Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 45
MÓÐIR mín, Guð-
rún Lovísa Sigurðar-
dóttir, er níræð í dag.
Hún fæddist 30.
mars 1916 á Suðureyri
við Súgandafjörð, og
ólst upp þar vestra í
rúman áratug. Árið
1928 tók fjölskyldan
sig upp og flutti á
Akranes með allt sitt
hafurtask, og þar átti
heimili mömmu og
pabba eftir að standa
áratugum saman.
Fyrst í kjallaranum í
Tungu og síðan á Kirkjubraut 5. Síð-
ar fluttu þau til Reykjavíkur, fyrst á
Kleppsveginn og nú býr hún á
Hrafnistu, í húsi sem hún tók skóflu-
stunguna að fyrir nokkrum árum.
Á sama tíma og stéttabaráttan
var orðin hluti af tilverunni giftust
pabbi og mamma, hún dóttir útgerð-
armannsins Sigurðar Hallbjörns-
sonar og konu hans Ólafar Guð-
mundsdóttur, og hann Arnór Svein-
björnsson, sonur formanns verka-
lýðsfélagsins og seinna bókavarðar
Sveinbjörns Oddssonar og konu
hans Sesselju Sveinsdóttur.
Þessar andstæður hefðu orðið
mörgum ungum manneskjum fjötur
um fót, en ekki þeim. Þau höfðu
heitið hvort öðru vissum hlutum við
altarið og hvikuðu aldrei frá þeim.
Orð skulu standa.
Þau gerðu nánast alla hluti sam-
an. Þau störfuðu saman í versluninni
– og hjólaverkstæðinu á neðri hæð-
inni, og eyddu miklum tíma og natni
í að byggja þann rekstur upp, því á
opnunartíma afgreiddu þau, og þeg-
ar lokað var að kvöldi dags þurfti að
undirbúa næsta dag með skúring-
um, hilluáfyllingum, pöntunum og
alls kyns kvabbi. Allt sem gera
þurfti gerðu þau saman tvö.
Eina afþreyingin sem ég minnist
að mamma leyfði sér var að lesa
dönsku blöðin, og enginn veit hvern-
ig hún lærði dönskuna því ekki var
skólagangan löng. Þegar maður
spyr um slíka hluti þá gerir hún lítið
GUÐRÚN LOVÍSA
SIGURÐARDÓTTIR
úr því eins og öðru
sem að henni snýr.
Auk þess að standa
í verslunarrekstrinum
annaðist mamma
heimilið og okkur
börnin þrjú. Ernu
fædda í mars 1938,
Aðalheiði Rut (Heiðu)
í apríl 1944 og mig
Sigurð Eðvarð í maí
1949. Hún hefur alltaf
verið uppspretta ör-
yggis okkar, og ann-
aðist okkur af slíkri
natni að undrum sæt-
ir. Móðurást hennar er byggð á
bjargi, og breytir aldrei sér, eins og
segir í kvæðinu.
Mamma hefur aldrei reykt eða
drukkið, og lifað framúrskarandi
heilbrigðu lífi á allan hátt. Ég er viss
um að það er eitt af undirstöðuatrið-
um þess að hún nær nú háum aldri,
og heldur algerlega óskertu minni.
Hún tekur sig til á morgnana, eins
og hún kallar það, er einstaklega
glæsileg í klæðaburði, og ber sig af-
ar höfðinglega.
En það er annað í fari mömmu
sem ég veit að hefur haft afgerandi
áhrif á háan aldur hennar, og það er
trúfestan og vissan um að yfir henni,
og okkur öllum, sé vakað. Þessi trú-
festa hennar er mögnuð og er mér
endalaust mikil og jákvæð upp-
spretta og uppörvun.
Það er alltaf létt í kringum
mömmu, stutt í hláturinn og gam-
ansemina. Hún segir í dag að það sé
líklega kæruleysið sem geri það að
verkum að hún sé orðin þetta gömul,
en við sem til þekkjum veðjum á af-
skaplega létta lund. Hún fylgist
mjög vel með því hvað er að gerast
hjá hverju og einu okkar í þessum
stóra fjölskylduhóp og telur það
mikla blessun að eiga þennan stóra
og stöðugt stækkandi hóp afkom-
enda.
Mamma er ein af stofnsystrum
rebekkustúkunnar Ásgerðar á
Akranesi og starfaði um langt árabil
innan vébanda Oddfellowhreyf-
ingarinnar. Hún lagði mikla ástúð í
það starf eins og þeir vita sem
kynntust því og hún hélt því áfram
eftir að hún fluttist til Reykjavíkur.
Ég hef átt þess kost að starfa innan
þessa mannbætandi bræðra- og
systralags og veit frá fyrstu hendi
að hennar störf þar eru mikils metin
og hennar embættisferill þar lang-
ur.
Meðan heilsan var betri tók hún
virkan þátt í félagslífinu á Hrafnistu
og gekk daglega sér til heilsubótar,
en síðustu árin hefur hún mest hald-
ið sig innan dyra.
Bestu unaðsstundir mínar í dag
eru að sitja með mömmu uppi á
Hrafnistu og ferðast í samræðum
okkar um Akranes, hús úr húsi, telja
upp einstaklingana sem þar bjuggu
og hún þekkti og síðan næstu kyn-
slóð sem oftast eru vinir, skólasystk-
in eða félagar mínir. Minni hennar
er stórkostlegt og enn í dag slær
hún mér endalaust við. Það er eins
og í unglingi minnið hjá þessum sí-
unga níræða aldurshöfðingja Hall-
bjarnarættarinnar.
Við systkinin þrjú, börn okkar,
tengda- og barnabörn sendum þér
elsku mamma, amma og langamma
okkar innilegustu ástarkveðjur í til-
efni dagsins og þeim kveðjum fylgja
þakkir fyrir alla þá umhyggju og
visku sem þú hefur í gegnum ára-
tugina notað til að hlúa að okkur
þegar á þurfti að halda, eða ýta við
okkur blíðlega þegar þú vissir að
tími var til að breyta kúrsinum lít-
illega eða jafnvel að kúvenda til að
varast grand.
Við erum vissulega miklir lukk-
unnar pamfílar að eiga þig að í blíðu
og stríðu, klettinn sem aldrei hagg-
ast.
Héðan af sléttum Minnesota
fylgja kveðjur mínar og konu minn-
ar Denise og foreldra hennar Dee
og Irving. Þú ert daglega í hugs-
unum okkar og bænum og við þökk-
um almættinu fyrir að eiga þig að og
biðjum um blessun og vernd þér til
handa.
Ég hefi þekkt marga háa sál,
ég hef lært bækur og tungumál
og setið við lista lindir.
En enginn kenndi mér eins og þú,
hið eilífa og stóra, kraft og trú,
né gaf mér svo guðlegar myndir.
Guð blessi þig.
Þinn sonur,
Sigurður Eðvarð Arnórsson.
Afmæli FRÉTTIR
Lítið um óvænt úrslit í undan-
úrslitum Íslandsmótsins í
sveitakeppni
Fjörutíu sveitir víðs vegar að af
landinu spiluðu um sl. helgi um 12
sæti í úrslitakeppni um Íslands-
meistaratitilinn sem fram fer um
bænadagana. Þar eru margir kallað-
ir en fáir útvaldir að venju og spila
eftirtaldar sveitir um Íslandsmeist-
aratitilinn: Eykt, Tryggingamiðstöð-
in, Nicotinell, Vinabær, Grant
Thornton, Erla Sigurjónsdóttir,
Guðmundur Hermannsson, Hrað-
binding, Sölufélag garðyrkjumanna,
Ferðaskrifstofa Vesturlands, Spari-
sjóður Norðlendinga og Björn Frið-
riksson.
Ein af sterkustu sveitum landsins,
sveit Garða og véla, komst ekki í
gegnum hreinsunareldinn að þessu
sinni en að öðru leyti voru úrslitin
eftir bókinni eins og það er orðað.
Eykt vann A-riðilinn mjög sann-
færandi, fékk 178 stig. Sveit Trygg-
ingamiðstöðvarinnar, sem er frá Sel-
fossi, spilaði nokkuð sannfærandi og
tryggði sér annað sætið með 158
stigum og sveitin Nicotinell slefaði
inn þrátt fyrir afar slakt gengi í loka-
umferðinni gegn Eykt, hlaut 153 stig
en Límtré/Vírnet í Borgarnesi end-
aði með 152 stig.
Í B-riðlinum bar sveit Guðmundar
Hermannssonar höfuð og herðar yfir
andstæðinga sína, tapaði ekki leik og
endaði með 192 stig. Sveitin Hrað-
binding fylgdi þeim með 182 stig sem
og Sölufélagið sem rúllaði yfir sína
helztu andstæðinga í lokaumferðinni
og endaði með 177 stig.
Í C-riðlinum var sveit Ferðaskrif-
stofu Vesturlands langbest og skor-
aði 188 stig. Keppnin um annað og
þriðja sætið var skemmtileg. Spari-
sjóður Norðlendinga tryggði sér
annað sætið í lokaumferðinni með
25–0-sigri og Björn Friðriksson spil-
aði upp á öryggið, vann 16–14 og
sveit Garða og véla varð að játa sig
sigraða þrátt fyrir 22–8-sigur í loka-
umferðinni. Sparisjóðurinn fékk 162
stig, Björn 157 en sveit Garða og véla
154.
Sveit Vinabæjar sigldi nokkuð
lygnan sjó í D-riðlinum og endaði
með 180 stig. Sveit Grant Thornton
varð í öðru sæti með 159 stig en „fjöl-
skyldusveitin“ tryggði sér þriðja
sætið af öryggi, hlaut 156 stig. Í síð-
asttöldu sveitinni spila systkinin
Erla, Sigurður og Jón Páll Sigur-
jónsbörn ásamt Sigfúsi Þórðarsyni,
Guðna Yngvarssyni og Hafþóri
Kristjánssyni. Spilað var á Hótel
Loftleiðum. Ekki var mikið um kær-
ur í mótinu en tvær sveitir fengu
mínusstig fyrir misnotkun á tíma og
sex sveitir fyrir hringingar í farsíma.
Keppnisstjórar voru Björgvin Már
Kristinsson og Heiðar Sigurjónsson.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 24. mars var spilað á
11 borðum. Meðalskor var 216. Úr-
slit urðu þessi í N/S
Sigurður Herlufs. – Steinmóður Einars. 235
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 229
Oddur Jónsson – Oddur Halldórsson 229
Björn Björnss. – Sigríður Gunnarsdóttir 228
A/V
Anton Jónsson – Einar Sveinsson 268
Hera Guðjónsd. – Þorvaldur Þorgrímss. 239
Jón Gunnarsson – Jónína Óskarsdóttir 227
Guðm. Árnason – Maddý Guðmundsd. 227
Á föstudögum er spilað til verð-
launa sem verða veitt 11. apríl. Þess-
ir eru efstir að stigum:
Jón Sævaldsson 54
Þorvarður S. Guðmundsson 54
Sæmundur Björnsson 49
Jón Gunnarsson 42
Albert Þorsteinsson 41
Þriðjudaginn 28 mars var spilað á
17 borðum. Meðalskor var 312. Úr-
slit urðu þessi í N/S
Bjarnar Ingimarss. – Albert Þorsteinss. 441
Sæmundur Björnss. – Knútur Björnsson 361
Karl Karlsson – Lilja Kristjánsd. 360
Oddur Jónsson – Oddur Halldórss. 346
A/V
Þorvarður S. Guðmss. – Jón Sævaldsson 358
Kristrún Stefánsd. – Anna Hauksdóttir 357
Stefán Ólafsson – Óli Gíslason 353
Anton Jónsson – Sigurður Hallgrímss. 349
Bridsfélag Borgarfjarðar
Mánudaginn 27. mars spiluðu
Borgfirðingar sinn árlega einmenn-
ing og mættu 28 spilarar til keppni,
þar með taldir tveir heiðursmenn frá
Akranesi, þeir Alferð Kristjánsson
og Hörður Pálsson. Spilað var í
tveimur riðlum og voru 12 í öðrum og
16 í hinum. Spiluð voru sömu spil í
riðlunum og notast við barometer-
form þannig að hægt var að reikna út
stöðu jafnharðan. Keppnin var jöfn
og spennandi og þannig fór að lokum
að þau urðu efst og jöfn þau Ragna á
Lundum og Flemming á Varma-
landi. Var þá gripið til þess ráðs að
draga spil og af miklum höfðings-
skap nældi Flemming sér í lægra
spil en Ragna þannig að hún er því
einmenningsmeistari félagsins þetta
árið.
Úrslit urðu annars sem hér segir:
Ragna Sigurðardóttir 36
Flemming Jessen 36
Eyjólfur Sigurjónsson 35
Guðrún Sigurðardóttir 28
Lárus Pétursson 24
Næsta mánudag verður spilaður
tvímenningur.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánudaginn 27.3.
Spilað var á 14 borðum. Meðalskor
312 stig. Árangur N-S
Bragi Björnsson – Albert Þorsteinss. 386
Ragnar Björnsson – Guðjón Kristjánss. 359
Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 355
Matthías Helgason – Siguróli Jóhannss. 341
Árangur A-V
Oliver Kristóferss. – Magnús Halldórss. 440
Helgi Hallgrímss. – Jón Hallgrímss. 375
Ægir Ferdinandss. – Jóhann Lúthers. 374
Guðm. Magnússon – Kári Sigurjónsson 356
Siglufjarðarmót í sveitakeppni
Siglufjarðarmót í sveitakeppni
hófst 23. janúar sl. Átta sveitir
mættu til leiks, þar af ein nýliðasveit
úr Bridsskólanum. Spilaðir eru tveir
12 spila leikir á kvöldi, allir við alla,
tvöföld umferð.
Þegar aðeins er ólokið síðustu
tveimur 12 spila leikjunum er staða
efstu sveita þessi.
Sveit Hreins Magnússonar 227
Sveit Haraldar Árnasonar 213
Sveit Þorsteins Jóhannssonar 210
Sveit Guðlaugar Márusdóttur 198
Þar virðist því allt stefna í það að
Hreinn Magnússon með sína menn,
Friðfinn, Anton og Boga, ætli að
klára dæmið eins og fréttaritari
reyndar varaði við eftir að þeir fóru
mikinn í tvímenningsmótum fyrir
áramót.
En harðnar baráttan um brons-
stigameistarann því allir vilja verða
útnefndir sem besti spilari félagsins.
Nú þegar fer að síga á seinni hlutann
er staðan þessi.
Anton Sigurbjörnsson 231 stig
Bogi Sigurbjörnsson 225 stig
Hreinn Magnússon 212 stig
Þorsteinn Jóhannsson 190 stig
Friðfinnur Hauksson 184 stig
Sigurður Hafliðason 123 stig
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Morgunblaðið/Arnór
Erla Sigurjónsdóttir gerir það gott í bridsheiminum þessar vikurnar. Hún
var ásamt Sigfúsi Þórðarsyni meðal efstu para í tvímenningnum á Bridshá-
tíð og nú um helgina leiddi hún sveit sína inn í úrslitin í Íslandsmótinu. Á
myndinni eru Erla og Sigfús ásamt bræðrum Erlu þeim Jóni Páli og Sig-
urði en lengst t.h. er Guðni Ingvarsson sem spilar við Hafþór Kristjánsson.
GUÐMUNDUR Páll Jónsson bæjarstjóri verður í efsta sæti framboðslista
Framsóknarflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi 27. maí
nk. Sameiginlegur fundur Framsóknarfélags Akraness og Félags ungra
framsóknarmanna á Akranesi samþykkti framboðslistann á fundi nýlega.
Listann skipa:
1. Guðmundur Páll Jónsson bæjarstjóri
2. Magnús Guðmundsson forstjóri
3. Guðni Tryggvason verslunarmaður
4. Dagný Jónsdóttir verkefnisstjóri starfsmannamála
5. Helgi Pétur Magnússon nemi
6. Inga Ósk Jónsdóttir viðskiptafræðingur
7. Stefán Bjarki Ólafsson ofngæslumaður
8. Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólakennari
9. Þórunn Matthíasdóttir ráðgjafi
10. Valdimar Þorvaldsson forstöðumaður
11. Bjarki Þór Aðalsteinsson nemi
12. Hörður Þorsteinn Benónýsson framkvæmdastjóri
13. Jóhanna H. Hallsdóttir fjármálastjóri
14. Kjartan Kjartansson rekstrarfræðingur
15. Eydís Líndal Finnbogadóttir forstöðumaður
16. Vilhelm Jónsson verkamaður
17. Þorsteinn Ragnarsson fyrrverandi verkstjóri
18. Ingibjörg Pálmadóttir fyrrverandi ráðherra
Listi Framsóknarflokksins á Akranesi
LEONARDO da Vinci-starfs-
menntaáætlun Evrópusambands-
ins veitir árlega styrki til manna-
skiptaverkefna þar sem fólki í
starfsnámi, háskólanemum, ungu
fólki á atvinnumarkaði ogs leið-
beinendum eða stjórnendum er
gefinn kostur á að afla sér starfs-
þjálfunar allt frá einni viku til eins
árs. Í ár, 2006, fær Ísland rúm-
lega 36 milljónir króna til manna-
skiptaverkefna frá Leonardo-
áætluninni og er það hæsta upp-
hæð sem Ísland hefur fengið á
einu ári til þessa verkefnaflokks.
Landsskrifstofa Leonardo á Ís-
landi hefur nú úthlutað því fjár-
magni sem til ráðstöfunar var á
grundvelli umsókna sem bárust
10. febrúar sl. Styrkupphæðin,
429.000 evrur, fer til 24 fyrir-
tækja, skóla og stofnana fyrir
samtals 238 einstaklinga. Hæstu
styrkina að þessu sinni hlutu:
Bandalag íslenskra námsmanna
sem hlaut 6,1 milljón króna fyrir
starfsþjálfun háskólanema og ný-
útskrifaðra nema; Háskólinn á
Hólum hlaut 5,3 milljónir fyrir tvö
starfsnámsverkefni á sviði ferða-
þjónustu og fiskeldis og eitt
starfsmannaverkefni á sviði
ferðaþjónustu; Stúdentaferðir
hlutu 5,2 m.kr. fyrir tungumála-
nám og starfsþjálfun ungs fólks á
vinnumarkaði og nýútskrifaðra
nema; og Efling – stéttarfélag
hlaut 3,3 milljónir fyrir kynnis-
ferðir og undirbúning að gerð
námsefnis fyrir ófaglært starfs-
fólk fjölmargra fyrirtækja og
stofnana.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Landsskrifstofa Leon-
ardo. Vefsíða Landsskrifstofu
Leonardo: www.leonardo.is.
Yfir 36 milljónir í
Leonardo-styrki