Morgunblaðið - 30.03.2006, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HESTARFRÉTTIR
Hvað heldurðu, Eng-landsdrottningvill hitta þig?!“ til-kynnti vinur
Montys Roberts honum eitt
desemberkvöld árið 1988 og
erindið átti eftir að umturna
lífi hans. Þessi 71 árs tamn-
ingamaður frá Kaliforníu,
með doktorsgráðu í atferlis-
fræði hesta, er goðsagna-
kennd persóna. Eftir að hafa
meðhöndlað hesta hennar há-
tignar krafðist drottning þess
að hann skrifaði bók um
tamningaaðferðina – heilluð
af árangrinum. Hann öðlaðist
heimsfrægð með útgáfu ævi-
sögu sinnar árið 1996, The
Man Who Listens to Horses,
og sat hún í 58 vikur á lista
New York Times yfir mest
seldu bækurnar og hefur nú
selst í 5,3 milljónum eintaka.
Fleiri bækur komu í kjölfarið,
BBC framleiddi sjónvarps-
þætti um viðureign hans við
hestinn Shy boy sem nutu
mikilla vinsælda og heima á
búgarðinum Flag is Up
Farms í Sólvangi í Kaliforníu
fer fram margvísleg starf-
semi, m.a. er þar starfræktur
skóli, þar sem nemendur til-
einka sér hugmyndafræði
Montys, og góðgerðarsamtök. Auk
þess hafa milljónir manna sótt nám-
skeið og sýningar hans út um allan
heim. Og nú er loks komið að Íslandi:
Monty Roberts heldur sýningu í reið-
höllinni í Víðidal í Reykjavík 13. apríl
nk., á skírdag, en hann var staddur
hér á landi í byrjun mánaðarins til að
kynna sér aðstæður.
Það má með sanni að segja að
Monty hafi hrist rækilega upp í hesta-
heiminum með einstökum tamninga-
aðferðum sínum en að auki gagnast
hugmyndafræði hans, sem byggist á
atferli hrossa, á ýmsum sviðum sam-
félagsins, svo sem við kennslu og
stjórnun fyrirtækja, og þjóna aðferðir
hans því allt eins manninum – þær
miða að því að bæta heiminn á alla
lund og að hans áliti erum við hjálp-
arþurfi: „Það er engin virðing borin
fyrir lífi í dag. Þegar óléttar konur
fara í sjálfsmorðssprengjuárásir hef-
ur mannkynið náð botninum, ef móðir
verndar ekki lengur barnið sitt höfum
við misst allt,“ segir Monty ómyrkur í
máli – og honum finnst hann knúinn
til að skila aðferðum sínum til kom-
andi kynslóða, þetta sé hlutverk hans
í lífinu. Hann geti þess vegna sætt sig
við örmjó hótelrúm á sífelldu ferða-
lagi sínu um heiminn í stað þess að
setjast í helgan stein og segist ein-
ungis vera um 50 daga á ári heima hjá
sér á búgarðinum. En ætli hann fái
ekki heimþrá á þessu flakki? „Á
hverjum degi – en ég hef verk að
vinna og þrátt fyrir gríðarlega vinnu
hefur mér aldrei liðið betur, þetta er
líka svo skemmtilegt.“
Íslenski hesturinn
stolt félagsvera
Monty Roberts er spurður út í sýn-
inguna eftir hálfan mánuð, hvernig
hún verði uppbyggð. „Ég ætla að taka
fjóra þætti fyrir. Ég mun vinna með
trippi og fæ það til að sættast við reið-
tygi og knapa á um 30 mínútum, hest
sem vill alls ekki upp á kerru, annan
sem er með hegðunarvandamál eða
er hrekkjóttur og svo taugaveiklaðan
og hræddan hest. Hins vegar get ég
ekki séð hverja viðureign alveg fyrir
því samskipti við hvert hross ráðast af
gerð þess. Ég hef kynnst íslenska
hestinum, t.d. býr stórvirkur rækt-
andi hans rétt hjá mér í Kaliforníu og
ég hef unnið með hann á meginlandi
Evrópu en þetta er í fyrsta sinn sem
ég kem til Íslands. Ég fór í heimsókn
til Didda [Sigurbjörns Bárðarsonar]
hestamanns í morgun og ég fylgdist
með honum við vinnuna – hann er frá-
bær! Við töluðum m.a. um þau vanda-
mál sem snúa að íslenska hestinum.
Það er mun auðveldara að eiga við
þennan hest en flest önnur ræktunar-
kyn og fólki væri mikil hjálp í því ef
það tileinkaði sér tæknina. Vinnan
með hestum yrði miklu auðveldari og
bara lífið sjálf.
Reyndar er íslenski hesturinn
nokkuð sérstakur því vandamálið sem
er algengast hjá öðrum kynjum, að
fara upp á kerru, hrjáir hann ekkert
sérstaklega. Aðalvandinn hér er hins
vegar hegðunarvandamál og yfir-
gangur; að fólk hafi ekki stjórn á
þeim. Ég held það sé vegna stoltsins,
þeir vilja ekki láta ráða yfir sér, mað-
urinn skilur ekki þetta eðli hans og
gerir ranga hluti sem hefur það í för
með sér að hesturinn ber ekki virð-
ingu fyrir manninum. Þeir hafa líka
tilhneigingu til tortryggni og hræðslu
og annað sem einkennir þá er hvað
þeir eru í sterkum tengslum hver við
annan, ef þeir eru teknir úr stóðinu
sínu verða þeir mjög óöruggir og það
þarf að aðskilja suma í nokkra daga
frá hópnum til að þeir geti hugsað og
haft samskipti við manninn.
Íslenski hesturinn hefur heldur
ekki átt neinn náttúrulegan óvin í um
1.000 ára sögu hans en t.a.m. hefur
villihesturinn í Bandaríkjunum þurft
að kljást við sléttuúlfana. Á hinn bóg-
inn verða hestar alltaf hestar, þeir
eiga sér 50 milljóna ára sögu og eðli
þeirra breytist ekki, þeir bregðast all-
ir við hættu með flótta. Þess vegna á
nálgun mín alls staðar við,“
segir Monty. Hestamenn á
Íslandi sem og annars staðar
hafa enda sótt í viskubrunn
Montys. Af frjálsum vilja,
tamningaaðferð Ingimars
Sveinssonar á Hvanneyri, er
sennilega gleggsta dæmið
þar um. Hugmyndir og nálg-
un Montys hefur leitt til auk-
ins skilnings á hestinum,
mönnum verður æ betur
ljóst að hann verður að vera í
andlegu jafnvægi til að hægt
sé að vinna með hann.
Blaðamanni leikur forvitni
á að vita hvernig þessar að-
ferðir nýtist við vinnu með
hross sem fólk elur upp nán-
ast í „bakgarðinum“. „Hest-
ar sem eru aldir upp í of mik-
illi nálægð við manninn og
jafnvel gerðir mannlegir
verða öðruvísi og þeir sem
alast ekki upp í stóði læra
ekki „móðurmálið“ sitt.
Þessa hesta er mun erfiðara
að temja og þjálfa en það
verður að horfast í augu við
þennan vanda því svo víða er
þrengt að hestum, t.d. í
Þýskalandi og Bandaríkjun-
um. Við sem atvinnumenn
verðum að finna lausn á
vandanum, við getum ekki
bara sagt að viðkomandi fari rangt að
og látið þar við sitja.“
Ekki hrifinn af mynd
Roberts Redfords
Monty Roberts hefur lifað við-
burðaríka ævi og á ýmsu gengið. Yf-
irvegun og hlýja einkennir hann en
einnig nokkur biturð. Aðeins fjögurra
ára gamall vann hann fyrstu verðlaun
sín á hestbaki en honum var snemma
gert að temja hross með ofbeldisfull-
um aðferðum föður síns og sem tíðk-
uðust alla jafna. Þegar Monty ætlaði,
uppveðraður af uppgötvun sinni á at-
ferli villihestanna, að sýna föður sín-
um fram á mannúðlegri leið var hann
barinn. „Ég var tvo daga á spítala í
það skiptið. Ég átti aldrei neina æsku.
1981 fór ég í sneiðmyndatöku þar sem
kom í ljós að ég hafði brotið 71 bein
áður en ég náði 12 ára aldri.“
Þrátt fyrir að hugmyndir hans hafi
fengið lítinn hljómgrunn áratugum
saman hélt hann ótrauður áfram,
sannfærður um ágæti aðferðarinnar.
Það var ekki fyrr en hann fékk boð frá
drottningunni um að halda sýningu
fyrir hirðina sem hann fékk loks al-
menna viðurkenningu á störfum sín-
um. Monty bar kvíðboga fyrir sýning-
unni en hún vakti lukku og drottn-
ingarmóðirin varð svo hrifin af tamn-
ingunni á mertrippi sínu að hún
táraðist. „Ég ætlaði í hugsunarleysi
að faðma hana – að hætti Bandaríkja-
manna – en þú snertir ekki konungs-
fjölskylduna! Þegar ég sá að verðirnir
stukku til hætti ég við en svo faðmaði
hún mig í staðinn, enda í lagi fyrir
hana.“
Boltinn fór svo að rúlla og til varð
nokkurs konar goðsögn í heimi hest-
anna. „Og ég sem hélt ég væri þegar
frægur!“ segir Monty. Heitið hesta-
hvíslari festist við hann í kjölfar hinn-
ar kunnu kvikmyndar Hestahvíslar-
inn sem Robert Redford leikstýrði og
lék aðalhlutverk í. Myndin var gerð
eftir samnefndri bók Nicholas Evans
og aðferðir Montys urðu innblástur
Hestar kunna
ekki að ljúga
Morgunblaðið/ÞÖK
„Konur eru mun lagnari við hestana en karlar vegna
þess að þær vilja miklu frekar koma fram af heiðar-
leika,“ segir Monty. Það sé hestinum einmitt eiginlegt.
Hestahvíslari – orðið er sveipað dulúð og ekki laust við að Þuríður Magnúsína
Björnsdóttir fyndi fyrir spenningi með kvíðabragði við að hitta hinn eina sanna
hestahvíslara, tamningamanninn Monty Roberts. Svo magnaður maður getur
þó líka fengið hnút í magann – er hann þurfti að sanna sig fyrir bresku konungs-
fjölskyldunni. Hann gat sleppt því; drottningarmóðirin grét af gleði og það
er drottningunni sjálfri að þakka að aðferðir hans urðu á allra vörum.
BARNAHEILL og samtökin
Heimili og skóli hafa hvor um sig
unnið að því að vekja fólk til um-
hugsunar um ábyrga netnotkun.
Verkefni hvorra tveggju samtak-
anna hafa verið styrkt af Evrópu-
sambandinu. Nú hafa þessi samtök
sameinað krafta sína að hluta til á
þessum vettvangi með stuðningi
Símans sem leggur samtökunum
til bæði tæki og þekkingu.
Heimili og skóli hafa staðið fyrir
verkefninu SAFT, Samfélag, fjöl-
skylda og tækni sem er vakn-
ingarátak um jákvæða og örugga
notkun barna og unglinga á Netinu
og tengdum miðlum. Verkefnið er
unnið í nánu sambandi við aðrar
Evrópuþjóðir. Barnaheill hafa um
nokkurt skeið starfrækt ábend-
ingalínu þar sem tekið er á móti
ábendingum um barnaklám á net-
inu. Ábendingunum er fylgt eftir
og málin send til lögreglu til rann-
sóknar, þau tilkynnt til netþjón-
ustufyrirtækja og ef efnið er vistað
erlendis eru samstarfsaðilar sem
starfrækja ábendingalínu í við-
komandi landi látnir vita.
Á myndinni eru: Hrönn Þor-
móðsdóttir, verkefnisstjóri hjá
samtökunum Barnaheillum, Eva
Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi
Símans, og Anna Margrét Guð-
mundsdótti, verkefnisstjóri hjá
Heimili og skóla.
Hvetja til ábyrgrar
netnotkunar
FRAMBOÐSLISTI sjálfstæðismanna í Sveitarfélaginu Ölfusi
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 27. maí nk. skipa eftirfarandi:
1. Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri
2. Birna Borg Sigurgeirsdóttir verslunarmaður
3. Stefán Jónsson framkvæmdastjóri
4. Sigríður Lára Ásbergsdóttir sérfræðingur
5. Ágúst Örn Grétarsson rafvirki
6. Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri
7. Grétar Ingi Erlendsson frístundaleiðbeinandi
8. Helena Helgadóttir leikskólakennari
9. Guðni Birgisson skipstjóri
10. Ingibjörg Kjartansdóttir ritari
11. Gauti Guðlaugsson verksmiðjustjóri
12. Jenný Dagbjört Erlingsdóttir bóndi
13. Guðbjartur Örn Einarsson útgerðarstjóri
14. Hjörleifur Brynjólfsson framkvæmdastjóri
Listi sjálfstæðismanna í Ölfusi
LISTI Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs til sveitarstjórnar í Ár-
borg 2006 var kynntur á fundi 27. mars sl. Listann skipa:
1. Jón Hjartarson fv. framkvæmdastjóri
2. Hilmar Björgvinsson aðstoðarskólastjóri
3. Sigrún Þorsteinsdóttir grunnskólakennari
4. Alma Lísa Jóhannsdóttir deildarstjóri
5. Andrés Rúnar Ingason húsvörður
6. Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi
7. Eiríkur Harðarson skrifstofumaður
8. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur
9. Bríet Einarsdóttir nemi
10. Guðmundur Sverrisson markaðsstjóri
11. Sigfinnur Snorrason jarðfræðingur
12. Viðar Magnússon pípulagningamaður
13. Eiríkur Már Rúnarsson lagermaður
14. Þorsteinn Ólafsson dýralæknir
15. Sigurður Ingi Andrésson framhaldsskólakennari
16. Margrét Magnúsdóttir garðyrkjufræðingur
17. Ólafur Thorlacius lyfjafræðingur
18. Iðunn Gísladóttir kennari
Listi VG í Árborg
Á FÉLAGSFUNDI Framsóknarfélags Árborgar, sem haldinn var 27. mars
sl., var lögð fram tillaga uppstillingarnefndar félagsins vegna sveitar-
stjórnarkosninga 27. maí nk. Tillagan var samþykkt samhljóða og skipa 8
konur og 10 karlar listann. Listann skipa:
1. Þorvaldur Guðmundsson bæjarfulltrúi, framhaldsskólakennari
2. Margrét Katrín Erlingsdóttir bæjarfulltrúi, atvinnurekandi
3. Björn Bjarndal Jónsson framkvæmdastjóri
4. Kristín Eiríksdóttir leikskólastjóri
5. Helgi Haraldsson svæðisstjóri
6. Ármann Ingi Sigurðsson tæknimaður
7. Sigrún Jónsdóttir verslunarstjóri
8. Arnar Freyr Ólafsson alþjóðafjármálafræðingur
9. Elín Harpa Valgeirsdóttir háskólanemi
10. Birkir Pétursson starfsmaður framkvæmdasviðs Árborgar
11. María Hauksdóttir bóndi og stuðningsfulltrúi
12. Róbert Sverrisson viðskiptastjóri
13. Íris Böðvarsdóttir sálfræðingur og frístundabóndi
14. Gísli Geirsson bifreiðastjóri
15. Ingibjörg Stefánsdóttir leikskólastjóri
16. Gunnar Kristmundsson verslunarmaður
17. Ólafía Ingólfsdóttir bókari
18. Guðni Ágústsson ráðherra
Listi Framsóknarflokksins í Árborg