Morgunblaðið - 08.02.2006, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 37
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Handskreytt rúmteppi
Mikið úrval af allskonar rúmtepp-
um frá kr. 3.900.
Opið virka kl. 11-18, laug. 11-15.
Sigurstjarnan,
Bláu húsin Fákafeni,
sími 588 4545,
netfang: postulín.is
Dýrahald
Risa og dverg schnauzer hvolp-
ar til sölu. Eigum ólofaða hvolpa
undan margföldum FCI meistur-
um, frábærir barnvænir félagar
sem fara ekki úr hárum. HRFI
ættbók. www.svartskeggs.com,
846 8171 eða 820 0033.
Frá Hundaræktarfélagi Íslands
Opið hús í kvöld 8. febrúar kl. 20,
í veitingasal Gusts Kópavogi. Við
hvetjum félagsmenn til að mæta.
Nánari upplýsingar og dagskrá:
www.hrfi.is
Veitingastaðir
Nýbýlavegi 20, s. 554 5022
Súpa og fjórir réttir.
Verð 1.390 á mann.
Tekið með, verð 1.250.
Heimsendingarþjónusta
Nudd
Klassískt nudd Árangursrík olíu-
og smyrslameðferð með ívafi ísl.
jurta.
Steinunn P. Hafstað
s. 692 0644, félagi í FÍHN.
Húsnæði í boði
Efnispakki
Harðviðarhús.
Einbýlishús.
Sumarhús.
Gestahús.
Bílskúrar.
Klæðningarefni.
Pallaefni.
Þakkantar.
Sjá nánar á heimasíðu:
www.kvistas.is, sími 869 9540.
2ja herbergja íbúð til leigu til 1.
sept. 2ja herbergja, 60 fm íbúð til
leigu með húsgögnum. Íbúðin er
í fínu standi á besta stað í bæn-
um. Upplýsingar í síma 698 6671.
Námskeið
Ropeyoga
Ný námskeið að hefjast í Baðhús-
inu, Brautarholti 20. Upplýsingar
og skráning í síma 821 1399 og á
www.kata.is .
Reykstopp árið 2006
Sjálfstyrking - reykstopp - frelsi
frá streitu og kvíða.
Notuð er m.a. EFT (Emotional
Freedom Techniques) og
dáleiðsla (Hypnotherapy).
Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu-
fræðingur, sími 694 5494,
www.EFTiceland.com .
CRANIO-SACRAL JÖFNUN
Nýtt 300 st. réttindanám hefst
17. febrúar. Námsefni á
íslensku.
Íslenskir leiðbeinendur.
Gunnar, sími 699 8064,
www.cranio.cc www.ccst.co.uk.
Til sölu
Tékkneskar og slóvanskar
kristalsljósakrónur. Handslípaðar.
Mikið úrval. Gott verð.
Slóvak Kristall, Dalvegi 16b,
201 Kópavogur, s. 544 4331.
Bókhald
Bókhald. Get bætt við mig verk-
efnum í bókhaldi og launaútreikn-
ingi. Einnig framtöl einstaklinga.
Sveinbjörn, s. 898 5434, netfang
svbjarna@simnet.is.
Viðskipti
VILTU STUNDA VIÐSKIPTI VIÐ
KÍNA?
- SELJA ÞÍNA VÖRU Í KÍNA?
- LÁTA FRAMLEIÐA Í KÍNA?
- STOFNA FYRIRTÆKI Í KÍNA?
Hef komið á fjölda farsælla við-
skiptasambanda milli Íslands og
Kína. Áhugasamir setji sig í sam-
band við: halldor@mexis.is
Ýmislegt
Vandaðir herraskór úr mjúku
leðri, með innleggi og högg-
deyfi.
Stærðir: 40-47. Verð: 6.975.
Stærðir: 40-47. Verð: 6.785.
Stærðir: 40-47. Verð: 6.885.
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Hárspangir
Mikið úrval af hárspöngum,
allir litir. Verð frá kr. 290.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Veiði
Veiðiferðir til Grænlands
Stangveiði
Hreindýraveiði
Sauðnautaveiði
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar,
sími 511 1515.
www.gjtravel.is
Bílar
VW Golf High Line '02, ekinn að-
eins 34 þ. Ssk. Vínrauður, fallegur
og vel með farinn. 2 sett álf. Tilb
1.250 þús. staðgreitt. Upplýsingar
í síma 690 0838.
Kr. 1490 þús + vsk. Mercedes
Benz 814 með 1.5 tonna lyftu. sk.
11.1997. Ekinn aðeins 74500 km.
Mjög gott ástand.
Kaldasel ehf.,
Dalvegur 16b, 201 Kópavogur,
s. 544 4333 og 820 1070.
Honda CRV árg. '02. Ek. 37.000,
sjálfsk. Sem nýr í útliti. Einn eig-
andi. Bein sala. Verð kr.
2.050.000. Sími 843 9950.
Dodge Dakota SXL árg. 2004.
2W4, ek. 20 þús. sjálfsk., over-
drive. Vél 3,7, dráttarbeisli, plast
í skúffu. Verð 1.620 þús. Sími
898 2128.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat, '05
892 4449/557 2940.
Varahlutir
JEPPAPARTAR EHF.,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
Nýlega rifnir Patrol '91-95, Terr-
ano II '99, Subaru Legacy '90-'04,
Impreza '97-04, Kia Sportage '03
og fleiri japanskir jeppar.
Þjónustuauglýsingar 5691100
setið tímunum saman félagarnir og
rætt um landbúnað og sauðfé. Við
Ásrún vorum satt best að segja
stundum uppiskroppa með umræðu-
efni við eldhúsborðið, þegar þeir
voru rétt að byrja að ræða og leysa
hin ýmsu mál sem upp geta komið í
sauðfjárbúskap og ræktun.
Bubbi var sannkallað náttúru-
barn, og hann opnaði augu mín fyrir
náttúru, lífríki og sögu hér í Hval-
firði. Þær stundir sem við áttum
saman og ræddum fræðin eru mér
svo sannarlega ómetanlegar. Stund-
um stúderuðum við kort og örnefna-
skrár, öðrum stundum lágum við í
textum en sennilega nutum við okk-
ar nú bæði best uppi á heiði með
landið og miðin beint í æð. Bubbi
þreyttist aldrei á að ausa úr visku-
brunnum sínum en frásagnir hans
einkenndust iðulega af virðingu fyrir
landi og lífi.
Eiginleikar og kostir Bubba voru
margir og góðir. Hann var sannur í
því sem hann tók sér fyrir hendur og
verkin voru unnin af heilum hug.
Hann var líka glettinn og kankvís,
heiðarlegur og hreinskilinn. Þá var
Bubbi hógvær og lítillátur og þar af
leiðandi lítt gefinn fyrir að hreykja
sér af verkum sínum, þótt oft væri
tilefni til. Orðin voru ekki endilega
mörg, eða setningarnar langar sem
hann notaði til að tjá hug sinn, en
alltaf var valið vandað og útkoman
góð. Þessir hæfileikar nýttust hon-
um vel í texta- og ljóðagerð.
Í haust fæddist okkur lítil og lang-
þráð stúlka. Þau hjón, Ásrún og
Bubbi, fylgdust með meðgöngunni
og reyndust okkur vel á tímum gleði
og sorgar, þá sem endranær. Í skírn-
arkortinu til litlu stúlkunnar leyndist
þessi vísa eftir Bubba:
Óskin sú úr okkar ranni
um æviveginn bjartan fer.
Litla stelpa, góði granni,
Gæfu Sólin fylgi þér.
Það er sárt að horfa á eftir Bubba
og erfitt að kveðja. En missirinn er
mestur hjá þér, elsku Ásrún. Þið vor-
uð eitt. Hjónaband ykkar einkennd-
ist af virðingu og vináttu, og það er
til eftirbreytni fyrir okkur sem yngri
erum. Orð mega sín lítils þegar við
stöndum frammi fyrir dauðanum og
þeirri miklu sorg sem honum fylgir.
En án sorgar væri heldur engin
gleði. Og það er svo sannarlega
gleðilegt að rifja upp ljúfar stundir
með manni eins og Bubba. Það mun
ylja okkur öllum um ókomna tíð.
Elsku Ásrún, Jóhannes, Sólrún,
Gulli og Steini, megi góður guð leiða
ykkur og styrkja í sorginni.
Arnheiður og Guðmundur.
Elsku fallegi sólar-
geislinn okkar.
Mikið vorum við
glöð þegar mamma
þín og pabbi sögðu
okkur að þú værir
væntanlegur í heiminn, okkur fannst
svo gaman að vera samferða með 2
stráka, bara 6 vikur á milli. Þú
komst í heiminn á degi sem í minn-
ingunni var svo sólríkur. Þú varst
svo yndislega fallegur, með kinnar
sem mann langaði mest til að klípa í.
Þið Baltasar urðu strax miklir vinir,
þið voruð alveg ólmir í að tosa svolít-
ið hvor í annan.
Þegar þið stækkuðuð og Baltasar
fór að koma til þín nokkra daga í
DAÐI SNÆR
ARNÞÓRSSON
✝ Daði Snær Arn-þórsson fæddist
í Reykjavík 31. maí
2005. Hann lést á
heimili sínu 24. jan-
úar síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Bústaðakirkju 2.
febrúar.
viku óx vinskapur
ykkar enn meira, þið
voruð svo kátir að sjá
hvor annan, skríktuð
og brostuð út að eyr-
um. Einmitt þannig
sáum við þig síðast,
nývaknaðan og bros-
andi svo skein í neðri
góminn.
Við eigum erfitt
með að trúa því að
uppáhalds frændinn
okkar sé farinn frá
okkur.
Við erum þakklát
fyrir að hafa fengið að kynnast þér
og vera virkir þátttakendur í þínu
lífi. Þú munt lifa áfram í hjörtum
okkar allra.
Ljósið á himnum lýsi þér
litli fallegi drengur.
Í hjarta mér og fleiri hér
brostinn er einn strengur
(Höf. ók.)
Lena Sólborg, Vignir Rúnar
og Baltasar Dagur.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Minningar-
greinar
Innihaldið skiptir máli