Morgunblaðið - 30.03.2006, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 47
HESTAR
Í maí 2006 hefst viðbótarnám í íslensku fyrir grunnskólakennara vegna
fyrirhugaðra breytinga á aðalnámskrá. Námið verður með eftirfarandi hætti:
Aðfaranám, maí 2006.
Meðal annars verður farið yfir drög að aðalnámskrá og þátttakendum kynnt kennsluumhverfi á vef.
Staðbundnar lotur verða haldnar í öllum landsfjórðungum og þeim fylgt eftir með fjarnámi.
19. og 20. maí á Akureyri og í Reykjavík.
26. og 27. maí á Ísafirði og Egilsstöðum.
Aðfaranám, haust 2006 (3e)
Meðal annars verður hugað að undirbúningi háskólanáms í íslensku og rætt um kennsluaðferðir og -tækni.
September 2007
Viðbótarnám, 2007-2009.
Þátttakendur geta valið námskeið í íslensku í Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri eða
Háskólanum í Reykjavík og stundað þau í fjarnámi.
Menntamálaráðuneytið mun greiða kennslukostnað og innritunargjöld.
Umsóknir um þátttöku berist í síðasta lagi 28. apríl 2006 til Símenntunarstofnunar Kennaraháskóla Íslands sem hefur umsjón með skráningu og þátttöku.
Upplýsingar um skráningu og námið eru veittar á vef Símenntunar: http://simennt.khi.is og í síma 563 3980.
vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalnámskrá
Viðbótarnám
í íslensku fyrir grunnskólakennara
að henni. Hann er hins vegar ekki
hrifinn af myndinni, í henni sé beitt
ofbeldi gegn hestum sem hann vilji
ekki láta bendla sig við.
Aðferðin nýst mörgum, m.a.
í skólum og leyniþjónustu CIA
Eins og fyrr segir hafa ekki ein-
ungis hestar og hestamenn notið góðs
af hugmyndum Montys, degi áður en
viðtalið er tekið var hann staddur í
Kinghurst-barnaskólanum í Birming-
ham á Englandi. Árið 2000 var svo illa
komið fyrir skólanum að það átti að
loka honum en eftir að hafa leitað á
náðir Montys er hann á meðal bestu
skóla í dag. Leið Montys til að um-
gangast og kenna börnum virðist
einkar gagnleg, og rímar enda að
sumu leyti við kennsluaðferðir sem
ganga út á einstaklingsmiðað nám
sem setja einstaklinginn og þarfir
hans í forgrunn. Hann segir barn
stjórnast af svipuðum eðlishvötum og
hesturinn, það flýi ef því finnist sér
ógnað eða líði illa, þetta sé spurning
um að skapa notalegt umhverfi. Til
þess notar hann tjáningaraðferð lík-
amans sem hann segir börn skilja vel,
líkt og hestar. „Ef barn hræðist nám-
ið, kennarann eða foreldra sína mun
það ekki læra, og ekki fyrr en það
finnur fyrir öryggi og treystir kenn-
aranum.“ Tilgangurinn er að koma í
veg fyrir hvers kyns ofbeldi sem hann
segir viðgangast. Hann hefur einnig
lagt sitt af mörkum í barnauppeldi
heima fyrir, á þrjú börn sjálfur og tók
að sér ásamt konu sinni 47 fósturbörn
– geri aðrir betur!
Ýmis stórfyrirtæki hafa sótt nám-
skeið hjá Monty Roberts eða fengið
hann til aðstoðar í því skyni að bæta
stjórnunina, þ.á m. CIA-leyniþjónust-
an um 2000. „Yfirmaður hjá CIA sem
kom á sýningu hjá mér bað mig um að
skoða aðferðir þeirra við að setja sitt
eigið starfsfólk í lygamælispróf því
hann vonaðist til að ég gæti, eins og
með hestana, vitað hvað þeir hugsuðu
eða gerðu næst með því að fylgjast
með atferli þeirra. Og aðferðir þeirra
voru hræðilegar. Þær gengu út á að
hræða úr fólkinu líftóruna með því að
minna það stöðugt á prófið og yfir-
heyrsluherbergið var mjög kuldalegt.
Fólkið vissi varla nafnið sitt þegar til
kom og brást jafnhrætt við öllum
spurningum,“ segir Monty. Hann lét
setja teppi á gólfið og myndir á vegg-
ina og þar fram eftir götunum og
sagði þeim að gera lítið úr prófinu við
fólkið, og hann segir árangurinn ekki
hafa látið á sér standa: „Þeir gómuðu
fjóra stórnjósnara innan CIA strax á
eftir, sá stórtækasti sem hafði unnið
hjá þeim í áratug hafði þegar farið í 24
slík próf. En þeir geta ekki sagt frá
því að ég hafi hjálpað til. – Þetta er
eins og með hestinn; ef þú nærð
adrenalíninu niður kemst þú að mikl-
um leyndarmálum í lífi fólks.“
„Galdramanni“ hótað lífláti
Að öðlast frægð og frama er ekki
alltaf tekið út með sældinni. Maður
sem hefur lifibrauð sitt af „hesta-
hvísli“ á vísa efasemdarmenn og jafn-
vel óvini. Monty er inntur eftir
galdramannsorðinu sem óneitanlega
hefur farið af honum. „„Já, hann er af
indíánaættum og hesturinn linast upp
vegna galdra,“ segir fólk. En þetta er
ekki einu sinni mín aðferð, ég upp-
götvaði bara hverju náttúran bjó yfir
með því að fylgjast með hestum. Það
geta allir lært þetta, nema kannski
þig vanti útlimi eða sért blindur. Ég
hef kennt rúmlega 2.000 nemendum
víða um heim sem hafa náð góðum
tökum á þessu og ég vonast til að þeir
verði enn betri en ég! Á hinn bóginn
er svo löng hefð fyrir hestatamning-
um, um 8.000 ár, að þar má engu
breyta, fólk bregst illa við ef það á að
fara að læra allt upp á nýtt. Mér hefur
oft verið hótað lífláti – menn í Suður-
Ameríku höfðu m.a.s. lagt á ráðin um
það, þeir töldu ógn stafa af mér því
þeir gætu ekki lært aðferðina mína og
misstu þ.a.l. vinnuna.“
Öllu hógværari menn láta sér
nægja að halda því fram að brögð séu
í tafli þegar hross eru frumtamin á
hálftíma. En því fer fjarri, rík áhersla
er lögð á að ekki hafi verið átt við
hrossin áður en þau mæta í hring-
gerðið hjá Monty. Hann er spurður
hvort aðferð hans geti virkað á alla
hesta. „Ég hef ekki átt við alla hesta
og kannski mistekst mér þegar ég
sýni hér á Íslandi. Þó veit ég að svo
verður ekki því þetta er líf hestsins en
ekki mitt, ég framkvæmi ekki hlutina,
ég er bara að hjálpa hestinum við að
gera þetta sjálfur. Árangurinn getur
auðvitað orðið misjafn en ég næ alltaf
einhverjum árangri vegna þess að
hesturinn klúðrar engu, bara maður-
inn. Hestur bregst bara við eðlisávís-
un sinni og getur ekki gert mistök en
maðurinn er miklu flóknari, og eig-
ingirni og græðgi ruglar okkur í rím-
inu, við viljum stundum græða, stela
eða ljúga en hestar geta ekkert af
þessu. Konur eru mun lagnari við
hestana en karlar vegna þess að þær
vilja miklu frekar koma fram af hrein-
skilni og heiðarleika, þegar þær verða
ástfangnar vilja þær heiðarleika í
sambandinu en flestir karlar „svona
næstum því“. Og allir hestar eru
hreinir og beinir, þeir gera það sem
þeim finnst réttast hverju sinni og
munu ekki ljúga að þér.“
Lék Liz Taylor og kenndi
James Dean að sitja hest
Monty Roberts er sögumaður af
bestu gerð sem kemur berlega í ljós
þegar hann er að síðustu spurður út í
þann hluta ævi sinnar er hann vann
við fjölda Hollywood-mynda sem
áhættuleikari, fyrst einungis fjögurra
ára. „Þá voru hesta- og barnamyndir
vinsælastar og ég lék í mörgum léleg-
um myndum. 1943 fékk ég stærra
tækifæri í kvikmyndinni National
Velvet þegar ung stúlka sem átti ekki
að þurfa áhættuleikara datt af baki og
ökklabrotnaði og ég lék hindrunar-
stökkið fyrir hana. Seinna um haustið
sögðu skólafélagarnir að ég væri
frægur, ég hefði leikið Elizabeth
Taylor! Fyrir myndina þekkti hana
svo sem enginn en pabbi fékk pen-
ingafúlgu fyrir þetta. Eftir fullt af
myndum vildi ég um tvítugt einbeita
mér að keppni og „ródeóum“ en mér
var boðið að taka þátt í myndinni East
of Eden sem átti að gerast í Salinas,
þar sem ég ólst upp sem og höfundur
bókarinnar, John Steinbeck. Ég var
beðinn að leyfa strák frá New York,
sem átti að vera í aðalhlutverki, að
búa hjá mér í fjóra mánuði til að læra
inn á menningu þessa samfélags. Ég
var nýbúinn að kynnast tilvonandi
konunni minni og leist ekkert á að
einhver drengstauli væri að sniglast í
kringum okkur en lét loks tilleiðast.
Þessi piltur hét James Dean og okkur
varð vel til vina. Við ætluðum að
kaupa saman búgarð, með nautgripi
og nokkra hesta, og hann var á leið-
inni í heimsókn til mín þegar hann
lést í bílslysinu 1955. Ég vann líka
með honum í Rebel Without a Cause
og Giant en mér fannst hann bara
vera hann sjálfur á leiktjaldinu. Hann
var góður maður en lélegur leikari og
mér datt aldrei í hug að biðja um
mynd af mér með honum, enda var
hann ekki einu sinni orðinn frægur.
Og þar sem ég var að kenna honum að
sitja hest og snara hefði ég miklu
frekar búist við að hann bæði um
myndatöku með mér!“
Ljósmynd/Telma Tómasson
Monty Roberts hitti Sigurbjörn Bárðarson hestamann þegar hann var staddur hér á landi í byrjun mánaðarins til
að kynna sér aðstæður fyrir sýninguna sem hann heldur á skírdag í reiðhöllinni í Víðidalnum.
AÐFERÐ Montys Roberts nefnist „Join-Up“ og felst í
stuttu máli í því að fá hest til að sætta sig við beisli,
hnakk og knapa á u.þ.b. 30 mínútum og kemur árang-
urinn skýrast fram við vinnu við frumtamningahross.
Er Monty var 13 ára gamall var hann sendur í
óbyggðir Nevada í Bandaríkjunum til að fanga hesta
fyrir kúrekasýningu (ródeó) og með því að fylgjast
grannt með atferli villihestanna (e. mustangs) veitti
hann því eftirtekt að líkamstjáning þeirra var mjög fyr-
irsjáanleg og markviss, visst atferli sýndi ótta, pirring
eða afslöppun og enn önnur líkamsbeiting setti hömlur
o.s.frv. Með því að lesa í þetta tungumál og setja sig um
leið í spor hestsins er fundin leið til að vinna með hross-
ið án allra átaka og það finnur til öryggis, virðir mann-
inn og treystir honum. Monty þróaði síðan aðferðina og
notar t.a.m. hátt í hundrað bendingar eða merki, og allt
til mótvægis við hefðbundnar ofbeldisfullar tamninga-
aðferðir sem tíðkuðust t.d. hjá föður hans. Ofbeldi er
aldrei lausnin eru einkunnarorð Montys.
Notast er við hringgerði og tamningamaðurinn byrj-
ar á því að reka hestinn, sem er laus, frá sér með látæði
og hljóðum sem hesturinn þekkir úr stóðinu eða nátt-
úrunni. Síðan er tvennt í stöðunni fyrir hann, honum er
boðið annaðhvort að flýja eða koma til mannsins af fús-
um vilja. Hesturinn sýnir þá merki um það hvort hann
sé tilbúinn að viðurkenna manninn sem leiðtoga og
njóta verndar hans eða ekki. Þegar hann hefur sæst á
þetta snýr hann eyrum að manninum, setur tunguna út,
japlar og teygir höfuð niður að jörð til að lýsa yfir
trausti til mannsins og vellíðan. Tamningamaðurinn
snýr þá baki í hestinn, forðast augnsamband og hvetur
hann þannig áfram til sín. Og nú mun hesturinn verða
samvinnuþýður og sáttur við hnakk og hvaðeina.
Lesið í tungumál
hestsins
Ljósmynd/Telma Tómasson
Monty „ræðir við“ einn hesta Sigurbjörns á sinn ein-
staka hátt, sem hann segir þó á færi flestra.
thuridur@mbl.is