Morgunblaðið - 08.02.2006, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Laufey Símon-ardóttir fæddist
í Reykjavík 20. jan-
úar 1939. Hún lést
mánudagin 30. jan-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru María Hró-
mundsdóttir af
Álftanesi, f. 1902, d.
1974, og Símon
Bjarnason frá Hall-
stúni í Holtum í
Rang., f. 1897, d.
1981. Systkini Lauf-
eyjar samfeðra voru
Jódís Unnur, f. 1926, d. 2002, Agn-
ar Bragi, f. 1929, d. 1971. Systkini
Laufeyjar sammæðra eru Jörund-
ur, f. 1924, d. 2001, Esther Svan-
laug, f. 1926, d. 1993, Steinunn, f.
1928, d. 1979, Baldvin Elías, f.
1943, Elísabet, f. 1945.
Hinn 25. desember 1961 giftist
Laufey Magnúsi Jónssyni úr
Reykjavík, f. 21. september 1935.
Foreldrar hans voru Ágústa
Magnúsdóttir frá Hofi í Dýrafirði,
f. 16.8. 1906, d. 23.6. 1977, og Jón
Sveinbjörnsson, f. í Reykjavík
1899, d. 2.11. 1989. Börn Laufeyj-
ar og Magnúsar eru: 1) Ágústa, f.
1956, maki Kristján Þór Sigfús-
son, f. 1958. Sonur Ágústu frá
fyrri sambúð er Friðrik Þór, f.
1976. Hann á dótt-
urina Anítu Ágústu,
f. 2003. Ágústa og
Kristján eiga soninn
Magnús Viðar, f.
1979. 2) Evert
Sveinbjörn, f. 1959,
maki Hugrún Stef-
ánsdóttir, f. 1959.
Evert hefur alið upp
Jóhannes Pál, f.
1979, son Hugrúnar,
saman eiga þau
Stefaníu Huld, f.
1992, og tvíburana
Elvu Rún og Evu
Kristínu, f. 1996. Jóhannes Páll á
soninn Gabríel Snæ, f. 1997. 3)
Sigrún, f. 1962. Með fyrrverandi
eiginmanni Ármanni Sigurðssyni
á Sigrún tvíburana Sigurð Evert
og Katrínu Lind, f. 1995. 4) Hildur
Kolbrún, f. 1966, börn hennar eru
Laufey, f. 1984, hún á dótturina
Elísabetu Lilju, f. 2002, María
Tinna, f. 1986, og Berglind, f.
1989. 5) Berglind Agnes, f. 1971,
börn hennar eru Sigrún Snædís, f.
1993, William Þór, f. 2001, og Ery-
kah Lind, f. 2004 Börn, barnabörn
og barnabarnabörn Laufeyjar eru
alls tuttugu og tvö.
Útför Laufeyjar verður gerð
frá Garðakirkju á Álftanesi í dag
og hefst athöfnin klukkkan 13.
Elsku besta mamma mín og besti
vinur.
Þau fátæklegu orð sem ég rita nú
á blað geta aldrei komið í stað þín,
fallega mamma mín.
Sársaukinn í hjarta mínu við að
þú sért farin er allt of mikill. Það
eina sem er til huggunar fyrir mig
er að nú sért þú í faðmi móður þinn-
ar og fjölskyldu sem ásamt Guði
vorum verndar þig fyrir mig og okk-
ur hin sem eftir lifum í sorg. Þú
varst mér allt. Leiddir mig veginn,
studdir mig í gegnum erfiðleika sem
og á gleðistundum. Gafst mér von
um betri tíð og vafðir mig allri þeirri
umhyggju og ást sem þú gafst mér.
Án þín er lífið tómlegt og gleði-
snautt, elsku mamma. Dætur mínar
og dótturdóttir syrgja ömmu sína
sárt. Þú áttir hvert bein í þeim. Þú
gafst þeim ást og umhyggju sem
þær urðu aðnjótandi hvern dag frá
þér ásamt því að þú áttir virkan þátt
í uppeldi þeirra og lífi. Það þakka ég
þér af öllu hjarta, elsku mamma
mín. Það er svo margs að minnast í
okkar lífi sem við áttum saman, allar
ásamt pabba mínum sem nú sárt
syrgir þig, elsku mamma mín. Hann
missti ekki bara fallegu og góðu
konuna sína, heldur líka besta vin
sinn sem staðið hefur við hlið hans í
hartnær 50 ár. Samheldin og ástrík
voruð þið hjónin og lifðuð fyrir okk-
ur börnin ykkar sem og barnabörn-
in, sem nú segja að amma þeirra sé
engill hjá Guði.
Já, vegir Guðs eru svo skrýtnir.
Hann tekur þig frá mér eftir svo
stutta stund en gæfuríka ævi þína.
Ég sat hjá þér og augu þín sögðu
mér svo margt. Þú vildir segja mér
að allt yrði í lagi, þú myndir fylgjast
með mér og okkur öllum hinum. Við
vorum alltaf svo tengdar og þú last
mig alltaf eins og opna bók. Ég bað
þig að sleppa svo að þú þjáðist ekki
meir, þetta yrði allt í lagi. Þú færir
ekki langt frá mér, elsku góða
mamma mín og besti vinur. Ég kveð
þig nú með harm í hjarta og vil biðja
Guð og englana um að passa þig vel
fyrir mig.
Þakka þér fyrir það líf sem þú
gafst mér, elsku mamma mín.
Án þín væri ég ekkert,
Vegna þín er ég það sem ég er,
Elska þig alltaf.
Þín dóttir
Kolbrún.
Elsku besta amma mín. Mér þyk-
ir svo leitt að þú sért farin. Í gegn-
um ævi þína hefur þú staðið eins og
stoð og stytta með öllum sem voru í
kringum þig. Ég man hversu
ánægðar við systurnar vorum hjá
ykkur afa, okkur leið alltaf svo vel
hjá ykkur. Þú og afi áttuð stóran
þátt í uppeldi okkar systra og við
værum ekki þær manneskjur sem
við erum í dag, ef þið hefðuð ekki átt
í hlut. Ég man líka þegar ég var 18
ára unglingur á leiðinni að eignast
mitt fyrsta barn, hvað þú varst um-
hyggjusöm og reyndir að láta mér
líða vel meðan ég var kvalin af hríð-
um. Þú gafst mér mikinn styrk með
nærveru þinni og ég var ofboðslega
stolt að fá það tækifæri að færa í
heiminn þitt fyrsta barnabarnabarn.
Hún er litla ljósið mitt og ég vona að
þú passir hana vel fyrir mig. Hún
mun alltaf sakna langömmu sinnar.
Ég vona að þér líði vel þar sem þú
ert en ég veit að þú ferð aldrei langt
því þannig persóna hefur þú alltaf
verið, þú passaðir alltaf upp á alla. Í
gegnum ævina hefur þú verið hetjan
okkar allra og duglegasta kona sem
nokkur hefur kynnst. Mig langar að
halda það að í veikindum þínum haf-
ir þú verið í fullri vinnu, því starfi
þínu var ekki lokið fyrr en allt var
yfirstaðið. Þú áttir eftir að ljúka
mikilvægu verki og það var að sam-
eina fjölskyldu þína betur, sérstak-
lega börnin þín og þú passaðir að
allir vissu að þú værir sátt við að
fara. Þú hélst utan um okkur og
sagðir okkur með því, að allt væri í
lagi, við þyrftum ekkert að óttast.
Mér leið betur að halda í hönd þína
og liggja með höfuðið í fangi þínu
frekar en að standa og horfa á þig.
Ég fann styrk þinn en um leið
varstu máttvana. Ég vil þakka þér
fyrir að auðga líf mitt, fyrir að vera
stór hluti af lífi mínu sem skipti
meginmáli. Þú gafst mér von þegar
vonleysi var til staðar, þú gafst mér
styrk þegar ég þurfti á því að halda,
þú gafst mér ljósið sem lýsti mér
veginn og mest af öllu gafstu mér
lífið til að lifa því lifandi. Án þín væri
ég ekkert.
Þú ert engillinn minn.
Þín
Laufey.
Elsku amma mín. Hversu erfitt
það er að kveðja þig er ólýsanlegt.
Þetta gerðist allt svo hratt og sorgin
eiginlega bara helltist yfir mann.
Það er svo erfitt að átta sig á því að
kona eins og þú sért farin. Þú varst
mér sem amma, móðir, systir og
besta vinkona. Þú varst sú mann-
eskja sem ég gat alltaf leitað til.
Hvort sem það var til að klaga Lauf-
eyju systur þegar við vorum litlar
eða gelgjan að fara með mig, vissir
þú alltaf hvað var til ráða. Þú vissir
alltaf hvað átti að segja, hvert sem
málefnið var. Ég mun sakna þess að
þú varst sú eina sem kallaðir mig
Mörsu og var það þá oftast sagt
„Marsa mín“. Ég man þegar ég var
að læra að mála með spaða og fyrstu
spaðamyndina mína gaf ég þér.
Já, amma mín, þú varst okkur
allt, þér þótti líka svo vænt um alla
og mismunaðir aldrei neinum. Þú
varst og ert hetjan mín. Kona sem
aldrei kvartaðir, varst alltaf svo
sterk, fallegasta kona sem uppi hef-
ur verið og sú allra hugulsamasta.
Ég fór heim til þín með syni þínum
honum Evert og gistum þar á með-
an allt þetta gekk á. Einn morg-
uninn þegar við vöknuðum vorum
við að fara að fá okkur morgunmat
og þá einmitt minntumst við þess
hversu skipulögð þú varst. Já,
amma mín, heimilið þitt var alltaf
svo fallegt, og þá er sérstakt að
minnast garðsins þíns, hann var svo
fallegur. Litli drengurinn með flaut-
una í pollinum þínum og steinarnir
sem ég og Sigrún sóttum fyrir þig út
í hraun, blómunum öllum raðað eftir
þinni ósk. Þú varst svo falleg kona í
hjarta þínu og garðurinn lýsti því
best.
Maður var ekki kominn heim fyrr
en maður kom heim til ömmu. Ég
vona að þú passir alla fjölskylduna
þína vel og sérstaklega hann afa
minn, hjarta hans brast þegar ástin
hans fór. Þið voruð alltaf svo sam-
rýnd og hamingjusöm saman. Ég
vona líka að ég finni sömu ást og þið
í lífi mínu því enginn er ríkari en
hjón sem njóta ástar og umhyggju
hvort annars og þannig voruð þið.
Ég elska þig svo mikið, amma, og
ykkur afa bæði. Þið eruð hetjurnar
mínar.
Þín
María Tinna.
Elsku engillinn minn. Mér líður
eins og hluti af hjarta mínu sé rof-
inn, nú þegar þú ert farin og ég finn
hvað það er stundum erfitt að anda.
Ég hef aldrei á ævi minni grátið eins
mikið og ég mun gráta meira. Ég er
svo tóm án þín, amma mín. Það að
þessi sterka, dásamlegasta og ynd-
islegasta manneskja sem ég hef
nokkurn tímann á ævi minni þekkt,
amma mín, lá á dánarbeði sínum.
Það var svo erfitt að sjá þig liggj-
andi í rúminu og það eina sem ég
vildi gera var að leggjast við hliðina
á þér og kúra hjá ömmu minni, eins
og ég gerði alltaf áður fyrr. Mér
fannst alltaf svo gott að halda í
höndina á þér, elsku amma mín, og
kúra með höfuðið við hliðina á þér.
Að fá að vera með þér þessa sein-
ustu daga gaf mér ótrúlega mikið.
Ég er svo ótrúlega þakklát fyrir að
fá að hafa þig í lífi mínu og ég mun
aldrei gleyma ömmu minni. Lífið er
ekki það sama án þín, elsku amma
mín. Án þín væri ég ekki sú sem ég
er í dag. Þú hefur kennt mér lífs-
reglur sem ég mun fylgja og þú
gafst mér tilgang að lifa. Þú hefur
alltaf hjálpað mér í gegnum hvaða
erfiðleika sem var og þú tókst alltaf
eftir því ef eitthvað var að. Þú hafðir
gengið í gegnum marga erfiðleika
um ævina en þú stóðst alltaf aftur
upp á þegar aðrir hefðu haldið
áfram að falla. Þú fórst ekki til guðs
fyrr en allir voru vissir um að þú
værir sátt og óhrædd og að allir
væru sáttir. Andlát þitt hefur gefið
mörgum tilgang, eins og mér. Ég
ætla að biðja fyrir þér, elsku amma
mín, á hverju kvöldi, biðja guð um
að blessa og varðveita ljósið mitt.
Ég veit að þú ferð ekki langt burt,
enda vildirðu ávallt fylgjast með
mér. Ég er ánægð að þú sért nú
komin á besta stað í heimi, til
mömmu þinnar og englanna. Ég veit
að þau munu hugsa vel um þig,
elsku amma mín. Ég mun ávallt
biðja fyrir þér, elsku amma, og ég
vona að þú fylgist með mér að ofan.
Ég vil þakka þér fyrir að vera til,
gefa mér von þegar vonleysi var, til-
gang til að lifa og auðga líf mitt.
Elska þig, engillinn minn.
Þín
Berglind Steinunn.
Elsku mamma. Það er erfitt að
trúa því að þú sért farin frá mér og
börunum mínum. Með harm í hjarta
mínu rita ég nokkur orð til þín. Ég
vil byrja á því að þakka þér fyrir allt
sem þú hefur gert fyrir mig og börn-
in mín. Þú varst daglegur partur af
LAUFEY
SÍMONARDÓTTIR
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN SIGURÐUR PÉTURSSON
vélstjóri,
Teigagerði 1,
Reykjavík,
lést á heimili sínu mánudaginn 30. janúar.
Útför hans verður frá Grafarvogskirkju fimmtudag-
inn 9. febrúar kl. 15:00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð hjúkrunarþjónustu
Karitasar. Tekið er á móti framlögum í síma 551 5606 milli klukkan 9 og
10 alla virka daga.
Herdís Sigurjónsdóttir,
Magni Sigurjón Jónsson, Kristín Björnsdóttir,
Þorbjörg Jónsdóttir, Jóhannes Á. Kristinsson,
Borghildur Anna Jónsdóttir,
Pétur Jónsson, Sigrún Ólafsdóttir,
Helga Björk Jónsdóttir, Daníel B. Gíslason,
Áki Ármann Jónsson, Alda Þrastardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
KATRÍN S. JÓNSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu, Reykjavík, aðfaranótt sunnu-
dagsins 5. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hlöðver Helgason,
Sævar Hlöðversson, María Pétursdóttir,
Hjálmar K. Hlöðversson, Elínborg Pétursdóttir,
Guðjón H. Hlöðversson, Björg Ragnarsdóttir,
Hafdís Hlöðversdóttir, Sigmar Teitsson,
Gunnar Hlöðversson, Sigurlaug M. Ólafsdóttir,
Valgerður O. Hlöðversdóttir, Pétur Andrésson.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
MÁLFRÍÐUR AGNES DANÍELSDÓTTIR,
Háteigi 19,
Keflavík,
sem lést á heimili sínu föstudaginn 3. febrúar,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
10. febrúar klukkan 14.00.
Magnús Jónsson,
Sigríður Magnúsdóttir, Einar Haukur Helgason,
Ingibjörg G. Magnúsdóttir,
Kristbjörg J. Magnúsdóttir, Árni Ingimundarson,
Sjöfn Magnúsdóttir, Óskar Gunnarsson,
Elísabet Magnúsdóttir, Hafþór Óskarsson,
Pétur Magnússon, Valerie J. Harris,
Sigurborg Magnúsdóttir, Ásgrímur S. Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengda-
móðir
ANNA BJÖRK DANÍELSDÓTTIR,
Fjóluhvammi 13,
Hafnarfirði,
andaðist á heimili sínu aðfaranótt þriðjudagsins
7. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Hafsteinn Þórðarson,
Pálína Margrét Hafsteinsdóttir, Guðmundur Sigurðsson,
Ása Marin Hafsteinsdóttir, James William Goulden,
Daníel Þór Hafsteinsson, Ellen Ragna Pálsdóttir.
Faðir okkar,
BALDUR G. JOHNSEN
fyrrv. yfirlæknir,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli aðfaranótt
þriðjudagsins 7. febrúar.
Björn B. Johnsen,
Sigfús J. Johnsen,
Anna J. Johnsen.