BH óskar öllum fé- lagsmönnum árs og friðar og vonast eftir að sjá sem flesta á nýju ári. Vel heppnað mót á Akureyri Íslandsbankamótið er alltaf vin- sælt milli hátíða hér á Norðurlandi eystra og ávallt er gaman að sjá hversu margir láta sjá sig frá ná- grannabyggðarlögum. Fyrirkomulagið var Monrad-tví- menningur með tólf fjögurra spila umferðum eða 48 spil. Glæsileg flug- eldaverðlaun voru að venju auk ým- issa aukaverðlauna. Sigurvegararnir tóku fljótlega for- ystu og breikkaði bilið smám saman. Þeir fengu víst enga mínussetu allt kvöldið. Parinu í 2. sæti var líka vel fagnað. Lokastaðan: 1. Reynir Helgason - Sigurbjörn Haraldsson 63,3% 2. Hans Viggó Reisenhus - Sigurgeir Gissurarson 56,0% 3. Guðmundur Halldórsson - Sveinn Aðalgeirsson 55,4% Nánari úrslit má finna á bridge.is Gullsmárabrids Gullsmárar spiluðu tvímenning á þrettán borðum á fyrsta spiladegi nýs árs, fimmtudaginn 5. janúar. Miðlungur 168. Beztum árangri náðu í NS Þórhildur Magnúsd. - Helga Helgad. 211 Sigtryggur Ellertss. - Tómas Sigurðss. 209 Eysteinn Einarsson - Jón Stefánsson 197 Aðalbj. Benediktss. - Leifur Jóhanness. 170 AV Páll Ólason - Elís Kristjánsson 202 Dóra Friðleifsdóttir - Jón Stefánsson 199 Einar Markússon - Steindór Árnason 197 Haukur Ísaksson - Ernst Backmann 194 Eldri borgaraar spila brids í fé- lagsheimilinu í Gullsmára 13 alla mánu- og fimmtudaga. Bridsfélag Kópavogs Fyrsta spilakvöld ársins var eins kvölds tvímenningur. Hæstu skor fengu í NS: Bernódus Kristins. - Hróðmar Sigurbjs. 186 Ingvaldur Gústafs. - Úlfar Ö. Friðriks. 178 Hrafnhildur Skúlad. - Soffía Daníelsd. 178 AV Ármann J. Láruss. - Hermann Láruss. 183 Björn Jónsson - Þórður Jónsson 181 Hannes Sigurðsson - Helgi Tómasson 175 Næsta fimmtudag hefst þriggja kvölda Butler-tvímenningur. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Innihaldið skiptir máli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.