Morgunblaðið - 30.03.2006, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 30.03.2006, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða þér beint flug til Alicante í vor og sumar. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti á lægsta verðinu á www.heimsferdir.is. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Alicante í vor og sumar frá kr.10.799 Kr. 10.799 Flugsæti aðra leið með sköttum. Netverð. Ath. takmarkað sætamagn í boði. Kr. 22.188 Flugsæti báðar leið með sköttum. Netverð. Ath. takmarkað sætamagn í boði. Munið Mastercard ferðaávísunina Tryggðu þér lægsta verðið! TVÖ ungmenni voru flutt á sjúkra- húsið með grun um áfengiseitrun eftir að drykkjukeppni á veitinga- húsi á Sauðárkróki fór úr bönd- unum. Auglýst hafði verið svoköll- uð „skot“-keppni eða snafsa- drykkjukeppni og tóku 12 manns þátt. Starfsmenn útideildar hjá bæn- um komu inn á veitingastaðinn Bar- inn þar sem keppnin var haldin og töldu þeir að langflestir þátttak- endanna hefðu verið undir tvítugu. Þar af kepptu tvær stúlkur ásamt tíu strákum og innbyrti sigurveg- arinn, stúlka fædd 1986, 36 snafsa. Hin stúlkan í keppninni var 17 ára gömul og var það hún sem ásamt pilti þurfti aðstoð sjúkraliða. Talið er að 14 flöskur af sterku áfengi hafi verið tæmdar. Lögreglan kom á staðinn þegar sjúkralið var kallað út og er hún með málið í rannsókn. Verið var að undirbúa skýrslu- tökur af vitnum í gær til að varpa ljósi á atburðarásina. Telur lög- reglan drykkjuna með öllu óvið- unandi. Drykkjukeppni unglinga í lög- reglurannsókn HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur úrskurðað 25 ára gamlan karl- mann í viku gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á auðgunar- brotum sem hann er grunaður um. Um er að ræða vörur sem sviknar voru út úr byggingavöruverslun og millifærslur úr bönkum. Í gæslu vegna auðgunarbrota FORRÁÐAMENN Atlantsolíu hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þeir hvetja Ríkiskaup til að end- urnýja ekki samning um eldsneyt- iskaup ríkisstofnana sem rennur út 29. apríl næstkomandi. Jafnframt skora forráðamenn olíufélagsins á Ríkiskaup að fara með eldsneyt- iskaupin í útboð að nýju. Fram kemur að upphaflega hafi samning- urinn verið gerður við Olíufélagið og Skeljung um mánaðamótin jan- úar-febrúar árið 2003 að undan- gengnu útboði og gilti sá samn- ingur til tveggja ára með mögu- leika á framlengingu í tvö skipti. Fyrri framlengingarsamningurinn rennur út 29. apríl næstkomandi og telur Atlantsolía rétt að nýtt útboð fari fram til að gefa nýjum aðilum kost á að taka þátt í því auk þess sem það tryggði Ríkiskaupum lægsta mögulega verð fyrir um- bjóðendur sína. Hvetja Ríkis- kaup til útboðs á eldsneyti UPPSELT er í stæði á tónleika suð- ur-afrísku söngkonunnar Miriam Makeba en þeir eru liður í dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og munu fara fram í Laugardalshöll þann 20. maí. Óvenjulegt er að miðar í stæði seljist fyrr upp en miðar í stúku. Makeba hefur verið ötull tals- maður blökkumanna og var hún meðal annars í útlegð frá Suður- Afríku í 31 ár vegna andstöðu sinn- ar við aðskilnaðarstefnuna. Tónlist hennar hefur verið mjög vinsæl og hlaut hún meðal annars Grammy verðlaunin árið 1966 fyrir bestu þjóðlagaplötuna. Uppselt í stæði á tónleika Miriam Makeba LÖGREGLAN í Reykjavík hefur nú til athugunar auglýsingar í fjöl- miðlum um fjárhættuspil á Netinu. Um er að ræða erlendan spilavef á slóðinni betson.com sem hleypt hef- ur verið af stokkunum á íslensku. Lögreglan fékk tilkynningu um málið í gær, þótt ekki hafi borist kæra vegna þess. Samkvæmt lögum um happdrætti á Íslandi þá varðar það sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum að auglýsa happdrætti sem ekki hefur verið veitt leyfi fyrir samkvæmt lögunum. Ef brotastarfsemin er umfangsmikil eða ítrekuð getur hún varðað fangelsi allt að einu ári. Til greina kemur að kæra for- svarsmenn auglýsinganna eða stöðva birtingu auglýsinganna, að sögn lögreglu. Vafasamar aug- lýsingar í skoðun SJÓMAÐURINN á norska sel- veiðiskipinu Polarsyssel sem sóttur var langt norður í haf í fyrradag vegna veikinda var útskrifaður af sjúkrahúsi í gær að sögn læknis á Landspítalanum. Veikindi sjó- mannsins fólust í miklum blóðnös- um og var því ákveðið að senda þyrlu eftir honum. Sjómaðurinn útskrifaðurPRÓF fyrir verðandi sumarstarfsmenn Morgunblaðs- ins var haldið í gær í húsakynnum Verslunarskóla Ís- lands. Prófið stóð yfir milli klukkan 17 og 20 og þreyttu það um 100 manns. Prófið fólst í raunhæfum verkefnum, þar sem fréttamat, íslenskukunnátta, stíll og tungumálakunnátta var prófuð. Að sögn prófhöf- undar var prófið hæfilega snúið en þeir sem hæstir verða á prófinu mega eiga von á því að verða boðið í viðtal um sumarafleysingastarf á ritstjórn Morgun- blaðsins. Morgunblaðið/ÞÖK Próf fyrir sumarfólk RÍKISENDURSKOÐUN hefur sent formanni fjárlaganefndar Alþingis at- hugasemdir sínar við ummæli Vil- hjálms Bjarnasonar, aðjúnkts við Há- skóla Íslands, vegna sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum til svo- nefnds S-hóps. Er í bréfinu einkum vísað til þeirra ummæla Vilhjálms að útilokað sé að Hauck & Aufhäuser bankinn hafi verið eigandi að helm- ingshlut í Eglu hf., sem var aðili að S- hópnum og keypti rúmlega 71% af 45,8% hlut í Búnaðarbanka Íslands hf., sem ríkið seldi hópnum í janúar 2003. Í bréfi Ríkisendurskoðunar kemur fram að stofnunin átti fund með Vil- hjálmi og í framhaldi af því aflaði Rík- isendurskoðun ýmissa viðbótargagna og skýringa á málinu. Að mati stofnunarinnar kemur ekkert fram í þeim gögnum sem stutt geti þær víðtæku ályktanir sem Vil- hjálmur Bjarnason dregur af gögnum þeim sem hann hefur undir höndum og öðrum óformlegum upplýsingum sem hann kveðst búa yfir. Þvert á móti telur Ríkisendurskoðun að ekk- ert nýtt hafi komið fram í málinu. Ekki bein merki um fjárfestingu Í bréfi ríkisendurskoðanda kemur m.a. fram að hann óskaði álits Stefáns Svavarssonar, löggilts endurskoð- anda og dósents við HR, á því hvort unnt væri að fullyrða, með hliðsjón af upplýsingum í reikningsskilum Hauck & Aufhäuser fyrir árið 2003, að bankinn hefði ekki fjárfest í Eglu hf. „Í svari Stefáns, dags. 1. mars sl., bendir hann m.a. á að fjárfesting bankans í Eglu hf. rúmast vel innan liðarins „hlutabréf og önnur verðbréf með breytilegum tekjum“ í efnahags- reikningi bankans í reikningsskilun- um 2003. Þá bendir hann á að hafi bankinn selt hluta af fjárfestingu sinni í Eglu hf. á árinu 2004, séu tekjuliðir í ársreikningi bankans fyrir árið 2004, sem rúmi vel þann ágóða, sem hann kann að hafa haft af þeirri sölu. Eftir að hafa reifað málið kemst Stefán að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að fullyrða með því að rýna ein- ungis í reikningsskil þýska bankans fyrir árið 2003 að hann hafi ekki fjár- fest í Eglu hf. á árinu 2003. Það gagnstæða eigi raunar einnig við, þ.e. þess sjást ekki merki með beinum hætti að bankinn hafi fjárfest í fyrirtækinu. Hann tekur jafnframt fram að ekki sé skylda í reiknings- skilum banka að sundurgreina fjár- festingu í hlutabréfum eða öðrum verðbréfum og því hafi þýski bankinn verið í fullum rétti að veita ekki frek- ari upplýsingar um fjárfestingu sína í verðbréfum en hann gerði,“ segir í greinargerð Ríkisendurskoðunar. Stofnunin aflað sér einnig staðfest- ingar Hauck & Aufhäuser þar sem fram kemur að á meðan bankinn átti hlutabréf í Eglu hf. frá í janúar 2003 og fram í júní 2005 hafi þau verið færð í bókhaldi hans í samræmi við þýsk lagafyrirmæli og aðrar regl- ur þar í landi. Aflaði Ríkisendurskoð- un einnig staðfestingar frá endur- skoðendum reikninga bankans, KPMG í Þýskalandi, um að hlutabréf- in í Eglu hf. hafi verið færð í bókhaldi bankans í samræmi við þýsk lög. Þá segir í greinargerðinni að þýski bankinn hafi greint frá því, að þar sem hann hafi staðið að öllu varðandi kaupin á hlutabréfunum í Eglu í sam- ræmi við gildandi lög og reglur í Þýskalandi hafi hann ekki átt í nein- um sérstökum bréfaskiptum við þýska fjármálaeftirlitið, enda sérstök bréfaskipti óþörf þegar svo standi á. Ríkisendurskoðun aflaði gagna vegna sölu Búnaðarbankans Ekkert nýtt hefur komið fram í málinu Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is MAÐURINN sem fannst látinn á Flúðum í Árnessýslu á mánu- dag hét Pétur Benediktsson til heimilis að Lækjargötu 32 Hafnarfirði. Hann var fæddur 12. júlí 1984 og var nemi í sagn- fræði við Háskóla Íslands. Hann lætur eftir sig unnustu. Foreldr- ar hans eru Benedikt Þór Guð- mundsson og Guðrún Péturs- dóttir. Bænastund var haldin í Smár- anum í Kópavogi og Hjalla- kirkju á þriðjudag til minningar um Pétur sem var að góðu kunn- ur sem knattspyrnuþjálfari yngri flokka hjá Breiðabliki. Fannst látinn við Flúðir HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur vís- aði í gær frá dómi kröfu fyrrum yf- irlæknis á skurðstofu Landspítalans sem krafðist ógildingar á ákvörðun LSH um að leggja niður yfirlækn- isstöðuna. Þá var sjúkrahúsið sýkn- að af kröfu læknisins um miskabæt- ur og þóknun vegna innheimtu biðlauna. Stefnandi málsins starfaði hjá LSH frá árinu 1975 þar til hann lét af störfum í janúar 2004. Hann var yf- irlæknir á skurðstofu kvennadeildar frá árinu 1998, en í desember 2003 var ákveðið að skurðstofa kvenna- deildar yrði sameinuð svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusviði. Í kjölfarið var yfirlæknisstaðan lögð niður og lækninum sagt upp. Honum var boðið starf sérfræðings við kvennasvið sem hann afþakkaði. Eft- ir að hann hætti störfum fékk hann greidd biðlaun í 12 mánuði. Að mati dómsins voru ekki færð fullnægjandi rök fyrir þeirri stað- hæfingu stefnanda að hann hefði lög- varða hagsmuni af því að fá sérstak- lega leyst úr ógildingarkröfunni án þess að fram kæmi hverjar kröfur stefnandi telji sig eiga á hendur stefnda af þessu tilefni. Málið dæmdi Sigríður Ingv- arsdóttir héraðsdómari. Eiríkur Elís Þorláksson hdl. flutti málið fyrir lækninn og Anton Björn Markússon hrl. fyrir LSH. Kröfu yfirlæknis vegna uppsagnar vísað frá

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.