Morgunblaðið - 30.03.2006, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 30.03.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 21 MINNSTAÐUR AKUREYRI Éljahraglandi áfram | Félagar í Veðurklúbbnum á Dalvík telja að norðanáttin og éljahraglandinn sem verið hefur norðanlands síðast- liðna daga munu vara fram yfir páska. Jafnvel líklegt að veður batni ekki að ráði fyrr en 27. apríl, á nýju tungli sem kviknar í vest- norðvestri. Ekki telja klúbbfélagar þó líklegt að nein stórviðri dynji yf- ir þennan mánuð.    Leiklist | Þráinn Karlsson leikari flytur fyrirlesturinn „Leiklist í for- tíð og nútíð“ á morgun, 31. mars kl. 14.50 í Ketilhúsinu. Þetta er þriðji og síðasti fyrirlesturinn sem skipu- lagðir eru af kennurum á listnáms- braut VMA í samvinnu við Lista- miðstöðina í Grófargili.    Sýning | Samúel Jóhannsson sýnir myndverk í Bókasafni Háskólans á Akureyri. Sýningin stendur til 1. maí nk. Samúel vinnur jöfnum höndum með akrílliti, vatnsliti, blek og túss. Safnið er opið frá kl. 8 til 18 virka daga og 12 til 15 laugardaga.    SAMFYLKINGIN hafnar tilhneig- ingu til einkavæðingar í rekstri skólastofnana á Akureyri, hugnast ekki sú braut sem lagt hefur verið út á í þeim efnum. Þá boðar flokkurinn afnám leikskólagjalda í áföngum, leggur til að stofnuð verði „Akureyr- arstofa“ og að bæjarfélagið taki að sér löggæslu í bænum af ríkisvald- inu. Samfylkingin kynnti í gær markmið sín og áherslur fyrir sveit- arstjórnarkosningar í maí í vor; yf- irskriftin var Nýjan meirihluta í bæjarstjórn í vor, en það er eitt helsta markmið flokksins að leysa núverandi meirihluta frá völdum. Takmarkið að tryggja kosningu þriggja fulltrúa í bæjarstjórn og skapa þannig sterka stöðu til að koma að nýjum áherslum í stjórn bæjarins. Hermann Jón Tómasson, sem skipar efsta sæti listans, er bæj- arstjóraefni flokksins. Styrkjakerfi fyrir barnafjölskyldur „Ég held að þessi hópur endur- spegli mikla breidd, við teflum fram nýju fólki í bland við reynslubolta, fólki sem tekið hefur þátt í bæjar- málunum til lengri eða skemmri tíma, þannig bjóðum við bæði upp á ferskleika og þekkingu,“ sagði Her- mann Jón þegar Samfylkingin kynnti áherslur sínar fyrir sveitar- stjórnarkosningar. Frambjóðendur hafa síðustu vikur verið á ferð og flugi, heimsótt tugi fyrirtækja, stofnana og félagasam- taka í bænum. „Við höfum hlustað eftir rödd hins almenna bæjarbúa,“ sagði Hermann, „það hefur mælst vel fyrir og skilar sér inn í áherslur flokksins fyrir kosningar.“ Komist Samfylking til valda á Ak- ureyri á næsta kjörtímabili munu leikskólagjöld verða afnumin í áföngum, „og við munum byggja upp styrkjakerfi fyrir barnafjölskyldur vegna íþrótta- og tómstundastarfs“, sagði Sigrún Stefánsdóttir, sem er í öðru sæti listans. Hún nefndi einnig að flokkurinn vildi byggja upp fé- lagssvæði íþróttafélaganna, KA og Þórs, byggja upp frjálsíþróttaað- stöðu og þjónustumiðstöð í Hlíðar- fjalli, „skíðahótelið er barn síns tíma“, sagði hún. Í nýjum hverfum mun Samfylkingin leggja áherslu á fleiri og minni skóla. Tengibrautirnar inn á skipulagið „Akureyrarstofa“, sem á að laða fjárfesta, stofnanir og fyrirtæki til bæjarins, er hugmynd sem Samfylk- ingarfólk hefur á stefnuskrá sinni að stofna til, „og við sjáum mikil tæki- færi í slíkri stofu sem hefði það hlut- verk að markaðssetja bæinn bæði innanlands og utan“, sagði Helena Karlsdóttir, sem er í fjórða sæti listans. „Það skortir framtíðarsýn í atvinnumálum hér, við munum ekki sitja aðgerðarlaus.“ Skipulagsmál verða fyrirferðar- mikil í komandi kosningabaráttu, að mati Ásgeirs Magnússonar sem er í fjórða sæti en hann nefndi m.a. aug- ljósan áhuga bæjarbúa á þeim mál- um í tengslum við aðalskipulag bæj- arins, sendar voru inn tæplega 2.200 athugasemdir við skipulagið. „Við viljum sjá Dalsbraut og Miðhús- abraut inni í skipulaginu, þetta eru nauðsynlegar tengibrautir,“ sagði hann og taldi að meirihlutinn núver- andi hefði staðið illa að málum, hann hefði farið út af sporinu. Annað dæmi varðaði miðbæinn, þar væri fyrirhugað að byggja á um 650 bíla- stæðum af þúsund sem fyrir væru. Benti hann einnig á að engar ein- býlishúsalóðir væru lausar í bænum og ráða þyrfti bót á því. Samfylkingin vill leysa núverandi bæjarstjórnarmeirihluta frá völdum í vor Hafna einkavæðingu skóla Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Samfylkingin á Akureyri kynnti helstu áherslur fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Frá vinstri: Margrét Krist- ín Helgadóttir, Helena Karlsdóttir, Hermann Jón Tómasson, Sigrún Stefánsdóttir og Ásgeir Magnússon. Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is Fagna samþykkt | Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri lýsir yfir ánægju sinni með samþykkt rík- isstjórnarinnar þess efnis að há- skólinn fái leiðréttingu á rekstr- argrunni sínum, um 60 milljónir króna. „Með þessu er verið að koma að hluta til móts við það mikla upp- byggingarstarf sem unnið hefur verið við háskólann og stóraukna eftirspurn að námi við skólann. Telja nemendur einnig að stjórn- völd séu með þessu að réttlæta hagsmunabaráttu þeirra og stað- festu í málaflutningi og því beri að fagna,“ segir í frétt frá stúdentum við Háskólann á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.