Morgunblaðið - 30.03.2006, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 19
MINNSTAÐUR
Rif | Unnið er að undirbúningi bygg-
ingar vatnsátöppunarverksmiðju í
Rifi í Snæfellsbæ. Notað verður vatn
sem rennur undan Snæfellsjökli og
fyrirhugað að flytja það með skipi frá
Rifi á erlenda markaði. Aðstandendur
verkefnisins stefna að því að hefja
framkvæmdir í sumar og að fram-
leiðsla hefjist á fyrrihluta næsta árs.
Ef af verður gætu skapast fjörutíu til
áttatíu ný störf við þessa starfsemi á
næsta ári.
Bæjaryfirvöld í Snæfellsbæ hafa
unnið að breytingum á aðalskipulagi
bæjarins og deiliskipulagi í Rifi vegna
þessa verkefnis auk þess sem unnið
er að stækkun vatnsverndarsvæðis-
ins. Vinnan og verkefnið var kynnt á
íbúafundi í Snæfellsbæ í fyrrakvöld.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir
að skipulagstillögurnar verði nú aug-
lýstar.
Kristinn segir að unnið hafi verið
að þessu verkefni í tæpt ár. Þá hafi
verið gerður samningur um einkarétt
fyrirtækisins Íslindar til notkunar á
vatnslindinni til níutíu ára, þó með
þeim ákvæðum að af þessu verkefni
yrði innan tiltekins tíma. „Við erum
að skapa grunn fyrir verkefnið en það
er of snemmt að fullyrða að af því
verði. Það hefur fjöldi manns verið að
vinna að þessu í marga mánuði og
mér virðist að það sé gert af heilind-
um,“ segir Kristinn.
66 milljónir flaskna á ári
Birgir Viðar Halldórsson er frum-
kvöðull að þessu vatnsútflutnings-
verkefni. Hann segist hafa unnið að
því í sextán ár með ýmsum aðilum en
er bjartsýnn á að það gangi upp að
þessu sinni. Hann tekur þó fram að
ekkert sé hægt að fullyrða fyrr en
fjármögnun sé endanlega lokið. Ís-
lenska fyrirtækið Íslind stendur fyrir
verkefninu hér á landi en það er dótt-
urfyrirtæki breska fyrirtækisins Ice-
landia. Fjórir meginhluthafar standa
að því og segir Birgir Viðar að þeir
séu meðal annars frá Bandaríkjunum,
Kanada og Þýskalandi.
Rif varð fyrir valinu, að sögn Birgis
Viðars, vegna Snæfellsjökuls, um-
hverfismála, þjóðgarðsins og sögunn-
ar, auk þess sem þar sé mikið af góðu
vatni. Þarna sé efniviður í góða sögu
sem unnt sé að nota við sölu vatnsins.
Vatnið er tekið úr hrauninu undir
Snæfellsjökli og er ódýrt að virkja
það. Talið er að vatnið sem vatns-
átöppunarverksmiðjan þarf sé aðeins
um 5% af uppsprettunni. Vatnið verð-
ur leitt með leiðslu að höfninni í Rifi
þar sem byggt verður 12 til 15 þúsund
fermetra hús fyrir átöppunarlínu og
birgðahald. Fyrirhugað er að flytja
vatnið út þaðan með skipi. Kristinn
bæjarstjóri bendir á að með þessari
aðferð sé framleiðslan eins umhverf-
isvæn og hugsast geti.
Að sögn Birgis Viðars er reiknað
með að vatn í hálfs lítra flöskum verði
meginuppistaðan í framleiðslunni og
er áætlað að framleiða 5,5 milljónir
kassa á ári til að byrja með, eða um 66
milljónir flaskna. Að hans sögn verð-
ur lögð áhersla á sölu á hágæðamark-
að. Í upphafi verður vatnið boðið til
sölu í Bandaríkjunum og Þýskalandi.
Þegar verksmiðjan tekur til starfa
verða ráðnir 40 til 80 starfsmenn, að
sögn Birgis Viðars. „Þessi verksmiðja
mun hafa gífurlega þýðingu fyrir okk-
ur, ef af verður, því auk þeirra starfa
sem verða við verksmiðjuna sjálfa
hefur starfsemin margfeldisáhrif hér
í samfélaginu,“ segir Kristinn Jónas-
son bæjarstjóri.
Undirbúa byggingu vatns-
átöppunarverksmiðju í Rifi
Morgunblaðið/Alfons
Skipulag Hildur Haraldsdóttir arkitekt sýnir gestum á kynningarfundi í
Snæfellsbæ teikningar af nýju skipulagi vegna vatnsverksmiðju í Rifi.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Styrkja endurbætur
á skátaskálanum
Ísafjörður | Fánaþjónusta D.s. Serve
veitti nýlega Skátafélaginu Einherj-
um – Valkyrjunni á Ísafirði kvart-
milljón í styrk. Styrkurinn er veittur
til að hægt sé að klæða þak skáta-
skálans Dyngju í Dagverðardal við
Skutulsfjörð.
Undanfarið hafa staðið yfir mikl-
ar endurbætur á skátaskálanum og
hafa margar fórnfúsar hendur unn-
ið þar gott starf í þágu skátastarfs á
Ísafirði. Mest hefur munað um hjálp
foreldra úr félaginu. Einnig hafa
nokkrir fjársterkir aðilar lagt hönd
á plóg.
Fánaþjónustan D.s. Serve er félag
innan dróttskátasveitar Einherja –
Valkyrjunnar. Hún aflar fjár með
því að veita fyrirtækjum fánaþjón-
ustu á lögboðnum fánadögum. Fénu
er varið til eflingar skátastarfs á Ísa-
firði, einkum til framkvæmda og
viðhalds á búnaði skátafélagsins og
til að gefa skátum tækifæri á að
ferðast á skátamót í útlöndum og á
ýmiss konar námskeið. Áður hefur
fánaþjónustan meðal annars keypt
útilegutjöld fyrir skátafélagið.
♦♦♦
LANDIÐ
afsláttur af veitingum
afsláttur af Tomas Sabo vörum
afsláttur af snyrtivörum
afsláttur af Burberry töskum og Sand dömufatnaði
FRÍTT FYRIR ÞIG! Þegar þú pantar þér ný gleraugu fylgir frítt
par af sólglerjum með þínum fjærstyrkleika
Dagana 29. mars til 19. apríl njóta farþegar sem mæta í innritun fyrir klukkan 6.00 að
morgni sértilboða í verslunum flugstöðvarinnar.
Farþegum sem mæta á einkabílum fyrir klukkan 6.00 að morgni býðst
að geyma bílinn frítt í tvo sólarhringa á langtímabílastæði Securitas.
Við minnum farþega á að framkvæmdir standa yfir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
og hvetjum því fólk til að gefa sér góðan tíma fyrir flug.
afsláttur af Galerie kertastjökum frá Menu
afsláttur af gjafakassa sem inniheldur pressukönnu,
nýbrennt kaffi og súkkulaði. Verð nú: 2090 kr.
afsláttur af Kappa og And1 vörum og
15% afsláttur af Teva skóm
afsláttur af Lost in Iceland bolum
-ferð til fjár
Tilboðsdagar
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Allir sem koma í Landsbankann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og
kaupa gjaldeyri fá skemmtilega litabók með Sprota og félögum
fyrir börnin
afsláttur af flugfreyjutösku (50 cm á hjólum)
Verð nú: 3490 kr.
Ef þú kaupir BLUE LAGOON mineral moisturizing krem (200ml)
eða BLUE LAGOON mineral intensive krem (200ml) eða BLUE
LAGOON algae and mineral body lotion (200ml) þá færðu BLUE
LAGOON algae and mineral sturtugel (200 ml) að gjöf
Athugið að innritun hefst kl. 5.00
20%
25%
15%
15%
15%
20%
15%
20%
30%