Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 48
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
FYRSTA JÓLALAG
ÁRSINS
AÐ HUGSA SÉR, ÞAÐ ERU
AÐEINS ÞRJÁR STUTTAR
VIKUR Í JÓL
MIKIÐ Á ÉG EFTIR AÐ
VERÐA LEIÐUR Á
ÞESSU LAGI
HEFUR MOLDVARPA
BROSAÐ TIL ÞÍN?
PABBI, SÓLIN ER AÐ
SETJAST OG KLUKKAN ER EKKI
NEMA ÞRJÚ!
KLUKKAN ER EKKI ÞRJÚ,
ÚRIÐ ÞITT ER BARA STOPP
STOPPAR
TÍMINN EKKI
ÞEGAR ÚRIÐ
STOPPAR?
NEI!
ÉG
HEFÐI
STUTT ÞAÐ
FÚLT, ÉG
ÆTLAÐI AÐ
VERÐA
RÍKUR Á
ÞESSARI
HUGMYND
ÁÐUR EN ÞÚ
GETUR LÆRT AÐ
ÞEKKJA AÐRA...
...ÞÁ VERÐUR ÞÚ
FYRST AÐ LÆRA AÐ
ÞEKKJA SJÁLFAN ÞIG
KOMDU SÆLL, ÉG HEITI EDDI
ÞAÐ ER EKKI SANN-
GJARNT AÐ BENJI HAFI
FENGIÐ STJÖRNU MEÐ
NAFNINU SÍNU Á
GANGSTÉTT
AF HVERJU Á ÉG
EKKI EITTHVAÐ Á
EINHVERRI
GANGSTÉTT?
ÞÚ SKILUR
EITTHVAÐ
EFTIR Á
GANG-
STÉTTINNI Á
HVERJUM
DEGI
...OG ÞAÐ
LÍTUR ENGAN
VEGINN ÚT
EINS OG
STJARNA
ÞÚ LÍTUR SJÁLF VEL
ÚT. MIKIÐ ER ORÐIÐ
LANGT SÍÐAN
LÍTUR
HVERFIÐ
ÖÐRUVÍSI ÚT
EFTIR ÁRS
FJARVERU?
NEI!
EKKI NEMA
HVAÐ HÚSIN
VIRÐAST LÍTIL
...JÁ, MIÐAÐ
VIÐ OKKAR
HVERFI
MIKIÐ ER
FJÖLSKYLDAN YKKAR
FALLEG
TÍGURINN GETUR
EKKI MEITT NEINN,
NÚNA
EN HVAR ER
KONAN SEM
ÖSKRAÐI?
ÉG ER
HÉRNA
HÚN ER
HEIL Á HÚFI
VERÐ AÐ
LÁTAST EKKI
ÞEKKJA HANA
KRAVEN
BJARGAÐI
LÍFI MÍNU
Dagbók
Í dag er fimmtudagur 30. mars, 89. dagur ársins 2006
Víkverji dagsinshefur heldur
óskemmtilega sögu að
segja. Dag nokkurn
nýlega keyrði hann
fram á kött sem lá í
dauðateygjunum á
miðri götu í Hlíða-
hjalla í Kópavogi.
Keyrt hafði verið yfir
greyið og bílstjórinn
sem verknaðinn
framdi hafði greini-
lega keyrt í burtu.
Víkverja krossbrá og
stöðvaði bifreið sína
og reyndi að gefa að-
vífandi bílstjórum
merki um að hringja í lögregluna.
Víkverji hafði í það sinnið nefnilega
skilið sinn síma eftir heima. Margir
keyrðu framhjá en enginn tók upp
símann fyrr en leigubílstjóri kom
að og hann tók upp símtæki sitt og
lét Víkverja vita að hann myndi
hringja. Þar sem Víkverji var dauð-
hræddur um að keyrt yrði yfir
köttinn aftur var hann þó kyrr
þangað til hann sá að lögreglan var
að koma. Ekki treysti Víkverji sér
til að fjarlæga köttinn af götunni
þar sem hann var hræddur um að
meiða hann enn meira en orðið var.
Þó var honum orðið ljóst áður en
lögregla kom að kötturinn var
dauður. Talsverð umferð var þenn-
an dag og mátti furðu sæta að bíl-
um á hraðferð skyldi ekki ekið yfir
köttinn að nýju. Ein-
ungis tveimur dögum
eftir þetta óskemmti-
lega atvik vildi ekki
betur til en svo að
Víkverji var að keyra
eftir Breiðholtsbraut-
inni og sá aftur dauð-
an kött á götunni.
Víkverji á afar sjaldan
leið um Breiðholts-
brautina og verður að
viðurkenna að hann
undrast ekki að keyrt
skuli yfir kött eða tvo
á þeirri götu miðað
við umferðarþunga.
Gríðarleg umferð var
þennan dag og Víkverji hafði engin
tök á að stöðva bifreiðina þó að
hann hefði gjarnan viljað sýna kett-
inum þá virðingu að fjarlægja hann
af götunni.
x x x
Kettir eru sjálfstæðar skepnur ogvilja gjarnan vera úti. Þó getur
Víkverji ekki annað en velt fyrir
sér hvort kattareigendur hljóti ekki
að þurfa að reyna að halda þeim
inni við á meðan mest umferð er
um götur borgarinnar.
Bílstjóri sem keyrir yfir kött
hlýtur einnig að vera skyldugur til
að huga að kettinum og láta svo
lögreglu vita eða koma honum til
réttra aðila. Brotalamir virðast
vera á því.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Borgarleikhúsið | Eftirvænting og einbeiting skín úr andliti litlu ballerín-
unnar í Dansskóla Guðbjargar Björgvins, en í fyrrakvöld frumsýndu dans-
nemar skólans ballettinn Coppelíu í Borgarleikhúsinu. Dansararnir voru á
aldrinum 4–20 ára, og allir gerðu þeir sitt besta og stóðu sig vel.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Í tjútjúpilsi með hnút í hári
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Því að ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt,
að eigi verði það kunnugt og komi í ljós .(Lúk. 8, 17.)