Morgunblaðið - 08.02.2006, Side 50

Morgunblaðið - 08.02.2006, Side 50
50 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM**** WALK THE LINE kl. 5.30. 8 og 10.30 B.i. 12 ára FUN WITH DICK AND JANE kl. 8 og 10 MEMOIRS OF A GEISHA kl. 5.20 WALK THE LINE kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA WALK THE LINE LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA THE FOG kl. 8 B.I. 16 ÁRA CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 4 og 6 HOSTEL kl. 10.10 B.I. 16 ÁRA Epískt meistarverk frá Ang Lee „... ástarsaga eins og þær gerast bestar - hreinskilin, margbrotin og tilfinningarík...“ eeeee L.I.B. - Topp5.is 4 Golden Globe verðlaun TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA M.a. besta myndin, bestu leikarar, besta handritið og besti leikstjórinn.8walk the line „Enginn ætti að láta Walk the Line framhjá sér fara því myndin er auðgandi fyrir augun, eyrun og hjartað.“ V.J.V Topp5.is STÓRKOSTLEG VERÐLAUNAMYND UM ÆVI JOHNNY CASH. NATIONAL BOARD OF REVIEW BESTA MYND ÁRSINS, BESTI LEIKARI OG LEIKKONA ÁRSINS F U N VINSÆLASTA MYNDIN á Íslandi í dag! N ý t t í b í ó NEW YORK FILM CRITICS´ CIRCLE BOSTON SOCIETY OF FILM CRITICS SCREEN ACTORS GUILD (SAG) „…Walk the Line er eins og klettur, sterk ástarsaga og mannlífsdrama sem lætur engan ósnortinn.“ S.V. Mbl. „Í heild er Walk the Line frábær kvikmynd; vönduð, átakanleg og bráðskemmtileg. Mynd sem ekki aðeins aðdáendur Cash ættu að njóta heldur allir sem hafa gaman af fyrsta flokks kvikmyndum.“ M.M.J Kvikmyndir.com FROSTI Logason, betur þekktur sem Frosti í Mínus, hefur verið ráð- inn verkefnastjóri nýs útgáfufélags Cod Music sem Tónlist.is stendur að baki. Í fréttatilkynningu sem barst frá forsvarsmönnum nýja útgáfu- félagsins er hugmyndin sú að gefa tólf til fimmtán flytjendum tæki- færi til að taka upp tónlist við bestu aðstæður sem fylgt verður eftir með öflugri markaðssetningu. Er hér um hefðbundna útgáfu að ræða nema að tónlistin er aðeins gefin út sem niðurhal á netinu og í farsíma til að byrja með. Segir enn fremur að ef sýnt þykir að ákveðnir flytjendur hafi gott efni fram að færa sem líklegt er til að ná hylli verður farið í útgáfu á geisla- diskum í framhaldinu. 12–15 flytjendur valdir Ásamt Frosta mun sérstakt tón- listarráð velja tilvonandi 12–15 flytjendur. Þeim verður síðan stefnt í hljóðver og gerðar prufu- upptökur. Gert er ráð fyrir að að minnsta kosti sex flytjendur verði valdir til áframhaldandi vinnslu og afraksturinn verði gefinn út á vefn- um þar sem gestir og gangandi fá tækifæri til að hafa áhrif hverjir þrír verða valdir til fullbúinnar út- gáfu. Þar er átt við markaðs- setningu með myndböndum og til- heyrandi. Þessi vinna mun fara fram á tímabilinu febrúar–maí 2006 og þegar upp er staðið er stefnt að því að þó nokkur fjöldi nýrra flytjenda muni hafa náð eyrum almennings. Einu skilyrðin fyrir þátttöku eru þau að viðkomandi flytji eigið efni. Ekki er einblínt á ákveðnar tónlist- arstefnur en þó er frekar leitað eft- ir ungum flytjendum sem hafa eitt- hvað fram að færa tónlistarlega og eru líklegir til að ná hylli. Tónlist.is verður þriggja ára í apríl. Um 300.000 stakir gestir hafa sótt vefinn heim, 30.000 hafa skráð sig til að kaupa tónlist og um 3.000 áskrifendur greiða mánaðarlega áskriftargjald. Plötufyrirtæki á netinu Morgunblaðið/Eggert Frosti Logason, betur þekktur sem „Frosti í Mínus“. Nánari upplýsingar er að finna á www.tonlist.is og á vefsíðunni www.cod.is. Áhugasömum flytj- endum er bent á að mögulegt er að senda inn efni á vefnum eða koma prufuuppökum ásamt til- heyrandi upplýsingum til Tónlist.is í Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Tónlist | Frosti í Mínus verkefnastjóri nýja útgáfufyrirtækisins Cod Music á vegum Tónlist.is HLJÓMSVEITIN Mannakorn fagnar því um þessar mundir að 30 ár eru frá því að fyrsta plata sveit- arinnar, Mannakorn, kom út. Ætlar hljómsveitin af því tilefni að halda afmælistónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld og á morgun en þar ætla Magnús Eiríksson og Pálmi Gunn- arsson að flytja brot af lögum Mannakorna auk laga sem þeir hafa flutt hvor í sínu lagi. Pálmi er spurður hvort hann muni hvaða lög voru á umræddri plötu sem nú fagnar stórafmæli. „Já, já. Þarna voru nokkur lög sem urðu mjög vinsæl, „Ó þú“ til dæmis og „Blús í G“ og svo tvö lög sem Villi heitinn söng með okkur.“ Pálmi segir að á þessum tíma hafi þeir starfrækt danshljómsveit sem spilaði út um allar trissur. „Við flug- um hvert á land sem var og spiluðum á böllum, það var ekkert rútukjaft- æði.“ Pálmi segir að hver einasta helgi hafi farið í að spila en sveitin hafi svo að segja skipt um búning eftir því hvers konar skemmtun var að ræða. Hljómsveitin Mannakorn var þó að nafninu til ekki formlega stofnuð því að á þessum tíma gekk hún undir nokkrum mismunandi nöfnum – svo sem Lísa og Danshljómsveit Pálma Gunnarssonar en síðarnefnda nafnið var notað þegar um fínni atburði var að ræða. Einn daginn hafi þeir hins vegar verið að ræða málin og spurt Magnús hvort hann ætti ekki ein- hver lög sem sveitin gæti spilað. Að lokum varð það úr að Fálkinn gaf þetta lagasafn út og platan fékk nafnið Mannakorn. „Það má því segja að sveitin hafi verið skírð í höfuðið á plötunni en ekki öfugt.“ En með þrjátíu ár að baki og enn að, hvað heldur Pálmi að sé gald- urinn á bak við samstarfið? „Ég held að það sé bara fé- lagsskapurinn og vinskapurinn en svo höfum við mjög líkan tónlist- arsmekk. En fyrst og fremst höfum við í þrjátíu ár gengið í gegnum súrt og sætt saman.“ Pálmi segir að lagavalið í kvöld og á morgun verði eins konar úrval bestu laga. „Við spilum þessi lög sem fólk þekkir. Hins vegar reynum við að spila þau öðruvísi í hvert sinn án þess þó að breyta miklu. Við verðum með stórt band og ég veit að það verður mikil spilagleði við völd.“ Pálmi er að lokum spurður hvert sé uppáhaldslagið hans með Manna- kornum. „Ég get ekki svarað því. Þetta er svipað og ef þú spyrðir mig hvert væri uppáhaldsbarnið mitt.“ En það sem þér finnst skemmti- legast að spila á tónleikum? „Mér dettur í hug lag sem Maggi samdi og er eitt af nýjustu lögunum hans og heitir „Jesús Kristur og ég“. Svo er alltaf gaman að spila „Göng- um yfir brúna“ sem var samið fyrir 30 árum og vísar öðrum þræði í stór- iðjuframkvæmdir sem þá voru að hefjast. Textinn við lagið er skemmtilegur og fjallar um um- gengni okkar við náttúruna. Svo hef ég auðvitað mjög gaman af „Gleði- bankanum“.“ Hvað með framhaldið? „Ég veit það ekki. Við spilum nátt- úrlega eitthvað meira til að fagna þessum áfanga og svo hefur það komið til tals að við Maggi réðumst í að gera nýja plötu. Þetta er samt svo afstætt að það er ómögulegt að skipuleggja svona hluti. Við höfum líklega aldrei farið inn í hljóðver og sagt „ókei, nú gerum við plötu“. Okkur finnst best að fara inn í hljóð- ver þegar við erum komnir með efni sem okkur líkar.“ Tónlist | Mannakorn fagnar Morgunblaðið/Ásdís Þeir Maggi Eiríks og Pálmi Gunnars hafa gengið í gegnum súrt og sætt saman. „Ekkert rútu- kjaftæði“ Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is Tónleikarnir fara fram í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 8. febr- úar kl. 20 og fimmtudaginn 9. febrúar kl. 20. www.salurinn.is.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.