Morgunblaðið - 08.02.2006, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 47
MENNING
BRAGAGATA 31B - OPIÐ HÚS
Sýnum í dag fallegt, mikið endurnýjað 80 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 20 fm
stúdíóíbúð/vinnustofu sem er nýbyggð á frábærum stað í Þingholtunum. Glæsilegt
baðherbergi. Komdu við og skoðaðu eignina. Hentugt einbýli fyrir þá sem eru ekki
að leita að stóru húsi. Verð 31,5 m.
Húsið verður sýnt milli kl. 17 og 18 í dag, gengið er inn frá Válastíg. Bárður
verður á staðnum og veitir upplýsingar í 896 5221, hringdu ef þú ratar ekki.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Stefán Jóhann Stefánsson
varaborgarfulltrúi og hagfræðingur
www.stefanjohann.is
3
Veljum Stefán Jóhann
í þriðja sætið
Prófkjör Samfylkingarinnar
í Reykjavík 11. og 12. febrúar.
Velferð
Jafnrétti
Lífsgæði
FYRSTI fundur safnráðs Lista-
safns Reykjavíkur var haldinn á
Kjarvalsstöðum í gær með safn-
stjóra safnsins, Hafþóri Ingv-
arssyni.
Í þessu fyrsta safnráði Lista-
safns Reykjavíkur eru Gunnar
Dungal, fyrrv. forstjóri Pennans,
Christian Schoen, listfræðingur og
stjórnandi Kynningarmiðstöðvar
íslenskrar myndlistar, Hrafnhildur
Schram listfræðingur og Sigurður
Gísli Pálmason athafnamaður.
Hlutverk ráðsins er fyrst og
fremst að vera listasafninu til
ráðuneytis, taka þátt í stefnu-
markandi umræðu fyrir hönd
menningar- og ferðamálaráðs
Reykjavíkur og efla enn frekar
umræðu um listir. Það mun einnig
leita leiða til fjáröflunar, annars
vegar frá styrktaraðilum og hins
vegar í gegnum svokallaðar sér-
tekjur.
Telur ekki hættu
á hagsmunaárekstrum
Aðspurður telur Christian Scho-
en ekki vera hættu á hagsmuna-
árekstrum á milli starfs síns inn-
an Kynningarmiðstöðvar
íslenskra lista og setu sinnar í
safnráði Listasafns Reykjavíkur.
Hann álítur að hlutverk sitt sé
fyrst og fremst að efla framgang
íslenskrar listar. Starf sitt innan
kynningarmiðstöðvarinnar eigi
ekki að hafa áhrif á setu sína inn-
an safnráðsins enda sitji hann þar
ásamt fimm öðrum og ákvarðanir
sem þar séu teknar verði teknar
sameiginlega.
Á fundinum voru Hrafnhildur
Schram og Christian Schoen skip-
uð í innkaupanefnd safnsins og
fer val á listaverkum eftir list-
rænu gildi verkanna hverju sinni.
Ráðið lýsti yfir vonbrigðum sínum
með það framlag sem því var
ánafnað til kaupa á íslenskri
myndlist en það voru 13 milljónir
króna og er reiknað með að inni í
þeirri tölu séu viðgerðir á verkum
í eigu safnsins. Vakin var athygli
á því að hinn 18. febrúar næst-
komandi verður haldið málþing
um myndlist í opnu rými og er
vonast til að í kjölfar þess verði
framlag borgarinnar til safnsins
endurskoðað.
Myndlist | Nýtt safnráð tekur til starfa
Vilja efla listumræðu
Moragunblaðið/RAX
Nýtt safnráð Listasafns Reykjavíkur ásamt forstöðumanni þess, Hafþóri
Yngvasyni, á sínum fyrsta fundi á Kjarvalsstöðum í gær.
Eftir Hrafnhildi Brynju Stefánsdóttur
Ýmir, í kvöld kl. 20
MYRKIR músíkdagar standa nú
sem hæst. Píanótónleikar Tinnu
Þorsteinsdóttur í Ými í kvöld eru til-
einkaðir náttúrunni og píanóinu.
Laugarborg, í kvöld kl. 20.30
Hymnodia – Kammerkór Akureyr-
arkirkju syngur í Laugarborg í
kvöld undir stjórn Eyþórs Inga
Jónssonar kantors. Íslensk, norður-
amerísk og norræn verk eru á efnis-
skránni, og frumflytur kórinn tvö
verk norðlenskra tónskálda: Hjá
lygnri móðu eftir Davíð Brynjar
Franzson og Í fjallasal eftir Jón
Hlöðver Áskelsson. Hymnodia kem-
ur svo til Reykjavíkur á laugardag,
og syngur í Langholtskirkju kl. 17.
Háskólabíó, annað kvöld kl. 19.30
Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur á
Myrkum músíkdögum nú eins og
síðustu ár, og á tónleikunum verða
flutt fjögur verk: Þrenjar eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson, Sjöstirni eftir
Eirík Árna Sigtryggsson, Sinfónía
nr. 1 eftir Þorstein Hauksson og Sjö
byltur svefnleysingjans eftir Harald
Vigni Sveinbjörnsson, en verkið var
samið fyrir Sinfóníuhljómsveit Hels-
ingjaborgar, og var tilnefnt til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna í
fyrra. „Ég var að leita að formi og
aðferðum við að smíða verkið og
heilu dagarnir fóru í það. En bestu
hugmyndirnar komu þó alltaf um
leið og ég lagðist á koddann. Þá fór
allt í gang. Á endanum gafst ég upp
á „daghugmyndunum“ og notaði
þær sem komu til mín á koddann,“
segir Haraldur um tilurð verksins og
nafngiftina.
Þetta er í fyrsta sinn sem Sinfón-
íuhljómsveitin spilar verk eftir Har-
ald Vigni, og hann segir það skipta
miklu máli fyrir sig. „Þótt verkið
hafi verið flutt tvisvar áður, þá er
það ekki það sama. Sinfón-
íuhljómsveit Íslands er á allt öðrum
standard; Rumon Gamba að stjórna,
og Íslendingar að hlusta. Þessi flutn-
ingur hefur því mesta merkingu fyr-
ir mig, og verður spennandi.“
Laugarborg, annað kvöld kl. 20.30
Argentínski gítarleikarinn Sergio
Puccini leikur verk eftir amerísk og
spænsk tónskáld, en líka glænýtt
verk, Within the Circle, sem Karól-
ína Eiríksdóttir samdi fyrir hann.
Tónleikar hans verða endurteknir í
Norræna húsinu á laugardag kl. 15.
Ýmir, föstudagskvöld kl. 20
Norrænir tónleikar með verkum eft-
ir Hedin Davidsen frá Færeyjum,
Lars Petter Hagen frá Noregi, Mir-
jam Tally frá Eistlandi, og Íslend-
ingana Camillu Söderberg og Rík-
harð H. Friðriksson.
Ýmir, laugardag kl. 13
Thor Vilhjálmsson er meðal flytj-
enda á ítölskum tónleikum í Ými, þar
sem flutt verður verkið Questio eftir
Maurizio Pisati við texta Dantes.
Thor ljær skáldinu rödd sína, en
hljóðfæraleikarar eru Eiríkur Örn
Pálsson trompetleikari og Steef van
Oosterhout slagverksleikari, en tón-
skáldið stýrir tónbandi.
Ýmir, laugardagskvöld kl. 20
Söngur rökkurs og ryks er yfirskrift
annarra tónleika Caput á Myrkum
músíkdögum. Einsöngvari verður
Ásgerður Júníusdóttir en Daníel
Bjarnason stjórnar.
Ekkert verkanna sem þar verða
flutt hefur heyrst áður hér á landi,
en þau eru La citta invisbili eftir
Arnar Bjarnason, Hviða eftir Davíð
Brynjar Franzson, Song of Dusk
and Dust eftir Daníel Bjarnason,
Vetrarkvíði eftir Hauk Tómasson og
Play and Destroy eftir Atla Ingólfs-
son.
Norræna húsið, sunnudag kl. 14
Ný verk fyrir einleikshljóðfæri og
gagnvirka tölvu verða í sviðsljósinu
á þriðju tónleikum Caput á hátíðinni,
en höfundur allra þeirra er Lars
Graugaard.
Ýmir, sunnudag kl. 16
Semballinn er ekki bara fyrir gamla
músík, og hér gefst færi á að heyra
nýja músík fyrir þetta gamla hljóð-
færi, – meðal annars glænýtt verk,
Tif, eftir Svein Lúðvík Björnsson.
Guðrún Óskarsdóttir er einleikari,
en með henni leikur Kolbeinn
Bjarnason á flautu.
Ýmir, sunnudag kl. 20
Lokatónleikar Myrkra músíkdaga
verða á sunnudagskvöld þegar
Kammersveit Reykjavíkur frum-
flytur nýtt verk, Hræddur í fótunum
eftir Þuríði Jónsdóttur, og nýjan
óbókonsert eftir John Speight, auk
þess að leika eldri verk eftir Leif
Þórarinsson, Karólínu Eiríksdóttur
og Atla Heimi Sveinsson. Einleikari
kvöldsins verður Daði Kolbeinsson,
en Bernharður Wilkinson stjórnar.
Tónlist | Sjö byltur svefnleysingja og nýr óbókonsert
Koddahugmynd-
irnar langbestar
TINNA Þorsteinsdóttir segir að
náttúran verði færð inn í tónleika-
salinn í bókstaflegri merkingu á
tónleikum hennar í Ými í kvöld.
Tónleikarnir verða þó einnig
helgaðir minningu hins kunna
listamanns Dieters Roths. Hug-
myndin að tónleikunum kviknaði
hjá Tinnu og ameríska tónskáld-
inu Greg Davis fyrir nokkrum ár-
um, en hann kemur fram með
Tinnu á tónleikunum.
Það muna margir eftir þeirri
tilraunastarfsemi sem fram fór
upp úr miðri síðustu öld með pí-
anóið, og þeim æfingum sem tón-
skáld gerðu með að breyta hljóði
þess með ýmsum aðskotahlutum.
Þetta var kallað „prepared
piano“. Á tónleikum Tinnu í kvöld
birtist píanóið í ýmsu formi, hug-
takið „undirbúið píanó“ er end-
urvakið á nýjan hátt. Heið-
ursgestur tónleikanna er flygill
Dieters Roths sem var fenginn að
láni hjá Birni Roth fyrir tónlist-
argjörning í anda listamannsins.
Við spyrjum Tinnu betur um Greg
Davis, og tengslin við Dieter
Roth.
„Greg Davis á þrjú verk á tón-
leikunum, þótt við höfum reyndar
unnið þau talsvert í samvinnu.
Þau eru öll að heyrast hér í fyrsta
sinn. Greg er bæði raftónlist-
armaður og útlært tónskáld. Hann
er frekar framúrstefnulegur í
verkum sínum og tónleikarnir
bera keim af því. Hugmyndin var
að víkka út hljóðheim píanósins,
og jafnvel skapa úr því ný hljóð-
færi.“
Á meðan við Tinna spjöllum er
unnið að því að setja upp fimmtán
slagverkshljóðfæri, sem Tinna
mun stjórna frá píanóinu. „Píanó-
ið verður allt annað hljóðfæri en
það virðist vera.“ Tinna kallar
það „lífrænan gjörning“, þá músík
sem Greg Davis samdi fyrir
nokkrum árum, en heyrist nú í
fyrsta sinn hér í flutningi sem til-
einkaður er Dieter Roth. „Það er
mjög í anda Dieters Roth, en
hann notaði forgengilega hluti í
verkum sínum og umbreytti
gjarnan hversdagslegum hlutum.
Ég ætla ekki að segja of mikið …
en píanóið hans fyllist beinlínis af
lífrænu dóti.“
Tónleikar Tinnu hefjast á þátt-
um úr Mikrokosmos II eftir
George Crumb, og kveðst hún
hafa valið það verk vegna þess að
Crumb var einn af frumkvöðl-
unum að því að breyta hljóðheimi
píanósins. Eftir þrjú verk Gregs
Davis eru Fjórar myndir eftir Gi-
acinto Scelsi, sem Tinna segir
byggðar á spuna.
Sononymus For Piano – meitlað
í stein, eftir Hilmar Þórðarson, er
glænýtt. „Þar er lítil víd-
eómyndavél fest við píanóið og
hún tekur upp hreyfingar mínar,
setur inn á tölvu og varpar upp á
vegg – það verður mjög falleg
grafík úr því. Með hreyfingum
mínum í loftinu stjórna ég píanó-
inu sjálf, þannig að ég get látið
„sándið“ breytast eftir því hvern-
ig ég hreyfi mig – og þetta er al-
veg nýtt. Ég get breytt hljómnum
með því einu að hreyfa mig.“
Tinna tekur undir það aðspurð,
að straumarnir í tónlist síðustu
ára hafi einkennst af því að tón-
listin væri falleg og hugljúf. „Ég
er þó ekki frá því að tilrauna-
starfsemin sé að koma aftur inn í
tónlistina og mér finnst fólk al-
mennt opnara fyrir henni í dag en
áður. Ég held að tæknin ráði
miklu um þetta – en svo er þetta
líka bara endalaus leit að nýjum
leiðum þar sem sköpunargleðin
fær að blómstra.“
Tinna segir að tónleikarnir
verði ekki bara fyrir eyrað, – þeir
verði talsvert fyrir augað líka.
„Tónlistarmenn eru farnir að iðka
myndlist og myndlistarmenn tón-
list – þannig er þróunin, og mörk-
in milli listgreina halda áfram að
þynnast. En kannski snýst það við
aftur einhvern tíma.“
Lífræna píanóið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tinna Þorsteinsdóttir og Greg Davis.