Morgunblaðið - 10.02.2006, Side 27

Morgunblaðið - 10.02.2006, Side 27
Morgunblaðið/Ómar Besti stóll í heimi. Það er kært með Hrafnhildi og langalangömmustólnum. EINN er sá stóll sem er Hrafn- hildi Viðarsdóttur kærari en aðr- ir stólar, enda hefur hann verið hluti af lífi hennar frá því hún man eftir sér. „Langalangamma mín, Lilja Friðriksdóttir, hús- móðir á Kötluhól í Leiru þar sem nú er Hólsvöllur, fékk þennan stól í sextugsafmælisgjöf hinn 22. ágúst árið 1921. Hann er því kominn til ára sinna, orðinn 85 ára gamall garmurinn. Lilja bjó hjá dætrum sínum Maríu og Mar- gréti þar til hún dó, en þá gekk stóllinn í arf til Margrétar þar sem hún var yngst af börnum Lilju. María fékk hann svo þegar Margrét systir hennar dó en þeg- ar hún fór á elliheimili gekk stóllinn í arf til móður minnar, Maríu Grétu Ólafsdóttur, sem aftur er yngst barna föður síns Ólafs, sem var bróðursonur Mar- íu. Mamma gaf mér svo stólinn þegar ég flutti að heiman þar sem ég er yngsta barn hennar. Ég geri fastlega ráð fyrir því að mitt yngsta barn muni svo taka við stólnum þegar þar að kemur til að viðhalda þessari skemmti- legu hefð.“ Hrafnhildur segir stólinn æv- inlega hafa verið í miklu uppá- haldi hjá sér og sér hafi sem krakka þótt mjög gaman að leika sér í honum. „En það var ekki síður gott að sitja í honum og lesa eða slaka á.“ Álög á skammel sem fylgir stólnum Móðir hennar lét yfirdekkja hann fyrir nokkrum árum því hann var orðinn gatslitinn. „Enda vorum við systurnar bún- ar að hnoðast í honum frá því við vorum litlar, en upphafleg bólstrun hefur haldið sér. Hann er eins og nýr eftir andlitslyft- inguna og ég tók hann með mér þegar ég flutti hingað suður fyrir fjórum árum,“ segir Hrafnhildur sem er fædd og uppalin á Sauð- árkróki en býr nú í Hafnarfirð- inum, en Lilja langalangamma hennar bjó einmitt þar hjá dætr- um sínum, þannig að stóllinn er kominn aftur á heimaslóðir eftir langa dvöl norður í landi. „Þess- um stól fylgir skammel sem er enn fyrir norðan, en það brotnaði fyrir meira en tuttugu árum og pabbi hefur í mörg ár ætlað að laga það, en við höldum að á skammelinu hvíli einhvers konar álög, því hann fær sig af ein- hverjum ástæðum ekki til þess að gera við það.“  HLUTUR MEÐ SÖGU | Langalangömmustóll sem gengur til yngsta barns fyrri eiganda Garmurinn frá bernskunni á Króknum Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 27 DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR fyrir fagurkera á öllum aldri horft til austurs flæði eða fúnksjónasískt ævintýri traust og tímalaust einfaldleikinn í fyrirrúmilitríkir listaréttir lifun tímarit um heimili og lífsstíl – 02 2006 Tímaritið Lifun fylgir Morgunblaðinu í dag Vor- og sumarlisti Vor- og sumarlisti frá Freemans er kominn út. Í listanum er fatnaður fyrir konur og karla og yngstu kynslóðina svo og sængurföt og rúmteppi. Boðið er upp á 100% endurgreiðslurétt á þeim vörum sem viðskiptavinir þurfa að skila. Hægt er að kaupa sumarlistann í verslun Freemans eða panta hann í síma 565 3900. Vörulistinn kostar 600 krónur. Á www.free- mans.is er hægt að sjá meirihlutann af vörunum og þar er netverslun og hægt að leggja inn pöntun eða senda inn fyrirspurnir. Fitty-samlokubrauð Fitty samlokubrauð eru komin á markað en fyrir voru fáanlegar Fitty bollur og Fitty kjarna- brauð. Myllan þróaði Fitty línuna í samráði við íþróttanæringarfræðinga, einkaþjálfara og matvælafræðing Myllunnar. Vörurnar í Fitty línunni innihalda hátt hlutfall af grófu mjöli og eru þar með ríkar af trefjum, próteini, magní- um, kalki og E-vítamíni. Þannig veita brauðin náttúrulega vörn fyrir frumur líkamans, styrkja tann- og beinvef og bæta orkubúskap líkamans. Fitty samlokubrauðin fást í öllum matvöruverslunum. Kristall Mexican-Lime Ölgerðin Egill Skalla- grímsson hefur kynnt nýja tegund af kolsýrðu vatni; létt- kolsýrðan Kristal með mex- ican-lime bragði. Með því að nota minni kolsýru en gengur og gerist er komið til móts við þá sem sækjast eftir meiri mýkt í drykknum. Íslenskt vatn af því tagi hefur ekki ver- ið í boði áður. Kristall Mexican-Lime er með mildu og fersku súraldinbragði (lime) og fæst í 0,5 lítra flöskum.  NÝTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.