Morgunblaðið - 08.02.2006, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í TENGSLUM við janúarfund
Evrópuráðsþingsins í Strassborg
efndi Íslandsdeild Evrópuráðs-
þingsins til kynningar á mænu-
skaðaverkefni íslenskra heilbrigð-
isyfirvalda og Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, WTO, í Evrópu-
ráðshöllinni.
Fjöldi evrópskra þingmanna,
embættismanna og erindreka sótti
kynninguna og var heimildar-
myndin „Hvert örstutt spor“ sýnd,
þar sem meðal annars er lýst eftir
þekkingu fagfólks um allan heim
og upplýsingum um meðhöndlun á
fólki sem hlotið hefur mænuskaða.
Alþjóðlegur gagnabanki er í und-
irbúningi og þangað verður safnað
saman margvíslegum upplýsingum
um mænuskaða sem verða öllum
aðgengilegar, bæði fagfólki og al-
menningi.
Birgir Ármannsson, formaður
Íslandsdeildar Evrópuráðsþings-
ins, flutti ræðu við þetta tækifæri
og lýsti verkefninu í stuttu máli og
kynnti á hvaða stigi það er. Hann
þakkaði Auði Guðjónsdóttur hjúkr-
unarfræðingi fyrir óeigingjarnt
starf hennar á þessu sviði í 10 ár.
Auður hefur verið hvatamaður
þess að kynna málefni þeirra sem
hlotið hafa mænuskaða og barist
fyrir stofnun alþjóðlegs gagna-
banka um mænuskaða. Birgir
sagði að mikill fjöldi manna hefði
hlotið mænuskaða og því væri
mikilvægt að vinna að söfnun upp-
lýsinga og bættri meðhöndlun.
Auður sagði við þetta tækifæri að
meðferð á þeim sem hlytu mænu-
skaða hefði varla breyst í hálfa
öld. Hún sagði að tími væri kom-
inn til að snúa þeirri þróun við og
hvetja menn til dáða á þessu sviði.
Að frumkvæði Auðar Guðjóns-
dóttur og íslensku sendinefndar-
innar var kynningin haldin í sam-
starfi við heilbrigðisráðuneytið,
skrifstofu Alþingis og fulltrúa ut-
anríkisráðuneytisins. Íslensku
þingfulltrúarnir á fundinum í
Strassborg voru alþingismennirnir
Birgir Ármannsson, Birkir Jón
Jónsson og Margrét Frímanns-
dóttir. Markmið Evrópuráðsins er
að standa vörð um hugsjónir aðild-
arríkjanna um mannréttindi og
lýðræði og stuðla að efnahagsleg-
um og félagslegum framförum.
Evrópuráðsþingið kemur saman
fjórum sinnum á ári. Þar koma
þingmenn allra aðildarríkjanna 46
saman og ræða mannréttindamál.
Evrópskum þingmönnum
kynnt málefni mænuskaddaðra
Ljósmynd/Þröstur Freyr Gylfason
Frá vinstri: Birgir Ármannsson, formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, Auður Guðjónsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, Margrét Frímannsdóttir, Hörður H. Bjarnason sendiherra og Birkir Jón Jónsson.
SEX þingmenn Samfylkingarinnar
hafa lagt fram á Alþingi frumvarp
þar sem lagt er til að settar verði
reglur sem lúta að því að fjölmiðill
geti fengið dreifingu á þeirri dreifi-
veitu sem hann kýs og ennfremur að
dreifiveitu verði gert kleift að fá til
sín það efni sem hún kýs. Frumvarp-
ið felur í sér breytingar á lögum um
fjarskipti og er Mörður Árnason
fyrsti flutningsmaður þess.
Í greinargerð frumvarpsins segir
að nokkuð hafi verið rætt um fjöl-
miðlalöggjöf á Íslandi undanfarin
misseri og að flutningsmenn álíti að
af þeim breytingum sem komi til
greina sé brýnast að lögfesta skýrar
reglur um samskipti dreifiveitu og
fjölmiðils. „Tækniþróun í stafrænum
sendingum er hröð. Bæði fyrirtæki
og neytendur á þessu sviði þurfa
mjög á því að halda að lagaramminn
sé skýr til frambúðar, meðal annars
vegna mikils fjárfestingarkostnaðar
við búnað. Skynsamlegt er því að
stjórnvöld móti nú þegar reglur um
réttindi og skyldur til efnisflutnings
og freisti þess að um þær skapist
sátt meðal neytenda, fjölmiðla- og
dreififyrirtækja á markaði og ann-
arra sem hagsmuna eiga að gæta,“
segir í greinargerð frumvarpsins.
Fái dreifingu
á þeirri
dreifiveitu
sem hann kýs
FÉLAG kennara Menntaskólans í Reykjavík
lítur svo á að forysta Kennarasambands Ís-
lands hafi ekki haft umboð kennara til þess að
undirrita samkomulag við menntamálaráð-
herra um tíu skref til sóknar í skólastarfi sem
undirritað var 2. febrúar síðastliðinn. Þetta
kemur meðal annars fram í ályktun félagsins
frá fundi sem haldinn var síðastliðinn föstu-
dag en þar segir jafnframt að það sé mat
fundarins að samkomulagið sé fullkomlega
marklaust enda hafi ráðherra lýst sig jafn-
ákveðinn og áður í að skerða nám til stúd-
entsprófs. Baráttunni gegn skerðingunni
verði því haldið áfram til að tryggja íslensk-
um ungmennum þá menntun sem nauðsynleg
sé í nútímaþjóðfélagi.
Ekki í samræmi við verklagsreglur KÍ
Guðmundur J. Guðmundsson, trúnaðarmað-
ur kennara í MR, segir að samkomulagið hafi
ekki verið unnið í samræmi við verklags-
reglur KÍ en mál af þessari stærðargráðu hafi
ávallt verið borin undir félagsmenn en ekki
samþykkt af forystunni upp á eigin spýtur.
„Þetta er í andstöðu við hefðir undanfar-
inna ára en við sjáum ekki hvað lá á að keyra
þetta í gegn eða hverjum lá á að keyra þetta í
gegn. Þessar viðræður hafa verið í gangi frá
því í lok nóvember og því var nægur tími til
þess að bera þetta undir kennara. Við teljum
okkur því ekki bundin af þessu samkomulagi
miðað við það hvernig er í pottinn búið.“
Guðmundur segir að enginn hafi í sjálfu sér
neitt á móti því að gera fólki kleift að taka
stúdentspróf fyrr heldur sé verið að berjast
gegn því að nám við bóknámsdeildir fram-
haldsskólanna verði ekki skert.
„Við sjáum ekki betur en að menntamála-
ráðherra ætli hins vegar að keyra fram með
þá stefnu og kennaraforystan sé í raun búin
að samþykkja það. Ef skerðingin á að fara
fram þá verður það að vera á pólitískri
ábyrgð menntamálaráðherra en við tökum
ekki þátt í því,“ segir Guðmundur en hann
býst fastlega við því að ályktanir af þessum
toga eigi eftir að berast frá öðrum framhalds-
skólum í þessari viku.
„Við höfðum fullt umboð“
„Við höfðum fullt umboð til þess að und-
irrita þetta samkomulag en þetta mál hefur
verið afgreitt í stjórnum allra þeirra sex fé-
laga sem eru innan KÍ,“ segir Eiríkur Jóns-
son, formaður Kennarasambands Íslands.
„Þetta snýst í raun og veru um það að við
erum að ákveða að setja fólk í nefndir til þess
að sinna ýmsum störfum [...] og er í takt við
þær aðgerðir stjórnarinnar í þessu máli sem
byggjast á því sem samþykkt hefur verið á
þingum og aðalfundum á undanförnum ár-
um.“
Eiríkur segir að í hverjum mánuði sé fólk
skipað í einhvers konar nefndir og hópa sem
vinni í samstarfi við stjórnvöld og þær skip-
anir séu háðar mati stjórna félaganna á hverj-
um tíma. Mönnum sé hins vegar frjálst að
álykta að vild enda eðlilegt að hafa skoðanir á
málunum.
Viljum hafa áhrif á niðurstöðuna
„Við förum inn í þetta samstarf af heil-
indum og til þess að hafa áhrif á niðurstöðuna
og vonum að það náist upp samstarf sem
byggist á heilindum og trúnaði. Ef við hefðum
ekki gert neitt hefði fyrirliggjandi frumvarp
verið lögfest og það hefði verið slæmt fyrir
málið í heild sinni,“ segir Eiríkur og bendir á
að í samkomulaginu sé kveðið á um vinnu að
fjölmörgum mikilvægum málum sem hafi ver-
ið baráttumál í langan tíma.
„Þá er mikilvægt að hafa í huga að það á að
taka til endurskoðunar skilin á milli grunn-
skóla og framhaldsskóla.
Við komum að þessu til þess að koma í veg
fyrir það að námsinnihaldið verði skert en það
er ljóst að í þessu felst að skólagangan verði
skorin niður um eitt ár.“
Félag kennara MR telur samkomulag KÍ og menntamálaráðherra marklaust
„Teljum okkur ekki bundin
af þessu samkomulagi“ÓSKAR Bergsson, sem hafnaði í 3. sæti
prófkjörs Framsóknarflokksins í Reykja-
vík, hefur ekki gert upp hug sinn um
hvort hann muni taka
sæti á listanum fyrir
borgarstjórnarkosning-
arnar í vor en eins og
fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hefur
Anna Kristinsdóttir
ákveðið að taka ekki
sæti á listanum. Hún
hafnaði í 2. sæti í próf-
kjörinu sem fram fór
28. janúar sl.
„Nú er í raun og veru komin upp ný
staða og ég held að það sé skynsamlegt
fyrir alla aðila að gefa sér tíma til að fara
yfir stöðuna og endurmeta hana,“ sagði
Óskar en taldi ekki tímabært fyrir sig að
tjá sig um málið á þessari stundu. Að-
spurður sagði Óskar enga formlega fundi
vera á dagskrá en að framsóknarmenn
væru að ræða málin og leita að skyn-
samlegri lendingu í málinu.
Óskar gat ekki gefið upp hvenær svara
væri að vænta en sagði ekki skynsamlegt
að draga málið of lengi.
„Svona hlutir þurfa að ganga hratt fyr-
ir sig, það er ekki gott að hafa þetta lengi
í óvissu,“ sagði Óskar Bergsson.
Ný staða
komin upp hjá
Framsóknar-
flokknum
FRUMVÖRP um breytingar á lög-
um um hlutafélög og einkahluta-
félög einkenndu umræður á Al-
þingi gær. Valgerður Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra mælti fyrir
fimm frumvörpum um breytingar
á fyrrgreindum lögum, m.a. frum-
varpi um ný ákvæði varðandi op-
inber hlutafélög. Tilgangur frum-
varpsins er m.a. að bæta aðgengi
almennings og annarra að upplýs-
ingum um hlutafélög sem hið op-
inbera á að öllu leyti, að því er segir
í fylgiskjali frumvarpsins.
„Breytingarnar fela í sér að
skotið er inn í lögin nokkrum
ákvæðum um opinber hlutafélög,“
sagði ráðherra á Alþingi í gær. Í
frumvarpinu er m.a. að finna skil-
greiningu á opinberu hlutafélagi,
sérstakt ákvæði um að gæta skuli
að lögum um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla við kjör í
stjórn opinbers hlutafélags, o.fl.
Ný ákvæði um opinber hlutafélög
Í UTANDAGSKRÁRUMRÆÐU á
Alþingi í fyrradag bar Magnús Þór
Hafsteinsson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins, saman ástand
þorskstofnsins á Íslandi við ástand
stofnsins í Barentshafinu en ekki í
Færeyjum, eins og sagt var í Morg-
unblaðinu í gær. „Ég var að benda á
að ástand þorskstofnsins í Barents-
hafi væri athyglisvert í samanburði
við ástand íslenska þorskstofnsins.
Talsvert hefur verið veitt umfram
ráðgjöf fiskifræðinga úr þorskstofni
í Barentshafi, en stofninn virðist þó
standa það af sér,“ útskýrir hann.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Borið saman
við ástandið í
Barentshafi
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst í dag
kl. 12 og verða fyrirspurnir þá á
dagskrá. Klukkan 15.30 verður ut-
andagskrárumræða um Íbúðalána-
sjóð. Málshefjandi er Guðlaugur
Þór Þórðarson en til svara verður
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra.
♦♦♦