Morgunblaðið - 08.01.2006, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 55
EIN UMFERÐ er ótefld í Hast-
ings, þegar þetta er skrifað. Rúss-
neski stórmeistarinn, Valerij Neve-
rov, er efstur, hefur 7½ v. í 9 skákum.
Í 2.–3. sæti eru stórmeistaranir Me-
rab Gagunashvíli (Georgíu) og Milos
Pavlovic (Serbíu og Svartfjallalandi),
með 7 v. hvor. Alþjóðlegi meistarinn,
Stefán Kristjánsson, er efstur af Ís-
lendingunum, hefur 6 v. og er í 8.–16.
sæti, m.a. jafn stigahæsta manni
mótsins, rússneska stórmeistaranum
Vladimir Belov.
Hinir Íslendingarnir eru í þessari
stöðu: Snorri G. Bergsson og Guð-
mundur Kjartansson hafa 5 v. hvor,
Jón Viktor Gunnarsson, alþjóðlegur
meistari, hefur 4½ v. og Dagur Arn-
grímsson 4.
Stefán hefur teflt við nokkra af
sterkustu mönnum mótsins og verið í
toppbaráttunni, en hann tapaði mik-
ilvægri skák fyrir Pavlovic í 9. um-
ferð. Snorri hefur siglt á nokkuð
jafnri ferð í gegnum mótið og sama
má segja um Guðmund. Jón Viktor
hefur ekki haft meðbyr og Dagur
missti flugið, eftir ágæta byrjun.
Á mótinu í Hastings eru skákmenn
af öllum styrkleika eins og oftast er í
opnum skákmótum. Það getur þess
vegna verið happdrætti, við hverja
menn tefla, en stig andstæðinganna
skipta öllu máli, þegar menn eru að
reyna að ná áföngum að alþjóðlegum
titlum. Íslensku skákmennirnir hafa
einmitt lent í því að tefla við nokkra
stigalága skákmenn og afleiðingin er
sú, að allar áfangavonir eru að engu
orðnar. Snorri hefur staðið sig best,
miðað við stig, en auðvitað hefur
Stefán einnig staðið vel fyrir sínu,
þótt næsti áfangi að stórmeistaratitli
verði að bíða betri tíma.
Við skulum nú sjá skemmtilega
skák úr 6. umferð, þar sem Stefán
leggur enska FIDE-meistarann Ro-
bert Eames frá Englandi.
Hvítt: Stefán Kristjánsson
Svart: Robert Eames
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5 4. Rf3
Rc6 5. Bc4 Rb6 6. Bb3 c4 7. Bc2 Dc7
8. De2 g5!? 9. e6 dxe6 10. Rxg5 De5
11. d4 cxd3 12. Bxd3 Bh6!?
Nýr leikur. Þekkt er 12. …
Dxe2+, t.d. 13. Bxe2 h6 14. Re4 e5
15. 0–0 Bf5 16. Rbd2 Bg6 17. a4
o.s.frv. (Morozevitsj-Lautier,Cannes
2002).
13. h4 Dxe2+ 14. Kxe2 Bd7 15.
Ra3 Re5 16. Be4 Rd5 17. c4 Rb4 18.
Bd2a5?
Eftir þennan leik situr svartur
uppi með þrípeð á
e-línunni, veikleika, sem gerir
stöðu hans mjög erfiða í framhaldinu.
19. Bc3! f6 20. Bxe5 fxe5 21. Bxh7
–
21. – 0–0–0 22. Be4 Bxg5 23. hxg5
Hhg8 24. Hh5 Be8 25. Hh6 Bc6
Svartur gat auðvitað drepið peðið
á g5, en hvítur hefði svarað með 26.
Hg1og átt mun betri stöðu, vegna
þess hve þrípeðið á e5 nýtist svarti
illa.
26. Bg6 Hdf8 27. Kf1e4 28. Rb5
Rd3 29. Ra7+ Kc7 30. Rxc6 –
30. … Rxf2
Eftir 30. … Hxf2+ 31. Kg1 bxc6
32. Bxe4 Hxg5 33. Bxd3 Hgxg2+ 34.
Kh1 Hxb2 35. Hxe6 Hxa2 36. Hxa2
Hxa2 37. Be4 He2 38. Hxc6+ Kd7 39.
Bf3 He3 40. Bg2 á hvítur vinnings-
stöðu.
31. Rxe7 Rg4+ 32. Kg1 Rxh6
Önnur leið er 32. … Hg7 33. Hf1
Hxf1+ 34. Kxf1 Hxe7 35. Hh7 Kd8
36. c5 Re5 37. Bxe4 Hxh7 38. Bxh7 og
hvítur á auðunnið endatafl með bisk-
up á móti riddara og frípeð á báðum
vængjum.
33. gxh6 Hh8 34. h7 Kd6 35. Rg8
Hf4 36. Rh6 Ke5 37. Hf1
og svartur gafst upp, því að hann á
gjörtapað tafl, eftir 37. – Hxf1+ 38.
Kxf1 Kf6 39. Rf7 Kxg6 40. Rxh8+
Kxh7 (40. – Kg7 41. Rf7) 41. Rf7
o.s.frv.
Að lokum er rétt að minna á, að
Skákþing Reykjavíkur hefst á morg-
un, sunnudaginn 8. janúar, og er teflt
í Skákheimili TR, Faxafeni 12.
Neverov
efstur í Hast-
ings fyrir
síðustu umferð
SKÁK
Hastings, Englandi
HASTINGS MASTERS
28. desember 2005 – 6. janúar 2006
Bragi Kristjánsson