Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þetta er ekkert mál, strákar, Við kaupum bara pleisið.
Matvælaeftirlit fell-ur undir tvöstjórnsýslustig,
ríki og sveitarfélög. Þrjú
ráðuneyti og stofnanir
þeirra hafa með matvæla-
eftirlit að gera auk sveit-
arstjórna og heilbrigðis-
nefnda þeirra. Þetta
fyrirkomulag hefur oft í
för með sér ósamræmi í
verklagi og eftirlitsaðferð-
um, ómarkvissa verka-
skiptingu, óljósa ábyrgð
og flókna stjórnsýslu.“
Þetta er niðurstaða
stjórnskipaðrar nefndar
sem árið 2001 skilaði skýrslu um
framtíðarskipan opinbers mat-
vælaeftirlits. Nefndin taldi að
þetta skipulag hefði í för með sér
að íslensk stjórnvöld ættu í erfið-
leikum með að uppfylla kröfur í al-
þjóðasamningum, svo sem samn-
ingnum um Evrópska efnahags-
svæðið og samningnum um
Alþjóðaviðskiptastofnunina.
Matvælaeftirlit hér á landi
heyrir undir þrjú ráðuneyti, land-
búnaðarráðuneyti, sjávarútvegs-
ráðuneyti og umhverfisráðuneyti.
Þrettán sjálfstæðar stofnanir
sinna matvælaeftirliti, en þær eru
Hollustuvernd, Fiskistofa, Land-
búnaðarstofnun og á vegum sveit-
arfélaganna sinna tíu heilbrigðis-
nefndir eftirliti með matvælum.
(Landbúnaðarstofnun er ný stofn-
un, en áður var matvælaeftirliti á
vegum landbúnaðarráðuneytisins
sinnt af Yfirdýralækni og Að-
fangaeftirlitinu).
Hætt við að sameina eftirlit
og rannsóknir í eina stofnun
Vorið 2003 lagði forsætisráð-
herra fram frumvarp á Alþingi um
nýja stofnun, Matvælaeftirlit, sem
tæki yfir verkefni á sviði matvæla-
eftirlits og rannsókna á matvælum
sem sinnt er hjá áðurnefndum
stofnunum og heilbrigðisnefndum
sveitarfélaganna.
Frumvarpið var lagt fram til
kynningar en var ekki rætt á
þinginu. Skiptar skoðanir voru um
ýmsa þætti í frumvarpinu þó flest-
ir væru sammála að nauðsynlegt
væri að einfalda kerfið. Ágreining-
ur var innan ríkisstjórnarinnar
um það undir hvaða ráðuneyti
Matvælaeftirlitið ætti að heyra.
Þá kom talsverð gagnrýni frá
sveitarfélögunum og heilbrigðis-
nefndunum sem töldu að ekki væri
tekið nægilegt tillit til uppbygg-
ingar sveitarfélaganna á sviði heil-
brigðiseftirlits og skort hefði á
samráð við undirbúning málsins.
Frumvarpið var því ekki lagt
fram að nýju og raunar er fullkom-
lega óljóst hvernig það verkefni
sem hófst með nefndarskipan
1999 verður leyst. Ástæðan er
fyrst og fremst sú að málið er flók-
ið og ekki hefur náðst samstaða
um tillögur. Landbúnaðarráð-
herra tók hins vegar frumkvæðið
varðandi sinn þátt málsins og
sameinaði eftirlit með landbúnað-
arafurðum í eina stofnun, Land-
búnaðarstofnun.
Nú liggur fyrir Alþingi frum-
varp frá forsætisráðherra um
stofnun Matvælarannsókna hf.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
stofnað verði hlutafélag sem sinni
rannsóknum og nýsköpun á sviði
matvæla í þágu atvinnulífsins.
Gert er ráð fyrir að sjávarútvegs-
ráðherra skipi stjórn yfir stofn-
unina. Lagt er til að Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins, matvæla-
rannsóknir Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins og Iðntæknistofn-
unar Íslands (MATRA) og rann-
sóknastofa Umhverfisstofnunar
renni inn í þessa nýju stofnun.
Skilið á milli
rannsókna og eftirlits
Siv Friðleifsdóttir benti á það í
umræðum á þinginu að í frum-
varpinu sem kynnt var 2003 hefði
verið gert ráð fyrir að matvæla-
rannsóknir og matvælaeftirlit
yrðu sameinuð í einni stofnun. Nú
hefði verið ákveðið að klippa
þarna á milli og þetta nýja frum-
varp fjallaði eingöngu um mat-
vælarannsóknir en ekkert um
matvælaeftirlit.
Halldór Árnason, skrifstofu-
stjóri í forsætisráðuneytinu, sem
kom að samningu frumvarps um
Matvælarannsóknir hf., segir að
innan Evrópusambandsins sé al-
mennt sú stefna ríkjandi að skilja
að matvælarannsóknir og mat-
vælaeftirlit. Þetta frumvarp sé því
í samræmi við það sem sé að ger-
ast innan ESB. Hann segir að
óvíst sé hvaða breytingar verði
gerðar varðandi matvælaeftirlit.
Ráðgjafanefnd um opinberar eft-
irlitsreglur sé að ræða við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga um
leiðir til að einfalda kerfið. Halldór
segir að það skorti talsvert á sam-
ræmingu í matvælaeftirliti hér á
landi og fyrr en síðar verði að taka
á því máli líkt og mörg ríki Evr-
ópusambandsins hafi verið að
gera á síðustu árum.
Í umræðum á Alþingi um frum-
varp um Matvælarannsóknir hf.
var talsvert rætt um hvort skyn-
samlegt væri að þessi starfsemi
yrði rekin í hlutafélagi. Í greinar-
gerð með frumvarpinu er bent á
að samkeppni ríki í matvælarann-
sóknum hér á landi. Rannsóknar-
þjónustan Sýni ehf. hafi um nokk-
urra ára skeið starfað á þessu
sviði, en hjá fyrirtækinu starfa 15
manns. Ennfremur hafa nýlega
verið stofnuð fyrirtæki á þessu
sviði á Ísafirði og Akureyri.
Fréttaskýring | Matvælaeftirlit hér á landi
þykir flókið og samræmingu skortir
Ekki eining um
breytingar
Þrjú ráðuneyti, tvö stjórnsýslustig og
þrettán stofnanir sinna matvælaeftirliti
Margir aðilar sinna matvælaeftirliti.
11 mánuði tók að afgreiða
umsókn bónda um ísgerð
Flókin stjórnsýsla á þátt í því
að 11 mánuði tók af afgreiða um-
sókn frá bóndanum í Holtsseli í
Eyjafjarðarsveit um að setja á
stofn ísgerð. Umsókn um málið
var send Heilbrigðiseftirliti
Norðurlands eystra 15. apríl í
fyrra. Það sendi málið til Um-
hverfisstofnunar sem sendi málið
til yfirdýralæknis og Matvæla-
ráðs. Umsóknin var síðan af-
greidd jákvætt 21. mars sl., 11
mánuðum eftir að hún var send.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is