Morgunblaðið - 31.01.2006, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 19
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
LANDIÐ
Reykjanesbær | „Ég er alveg ákveðinn í því
að bíða. Ég á líka reynslu af því að eiga
yngri systur svo ég veit ýmislegt um barna-
uppeldi,“ sagði Andri Már Þorsteinsson í
samtali við Morgunblaðið en hann hefur
tekið þátt í forvarna- og fræðsluverkefninu
„Hugsað um barn“ í Njarðvíkurskóla.
Nú í febrúarbyrjun hefjast á ný forvarna-
og fræðsluverkefnið „Hugsað um barn“ en
það er verkefni fyrir nemendur í 8. bekk í
grunnskólum Reykjanesbæjar. Það er ÓB
ráðgjöf sem stendur fyrir verkefninu en til-
gangur þess er að vekja ungt fólk til um-
hugsunar um afleiðingar kynlífs. Jafnframt
er leitast við að hafa áhrif á að það byrji að
stunda kynlíf eldra en nú þekkist og af
meiri ábyrgð. En þó afleiðingar kynlífs séu
mest áberandi í verkefninu þá er „Hugsað
um barn“ allsherjar forvarna- og fræðslu-
verkefni. Þátttakendur fá ekki síður að vita
um áhrif áfengis, reykinga og fíkniefna á líf
þeirra og þroska.
„Börn vita oft ekki hvernig þau eiga að
fresta því að stunda kynlíf og nota fíkniefni.
Þau eiga jafnvel eldri systkini sem eru farin
að stunda kynlíf og það hefur auðvitað
áhrif. Það er mjög flókið að eiga ungling í
dag í öllu því áreiti sem er, en þá er bara
okkar foreldra að standa okkur, setja reglur
og veita þeim uppbyggilegt aðhald. Ef þau
bíða þá eiga þau meiri möguleika á því að
verða stór,“ sagði Ólafur Gunnar Grét-
arsson, ráðgjafi og annar eigenda ÓB ráð-
gjafar á kynningarfundi í Njarðvíkurskóla í
liðinni viku. Hann sagði jafnframt að verk-
efnið hafi sannað sig sem gríðarlega áhrifa-
ríkt forvarnaverkefni á sviði heilsueflingar
og félagsfærni þar sem það hefur verið
reynt.
Mjög truflandi
Þátttakendur fá dúkku, stúlku eða dreng,
með sér heim yfir helgi, dúkku sem hefur
verið forrituð til að líkja eftir þörfum raun-
verulegs barns. Hver þátttakandi fær
dúkku með sín ákveðnu einkenni og við
„foreldrið“ er fest armband sem tengist
umönnun þess. Það þarf að stimpla sig inn
og út þegar það sinnir dúkkunni. Ef dúkk-
unni er ekki sinnt á umræddu tímabili þá
kemur það fram í forriti hennar og hefur
áhrif á einkunn þátttakenda fyrir verkefnið.
„Þetta er þannig að dúkkan fer að gráta
og maður þarf að athuga hvað er að. Það
getur verið að hún þurfi að drekka, láta
skipta á sér, hugga sig eða ropa,“ sagði
Andri Már Þorsteinsson, einn þátttakenda, í
samtali við blaðamann. Andri Már tók þátt í
verkefninu síðasta vetur ásamt bekkj-
arsystkinum sínum. Fyrsta nóttin reyndist
auðveldari og óvenjulegri en þátttakendur
hafa almennt upplifað. „Fyrstu nóttina sem
ég tók þátt var Forvarnanótt í félagsmið-
stöðinni Fjörheimum og við þurftum að
taka dúkkurnar með okkur. Við þurftum
ekki að vera að vakna þar sem við vöktum
alla nóttina en maður var mjög bundinn yfir
dúkkunni, við þurftum að vera með augu og
eyru á barninu og sinna því og þess vegna
var þetta mjög truflandi.“ Verkefnið hefur
engu að síður fallið vel inn í forvarnanóttina
og Andri Már sagðist alveg öruggur með
það að bíða, auk þess sem reynslan af yngri
systur hefði kennt honum ýmislegt. „Mitt
„barn“ var nú samt mjög auðvelt miðað við
mörg önnur. Sum voru að vakna kannski 10
sinnum yfir nóttina en ég þurfti að vakna 4
sinnum.“
Ingibjörg Kristinsdóttir móðir Andra
skýtur inn í viðtalið að hún hafi nú þurft að
ýta við honum nokkrum sinnum eftir vöku-
nóttina og kannski ekki furða þegar menn
eru vansvefta. Það gefur því auga leið að
foreldrar þátttakenda þurfa að bregða sér í
hlutverk ömmu og afa þá helgi sem verk-
efnið stendur yfir. „Andri stóð sig mjög vel
í þessu og hann hefur verið mjög hjálplegur
með litlu systur, klæðir hana t.d. á hverjum
morgni þannig að hann veit nú ýmislegt um
barnauppeldi,“ sagði Ingibjörg. Hún bætti
því við að hann hefði verið óvenjulega mikið
heima þessa helgi og því til skýringar sagði
Andri: „Mér fannst leiðinlegt að dröslast
með þetta með mér,“ og er hér að vísa til
dúkkunnar í bílstólnum sem hann mátti
ekki og gat ekki skilið við sig. Hann fann
líka að samfara þessu verkefni átti hann
erfiðara með að sinna hugðarefnum sínum,
sem eru körfuknattleikur með Njarðvík og
trommuleikur með hljómsveitinni Exem,
enda er eitt af markmiðum verkefnisins að
sýna þátttakendum að þau þurfi að leggja
eitthvað til hliðar þegar barn er komið í
spilið.
Forvarna- og fræðsluverkefnið „Hugsað um barn“ í grunnskólum Reykjanesbæjar
„Leiðinlegt að
dröslast með þetta“
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Hugsað um barn Andri Már Þorsteinsson hefur tekið þátt í forvarna- og fræðsluverkefninu
„Hugsað um barn“ og hann er ákveðinn í að bíða með barneignir þar til hann verður eldri.
Hann býr þó að góðri reynslu við umönnun systur sinnar, Olgu Nönnu Miranda.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Laugarás | Dýragarðurinn í Slakka í
Laugarási í Árnessýslu hefur form-
lega opnað nýjan innidýragarð. Þar
eru meðal annars stór fiskabúr með
risarækjum og fleiri sjávardýrum.
Helgi Sveinbjörnsson og fjölskylda
opnuðu dýragarð í Slakka fyrir tólf ár-
um og hefur verið leitast við að byggja
upp og bæta á hverju ári. Garðurinn
var rekinn í tengslum við garð-
yrkjustöð en fyrir nokkrum árum var
ræktun hætt og síðan hefur verið unn-
ið að því að finna not fyrir gróðurhúsin
í þágu dýragarðsins og ferðaþjónust-
unnar. Helgi kom upp aðstöðu í gróð-
urhúsi fyrir minigolf og fleiri leiki. Þar
er hægt að fylgjast með atburðum á
stórum sjónvarpsskjá og fara í karókí,
svo nokkuð sé nefnt. Helgi segir að
þarna sé tekið á móti fyrirtækjahóp-
um og fleiri hópum sem fari síðan í
mat á veitingastaðnum í Slakka.
Fiskar og fuglar
Viðbótin sem nú var opnuð er í öðru
gróðurhúsi og er innidýragarður.
Honum er skipt í nokkrar deildir. Tel-
ur Helgi að mesta athygli veki fimm
stór fiskabúr með risarækjum og ýms-
um tegundum fiska og annarra sjáv-
ardýra. „Ég hafði heyrt um risarækju-
eldið hjá Orkuveitu Reykjavíkur og
datt í hug að það gæti verið gaman að
sýna gestum þær. Þeim hjá Orkuveit-
unni leist strax vel á og þetta gekk í
gegn á nokkrum dögum,“ segir Helgi.
Hann segir að mikið líf sé í rækju-
búrinu. Þar séu meðal annars tveir
karlar sem verji kerlingar sínar hvor
fyrir öðrum með tilheyrandi átökum.
Fugladeildin er við hliðina á fisk-
unum. Þar er verið að setja upp stór
fuglabúr sem í verður fjölbreytt úrval
smáfugla þegar fram líða stundir. Nú
þegar eru komnir um það bil fimmtán
fuglar og segir Helgi að það sé aðeins
byrjunin.
Þá er hann með rottur, mýs, stökk-
mýs og kanínur í innidýragarðinum,
hænsnin eru þar og stórir páfagauk-
ar eru væntanlegir.
Þessi viðbót eykur mjög mögu-
leika Dýragarðsins í Slakka. „Þótt
við höfum aðeins getað haft dýra-
garðinn opinn þrjá mánuði yfir há-
sumarið hafa komið tuttugu þúsund
gestir á ári. Nú getum við haft opið
fyrir hópa allt árið,“ segir Helgi og
nefnir að tilvalið sé fyrir skólahópa
að koma í Slakka til að fræðast um
dýrin, fara í leiki og njóta veitinga.
Hann segir að reynt verði að hafa op-
ið fyrir almenning um helgar, að
minnsta kosti þegar gott er veður, nú
þegar sól fer hækkandi en tekur
fram að öruggara sé fyrir fólk að
hringja á undan sér.
Risarækjur sýndar í nýjum innidýragarði
Ljósmynd/Ívar Örn Helgason
Risarækja Eitt helsta aðdráttaraflið í innidýragarðinum í Slakka eru risarækjur. Þar er háð barátta um yfirráðin.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Minigolf Í gróðurhúsinu er minigolfvöllur, auk annarrar afþreyingar.
Íþróttamaður Borgarbyggðar |
Hafþór Ingi Gunnarsson, fyrirliði
úrvalsdeildarliðs Skallagríms í
körfuknattleik, hefur verið útnefnd-
ur Íþróttamaður Borgarbyggðar
2005. Tómstundanefnd sveitarfé-
lagsins stendur
fyrir valinu og
var viðurkenn-
ingin veitt við at-
höfn sem fram fór
í Íþróttamiðstöð-
inni síðastliðinn
sunnudag, að því
er fram kemur á
vef Borgar-
byggðar.
Aðrir þeir sem
tilnefndir voru frá deildum og fé-
lögum voru: Bergþór Jóhannesson
frjálsíþróttamaður úr Umf. Staf-
holtstungna, Þórdís Fjeldsted Þor-
steinsdóttir hestaíþróttamaður úr
Faxa, Rasmus Christansen hesta-
íþróttamaður úr Skugga, Ingólfur
H. Valgeirsson knattspyrnumaður
úr Umf. Skallagrími, Trausti Ei-
ríksson kylfingur úr Golfklúbbi
Borgarness, Trausti Eiríksson
badmintonmaður úr Umf. Skalla-
grími og Sigurður Þórarinsson
sundmaður úr Umf. Skallagrími.
Einnig heiðraði tómstundanefnd
þær Freyju Bjarnadóttur Umf.
Skallagrími, Valgerði Björnsdóttur
Umf. Stafholtstungna og Guðrúnu
Sigurðardóttur Umf. Agli fyrir óeig-
ingjörn störf við íþrótta- og æsku-
lýðmál í sveitarfélaginu en þær hafa
allar unnið mikið fyrir leikdeildir fé-
laganna.
Þá fékk sunddeild Skallagríms
hvatningarviðurkenningu fyrir gott
starf og Ólafur Helgason, formaður
körfuknattleiksdeildar, fékk við-
urkenningu fyrir mikið og óeig-
ingjarnt starf fyrir deildina á liðnum
árum. Veitt var viðurkenning úr
Minningarsjóð Auðuns H. Krist-
marssonar og voru það þeir fé-
lagarnir Trausti Eiríksson og Bjarki
Þór Gunnarson sem fengu við-
urkenningu og styrk úr sjóðnum að
þessu sinni.