Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 22
V ið fórum að gæla við þessa hugmynd fyrir svona fimm árum,“ segir Þuríður „og þetta er fjórða sumarið sem við erum að renna í.“ Þuríður og eiginmaður hennar Jóel Friðrik fluttu á Laugarvatn fyrir tæpum fjórum árum og sjá sannarlega ekki eftir því. „Okkur hafði lengi langað til að sameina vinnustað, heimili og sumarbústað á einn stað.“ Lengi hafði togast á í þeim hvernig tím- anum skyldi skipt á milli vinnu- staðar og heimilis á meðan þau voru með eigin rekstur í Garðabæ, en þar ráku þau galleríið Fornný í 10 ár, þar sem Jóel var með bólst- urverkstæði og Þuríður vann með járn. „Á þessum tímapunkti ákváðum við að prófa að setja íbúðina á sölu og hún seldist daginn eftir, þá varð ekki aftur snúið. Þá vissum við að við áttum að gera þetta.“ Rekst- urinn sem þau eru með á Laug- arvatni er minni um sig en sá sem þau voru með í Garðabæ. „Við er- um vön að vinna saman,“ segir Jó- el, „og okkur langaði svo að vera með allt á einum stað.“ Þau segja að engin hræðsla hafi fylgt því að kúvenda lífinu á þenn- an hátt. „Við eigum eina dóttur,“ segir Þuríður, „og hún var að verða fjórtán ára þá,“ og Jóel skýtur inn í: „Hún hafði líka áhuga á að koma hingað í menntaskólann. Það togaði líka mikið í. Ef hún hefði ekki viljað þetta hefðum við aldrei farið úr bænum, það er svo einfalt,“ og bæt- ir svo við: „Það hefur sko ekki farið sekúnda í eftirsjá.“ Frí á öðrum tíma Það er líka annað sem er öðruvísi við að vera með gallerí á ferða- mannastað heldur en í bænum. „Nú er öll traffíkin hjá okkur á sumrin,“ segir Þuríður, „en var fyrir jólin þar. Það er ákveðinn léttir, það var alveg rosalegt álag alltaf fyrir jólin en núna hefur það snúist við og er á sumrin, þegar aðrir eru að fara í sumarfrí erum við á kafi. Við reyn- um að taka okkur frí á öðrum tím- um og högum þessu svolítið öðru- vísi.“ Eðli málsins samkvæmt er ró- legra hjá þeim í galleríinu yfir vetr- artímann. „Þess vegna þurfum við að vera tilbúin að stökkva í hvað sem er og grípa allt sem býðst, það finnst okkur reyndar bara svolítið gaman, tilbreyting. Það er líka allt- af nóg að gera í sveitinni, það vant- ar alls staðar fólk einhvern veginn og við höfum aldrei lent í því að vanta vinnu.“ Þuríður er menntað- ur tannfræðingur en hafði ekki unnið við fagið um hríð. „Ég skellti mér í gamla fagið mitt aftur og vinn á tannlæknastofu tvo daga í viku á Selfossi og svo er ég verk- taki hjá lýðheilsustöð með fræðslu fyrir grunnskólana.“ Lífið tekur miklum breytingum hjá fólki sem tekur sig upp á þenn- an hátt og flytur sig um set. „Það er öðruvísi líf á manni, miklu skemmtilegra og afslappaðra, við lítum á það sem forréttindi að kom- ast upp með það að búa hér,“ segir Þuríður. „Maður finnur það meira að segja á börnunum, þau eru miklu afslappaðri í skólanum hérna og stelpan er líka alsæl hér í menntaskólanum, er núna í öðrum bekk.“ Jóel tekur til máls. „Það er svo skrítið að það voru margir sem héldu að við værum orðin endanlega vit- laus, að ég ætlaði að vinna mína vinnu hér, það náttúrulega gæti ekki gengið!“ segir hann léttilega. „Það hefur hins vegar heldur betur gengið upp og verður alltaf betra og betra eftir því sem fólk fréttir af mér. Það er endalaust að gera. Ég er með sendibíl og sæki og afhendi, hvort sem það er hér í uppsveitunum, Reykjavík eða á Selfossi.“ Jóel er líka lærður smiður og hefur hlaupið í smíðar meðfram öðru. Matráðsmaður í íhlaupum Hann er þó í fremur óvenjulegu hlutverki þessa dagana. „Nú gef ég fimmtíu börnum að borða í hádeg- inu,“ segir hann. „Það er sko eld- aður matur uppi í menntaskóla og maður sem vinnur við það hér hjá sveitarfélaginu, hann er með sendi- bíl, að sækja matinn og keyra niður í grunnskóla. Þar tekur kona við matnum og gefur krökkunum að borða, vaskar síðan upp og gengur frá. Kallinn var að fara til Kanarí og bað mig að leysa sig af af því að ég er með sendibíl. Ég var alveg til í það. Nema hvað, konan sem sá um að gefa krökkunum matinn veiktist og þá var ekkert annað að gera en að ég gæfi liðinu að borða líka. Skólastjórinn sagði að ég yrði bara að klára dæmið, sletta á diskana og ganga frá og allt. Þannig að þú sérð að það er hlaupið í allt hérna og það er bara gaman að því.“ „Maður er svo virkur í svona samfélagi,“ segir Þuríður, „það eru allir með í öllu. Það er svolítið nýtt fyrir manni en mjög gaman.“ „Þetta er allt öðruvísi líf,“ segir Jóel, „og það langar örugglega marga að geta haft þetta svona,“ og Þuríður tekur við: „Það eru líka forréttindi að fá að ala upp börn á svona stað. Góðir skólar og mjög virkt íþróttalíf og frá- bær aðstaða,“ og hún heldur áfram. „Það sem er svo sérstakt við Laugarvatn er hvað hér iðar allt af lífi, skól- arnir eiga auðvitað sinn þátt í því.“ Á sumrin skiptir Laugarvatn al- veg um ham. „Þá fer skólafólkið en ferðamennirnir koma í staðinn.“ Laugarvatn var efst á óskalist- anum þegar þau ákváðu að taka sig upp. „Trúlega af því að við vorum búin að tengjast staðnum eftir að hafa átt sumarbústað í Efstadal í sjö ár.“ Þuríður hefur haldið námskeið í tengslum við járnið. „Ég hef boðið saumaklúbbum eða minni hópum upp í 8 að koma eina helgi, koma á laugardagsmorgni og fara heim í eftirmiðdag á sunnudegi. Þá fer hver og einn með lampa með sér heim sem viðkomandi hefur búið til sjálfur. Þá er ég í samvinnu við bændagistingu í Efstadal, þar er hægt að gista, og það verður skemmtileg helgi úr þessu. Það þarf síðan auðvitað ekkert að vera með gistingu í gegnum mig, það er hægt að gista hvar sem er.“ Flestir þeir sem detta inn um dyrnar hjá þeim Þuríði og Jóel eru Íslendingar. Útlendir ferðamenn stinga líka gjarnan inn nefinu. Þau eru enn að móta starfsemina og með margar hugmyndir í kollinum um reksturinn. Daglegtlíf mars  LÍFSSTÍLL | Hjón á Laugarvatni sameina vinnu, heimili og sumarbústað Ekki sekúnda í eftirsjá Morgunblaðið/Sigrún Þuríður og Jóel á verkstæðinu. Þau sitja í sófa sem Jóel hafði nýlokið við að gera upp. Morgunblaðið/Sigrún Þennan lampa bjó Þuríður til í sam- vinnu við Randalín á Egilsstöðum. „Það voru margir sem héldu að við værum orðin endanlega vitlaus,“ er meðal þess sem Jóel Friðrik Jónsson sagði Sigrúnu Ásmundar, en hann og eiginkona hans, Þuríður Steinþórsdóttir, tóku sig upp frá Garðabæ og fluttu á Laugarvatn. Þau segja hér frá breyt- ingunum sem urðu á lífi þeirra við þessa kúvend- ingu. „Við lítum á það sem forréttindi að komast upp með það að búa hér.“ sia@mbl.is LENGI hefur verið rökrætt hvort geislun frá farsímum hafi skaðleg áhrif á fólk. Ný rannsókn sýnir að geislunin örvar heilann þegar við sofum, að því er fram kemur á frétta- vef Aftenposten. Geislunin hefur áhrif á starfsemi heilans á fyrstu stigum svefnsins, þ.e. þegar viðkomandi er hættur að nota símann. Rannsóknin var gerð í Ástralíu og sýndi fram á að þegar heili verður fyrir geislun frá farsíma minnkar framleiðsla hans á melatóníni, þ.e. hormóninu sem m.a. stýrir svefni. Rann- sóknin fór þannig fram að 55 þátttakendur urðu fyrir far- símageislun sunnudagskvöld eitt áður en þeir gengu til náða. Vísindamennirnir kom- ust að því að geislunin leiddi til aukinnar virkni svokallaðra alfa-bylgna í heilanum en þær eru tengdar afslöppun og dag- draumum og hætta venjulega virkni þegar fólk sofnar. Þetta getur bent til þess að fyrsta stig svefnsins, áður en komið er í djúpan REM-svefn, sé ekki eins áhrifaríkt og það ætti að vera. Geislun frá far- símum gæti þess vegna haft þau áhrif að fólk sefur hrein- lega verr og finnst það síður úthvílt þegar það fer á fætur. Rannsóknin segir hins vegar ekkert um áhrif þess ef kveikt er á farsíma inni í svefn- herberginu og hann t.d. not- aður sem vekjaraklukka á náttborðinu. Geislun frá far- síma sem er ekki í notkun er hins vegar mun minni en þeg- ar verið er að tala í hann.  HEILSA Geislun örvar heilann í svefni 24 Mikill verðmunur á tómötum Lokað vegna starfsmannaferðar, í tilefni 50 ára afmælis fyrirtækisins, Opnum hress og kát 4. apríl. STOFNAÐ 1956 dagana 30.mars – 3.apríl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.