Morgunblaðið - 08.02.2006, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁRÁS Á HERMENN
Starfsmaður Íslensku friðargæsl-
unnar var staddur í bækistöðvum
öryggissveita Atlantshafsbandalags-
ins í norðvesturhluta Afganistans
þegar hópur reiðra múslíma réðst
þar til atlögu í gær. Til átaka kom og
týndu fjórir Afganar lífi en sex
norskir friðargæsluliðar særðust. Ís-
lendingurinn er heill á húfi.
Hæsta lánshæfiseinkunn
Skuldabréfaútgáfa Kaupþings
banka hefur fengið hæstu mögulega
lánshæfiseinkunn hjá alþjóðlega
lánshæfisfyrirtækinu Moody’s. Á
sama tíma veldur útlánaaukningin í
íslenska bankakerfinu áhyggjum, að
mati matsfyrirtækisins Fitch Rat-
ing.
Fundu „nýjan heim“
Vísindamenn hafa uppgötvað
„nýjan heim“ á einangruðum frum-
skógarsvæðum í Indónesíu, nýjar
tegundir froska, fiðrilda og plantna
og einnig stór spendýr. „Þetta er
það næsta, sem hægt er að komast
aldingarðinum Eden,“ sagði einn
vísindamannanna.
Olíufélagið selt
Bílanaust ásamt núverandi hlut-
höfum og stjórnendum fyrirtækisins
og nokkrum öðrum fjárfestum hafa
keypt allt hlutaféð í Olíufélaginu ehf.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Viðhorf 30
Viðskipti 14/15 Umræðan 26/33
Erlent 16/17 Minningar 34/37
Minn staður 18 Myndasögur 42
Höfuðborgin 19 Dagbók 42/45
Akureyri 20 Staður og stund 44
Suðurnes 21 Leikhús 45
Landið 21 Bíó 50/53
Daglegt líf 22/24 Ljósvakamiðlar 54
Menning 25 Veður 55
Forystugrein 28 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðinu fylgir fasteignablað
Miðborgar.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Ræðum málin.
Ég verð á beinni línu á Útvarpi Sögu fm 99.4 í dag kl. 17. Sími: 588 1994
HUGSUM STÓRT!
Ég hef beitt mér fyrir því að íbúar hafi bein
áhrif á sitt nánasta umhverfi meðal annars
með stofnun þjónustumiðstöðva. Ég vil
styrkja stoðir þjónustumiðstöðvanna þannig
að fólkið hafi áhrif á forgangsröðun verkefna
í sínu hverfi og þar með sitt daglega líf.
ÞOLINMÆÐI félagsráðgjafa sem
starfa hjá Reykjavíkurborg er að
þrotum komin, en þeir hafa verið
með lausa samninga síðan 1. nóv-
ember. Formaður kjaranefndar seg-
ir að látið verði reyna á samnings-
vilja borgarinnar á næsta fundi áður
en íhugað verður að boða til verk-
falls.
Félagsráðgjafar sem starfa hjá
Reykjavíkurborg fjölmenntu á
áhorfendapalla í ráðhúsi Reykjavík-
ur á meðan fundur borgarstjórnar
stóð yfir í gær til að leggja áherslur
á kröfur sínar, og héldu eftir það á
félagsfund til að ræða ganginn í
kjaraviðræðunum, segir Vilborg
Oddsdóttir, formaður kjaranefndar
félagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg.
„Það er mjög mikill hugur í fé-
lagsráðgjöfum innan Reykjavíkur-
borgar um að ganga langt í sínum
kjaramálum núna,“ segir Vilborg, en
mikið ber á milli kjaranefndar fé-
lagsráðgjafa og samninganefndar
borgarinnar.
Óánægja félagsráðgjafa með laun
sín magnaðist þegar nokkrar stofn-
anir borgarinnar voru sameinaðar
og verkefnum þeirra sinnt í þjón-
ustumiðstöðvum í hverfunum, en þá
fóru félagsráðgjafar að bera laun sín
saman við laun sambærilegra stétta
sem þar vinna, svo sem kennsluráð-
gjafa og leikskólaráðgjafa, segir Vil-
borg. Hún segir miklu muna á laun-
um þessara hópa, og ekki virðist
vera vilji hjá Reykjavíkurborg til að
minnka þann mun eða eyða honum
alveg.
Vilborg segir laun félagsráðgjafa
hjá Reykjavíkurborg lægri en laun
félagsráðgjafa hjá ríkinu, og að erf-
iðlega hafi gengið að ráða félagsráð-
gjafa á þjónustumiðstöðvarnar þar
sem launakjörin séu svo bágborin.
Bætt kjör kvennastétta?
Í dag starfa 74 félagsráðgjafar hjá
Reykjavíkurborg, að langstærstum
hluta konur, aðeins eru tveir karl-
menn í hópnum. Vilborg bendir á að
það hljómi einkennilega þegar borg-
arstjóri tali um að bæta kjör kvenna-
stétta í ljósi þess hversu erfitt virðist
vera að sækja leiðréttingu á launum
hefðbundinnar kvennastéttar eins
og félagsráðgjafa, sem hafi dregist
verulega aftur úr stéttum með sam-
bærilega menntun hjá borginni.
„Mjög mikill hugur
í félagsráðgjöfum“
Félagsráðgjafar boða hertar aðgerðir í kjaraviðræðum
LISTAVERK til minningar um
hjónin Einar Sigurðsson og Svövu
Ágústsdóttur frá Vestmannaeyjum
var afhjúpað í gær á Skansinum í
Vestmannaeyjum, en þá voru liðin
100 ár frá fæðingu Einars. Verkið er
eftir Gerði Helgadóttur myndhöggv-
ara en Einar var einn af forvíg-
ismönnum þess að styrkja listakon-
una til náms í Frakklandi á sínum
tíma.
Auður, dóttir Einars, flutti ræðu
við afhjúpunina og kom fram í máli
hennar að val á Skansinum sem
staðsetningu verksins hefði ekki
verið tilviljun því að hann væri stór
hluti í sögu Vestmannaeyja, auk
þess sem faðir þeirra hefði átt svæð-
ið og fyrirtæki hans höfðu verið með
starfsemi þar nálægt en öll orðið
undir hrauni í Vestmannaeyjagos-
inu. Einar hafði á sínum tíma verið í
miklum atvinnurekstri í Vest-
mannaeyjum en hann lést árið 1977
og kona hans ári seinna.
Það var Elín, yngsta dóttir Einars
og Svövu, sem afhjúpaði verkið.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Börn og barnabörn Einars og Svövu við listaverkið. F.v.: Elín, Auður, Sólveig, Helga, Ólöf, Svava, Ágúst, Guðbjörg
Matthíasdóttir, eiginkona Sigurðar heitins Einarssonar, og Elísabet. Fyrir framan eru börnin (f.v.) Ásgeir Bein-
teinn Árnason, Elín María Árnadóttir og Una Haraldsdóttir.
Afhjúpuðu listaverk á Skansinum
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ sendi
í gær frá sér viðvörun til Íslendinga
vegna ferðalaga til Mið-Austurlanda.
Er íslenskum ferðamönnum ráðlagt
að ferðast ekki til Sýrlands og Líb-
anons eins og sakir standa.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Geir H. Haarde utanríkisráðherra
að atburðirnir í Afganistan í gær,
þegar ráðist var að bækistöðvum al-
þjóðlegra öryggissveita Atlantshafs-
bandalagsins í bænum Meymana í
Afganistan, sýndu auðvitað að menn
yrðu að vera á varðbergi hvar sem
þeir væru. Einn starfsmaður ís-
lensku friðargæslunnar var að störf-
um í Meymana þegar árásin var
gerð, en maðurinn er heill á húfi.
„Við náttúrlega hörmum það að
þessar [skop]myndir hafi valdið sár-
indum og þessari miklu gremju í
múslímaheiminum og sært tilfinn-
ingar manna. Það ber auðvitað að
harma það. En það verður auðvitað
að standa vörð um málfrelsi og
prentfrelsi sömuleiðis. Hér þarf að
leika ákveðna jafnvægislist. Í lýð-
frjálsum löndum geta ríkisstjórnir
ekki gefið frjálsum fjölmiðlum fyr-
irmæli um hvað má birta og hvað
ekki. Það reynir á ábyrgð fjöl-
miðlanna sjálfra í þeim efnum,“
sagði Geir H. Haarde utanríkisráð-
herra.
Íslendingar varaðir
við ferðalögum til
Mið-Austurlanda
RÍKISSTJÓRNIN ákvað í gær-
morgun á fundi sínum að höfða mál
gegn olíufélögunum vegna ólöglegs
verðsamráðs þeirra. Árni Mathie-
sen fjármálaráðherra sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að ekki væri
ljóst á þessari stundu hversu há
skaðabótakrafan væri en rík-
islögmaður ynni nú að kröfugerð
og þar myndi koma fram hversu há
krafan yrði og hversu miklu fé ríkið
tapaði. Ákvörðunin hefði verið tek-
in í kjölfar niðurstöðu Samkeppn-
isstofnunar um ólöglegt samráð ol-
íufélaganna. Fjármálaráðherra
taldi mikilvægt að ríkið héldi uppi
kröfum vegna málsins til að verja
hagsmuni ríkissjóðs og almennings.
Ríkið í mál gegn
olíufélögunum
EVE Online-tölvuleikurinn hefur
nú 100 þúsund virka áskrifendur,
en leikurinn er svokallaður fjölþátt-
tökuleikur sem er spilaður í gegn-
um netið. Leikinn hannaði íslenska
fyrirtækið CCP hf.
Áskrifendum hefur fjölgað stöð-
ugt og leikurinn er að öðlast vin-
sældir erlendis, að því er fram kem-
ur í tilkynningu frá CCP.
Sérstaklega hefur vöxturinn verið
mikill á mörkuðum þar sem mikil
samkeppni er milli fjölþátttöku-
leikja, t.d. í Bandaríkjunum og
Vestur-Evrópu, en reiknað er með
að leikurinn eigi eftir að ná veru-
legum vinsældum á tölvuleikja-
markaðnum í Kína seinna á árinu.
100 þúsund spila
Eve Online
LÉLEGT netsamband við útlönd
vegna misbresta í rekstri FARICE-
sæstrengsins, er farið að hamla
verulega starfsemi fjölmargra fyr-
irtækja hér á landi, m.a. í hátækni-
iðnaði og fjármálaþjónustu. Stöð-
ugleiki í fjarskiptum ætti að vera
algert forgangsmál stjórnvalda og
undarlegt að ekki skuli þegar vera
búið að ráðast í umbætur í þessu
efni, segir í skýrslu framtíðarhóps
Viðskiptaráðs Íslands. Straumhvörf
urðu í fjarskiptamálum lands-
manna þegar FARICE- sæstreng-
urinn milli Íslands og Skotlands um
Færeyjar var tekinn í notkun. Til-
gangurinn var að færa netnot-
endum meira öryggi en áður þegar
síma- og tölvunotendur urðu að
treysta á CANTAT-3 sæstrenginn í
samskiptum við útlönd. Misbrestur
hefur verið á rekstri sæstrengsins
og hefur sambandið rofnað ítrekað
á síðustu misserum, sem er óvið-
unandi fyrir fjölmörg fyrirtæki og
einstaklinga, segir í skýrslunni.
Lélegt netsam-
band til trafala