Morgunblaðið - 30.03.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 17
ERLENT
30 TOPPDAGAR ÆVINNAR
HNATTREISAN
Viltu búa á besta hóteli heims
RITZ-CARLTON, Hong Kong?
Allt 5* gististaðir, s.s. HILTON, KONRAD,
SHERATON, LE MERIDIEN
Ferðaklúbbur Ingólfs
HEIMSKRINGLA
Laugarásvegur 21, 104 Rvk.
Sími 89 33 400 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
KYNNING:
Í LOK FERÐANÁMSKEIÐS INGÓLFS
GRAND HÓTELI REYKJAVÍK
1. APRÍL KL. 16.30
Ókeypis aðgangur en aðeins gegn pöntun sími 89 33 400
Staðfestar pantanir í HNATTREISUNA teknar í lok kynningar.
Helmingi sæta þegar ráðstafað.
HEFURÐU SÉÐ EFTIRSÓTTUSTU STAÐI HEIMS?
Safn þess besta, sem heimurinn hefur að bjóða af fegurð og lífsgæðum, flug með bestu farkostum á leið um loftin blá.
Öll þjónusta sérvalin af Ingólfi Guðbrandssyni. Íslensk fararstjórn. INDLAND, THAILAND, HONG KONG, SHANGHAI,
TOKYO, HAWAII, KALIFORNIA fyrir hlægilegt verð.
EKKI 3,5 MILLJÓNIR - Í 20 DAGA (sbr. nýlega frétt)
AÐEINS RÚM 800 ÞÚS. Á MANN Í 30 DAGA (Gengi 1. mars 2006)
Jafngildir 1/4 alm. verðs. Geturðu sleppt slíku tækifæri?
Söluumboð:
Kabúl. AFP. | Afgani, sem átti yfir höfði sér
dauðadóm fyrir að snúast frá íslamstrú til
kristinnar trúar, kom til Ítalíu í gær eftir að
hafa verið leystur úr haldi í Afganistan.
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu,
staðfesti þetta á blaðamannafundi í Róm síð-
degis í gær. Hann sagði að Afganinn, Abdul
Rahman, hefði óskað eftir hæli sem pólitískur
flóttamaður og væri í umsjá ítalska innanríkis-
ráðuneytisins.
Roberto Maroni, vinnumálaráðherra Ítalíu,
sagði að Rahman hefði verið boðið hæli þar í
landi. „Ákvörðun hefur verið tekin. Málið hefur
verið leyst.“
Rahman hafði verið handtekinn samkvæmt
sharia-lögum sem heimila dauðadóma yfir
mönnum sem afneita íslam.
Hann var leystur úr haldi á laun á mánudag-
inn var og færður á leynilegan stað í Afganist-
an eftir að múslímaklerkar kröfðust þess að
hann yrði tekinn af lífi. Áður hafði hæstiréttur
Afganistans vísað málinu frá eftir að ættingjar
Rahmans sögðu dómurum að hann væri ekki
heill á geði.
Þrýstingur Vesturlanda gagnrýndur
Mál Rahmans vakti mikla athygli víða um
heim og vestræn ríki lögðu fast að stjórnvöld-
um í Afganistan að leysa hann úr haldi og
tryggja trúfrelsi í landinu. Margir afganskir
þingmenn gagnrýndu þennan þrýsting Vestur-
landa í gær og sökuðu þau um óeðlileg afskipti
af innanríkismálum Afganistans.
Rahman er 41 árs gamall og tók kristni fyrir
16 árum þegar hann starfaði fyrir kaþólsk
samtök við að hjálpa afgönsku flóttafólki í Pes-
hawar í Pakistan. Var hann síðan í mörg ár í
Þýskalandi en sneri heim fyrir þremur árum.
Rahman var handtekinn fyrir tveim vikum
eftir að komið höfðu upp deilur milli hans og
fyrrverandi eiginkonu, sem sakaði hann um að
vanrækja börn þeirra eftir að þau skildu.
Afganski trúskiptingurinn flýr
land og óskar eftir hæli á Ítalíu
Reuters
Abdul Rahman heldur á Biblíunni í dómhúsi í
Kabúl áður en hann var leystur úr haldi eftir
að hafa verið ákærður fyrir að afneita íslam.
Stokkhólmi. AP. | Starfandi utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, Carin Jämtin,
sagðist í gær hafa aflýst för sinni til
Darfur-héraðs í Súdan eftir að hér-
aðsstjóri þar lýsti því yfir að hún
væri enginn aufúsugestur, með vísan
til þeirrar rullu sem Svíar hefðu leik-
ið í skopmyndamálinu nýverið.
Jämtin kom til Súdan á þriðjudag í
tveggja daga heimsókn. Var mein-
ingin að skoða aðstæður í Darfur-
héraði í vesturhluta landsins þar sem
mikil neyð hefur ríkt og a.m.k.
180.000 manns týnt lífi, m.a. af völd-
um hungursneyðar og sjúkdóma, og
u.þ.b. tvær milljónir til viðbótar
þurft að flýja heimili sín vegna of-
sókna vopnaðra sveita araba, sem
sagðar eru njóta stuðnings stjórn-
valda í Khartoum.
Sænska útvarpið sagði að héraðs-
stjóri í borginni Al Fashir í Darfur
hefði sagt Jämtin að hún væri ekki
velkomin vegna þess að samtök öfga-
hægrimanna í Svíþjóð hefðu birt á
netinu skopmyndirnar af Múhameð
spámanni, sem birtar voru í danska
blaðinu Jyllandsposten í september
sl. og sem ollu mikilli reiði meðal
múslíma nýverið.
Jämtin sagði í samtali við sænska
útvarpið að sjónarmið héraðsstjór-
ans hefðu komið henni í opna
skjöldu. Kvaðst hún telja að í reynd
viki óánægja hans að því að ríki á
Vesturlöndum hafa þrýst á um að
Sameinuðu þjóðirnar sendi friðar-
gæslusveitir til Darfur.
Hætti við
ferð til
Darfur
Miami. AFP. | Dómstóll í Miami á
Flórída dæmdi í gær Jack Abramoff,
þekktan hagsmunavörð (lobbíista) í
Bandaríkjunum, í fimm ára og 10
mánaða fangelsi fyrir fjársvik og
samsæri.
Abramoff, sem
var í nánum
tengslum við
marga af forystu-
mönnum Repú-
blikanaflokksins,
gekkst við sakar-
giftunum, en þau
tengdust kaupum
hans á spilavíti.
Í öðru máli,
sem verið er að reka gegn Abramoff,
er hann ákærður fyrir skattsvik og
samsæri um að múta opinberum
embættismönnum. Rannsókn stend-
ur nú yfir á samskiptum hans við allt
að 20 bandaríska þingmenn sem
grunaðir eru um að hafa þegið fé eða
aðra fyrirgreiðslu af Abramoff. Er
talið að málið geti undið upp á sig og
sumir þingmenn hafnað í fangelsi.
Abramoff, sem er 46 ára, segist nú
iðrast afbrota sinna. Hann samdi um
refsilækkun gegn því að eiga fullt
samstarf við yfirvöld um rannsókn
málsins.
Abramoff
dæmdur í
fangelsi
Jack Abramoff
♦♦♦