Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Stóra svið RONJA RÆNINGJADÓTTIR Lau 1/4 kl. 14 UPPS. Su 2/4 kl. 14 UPPS. Lau 8/4 kl. 14 UPPS. Su 9/4 kl. 14 UPPS. Su 23/4 kl. 14 Su 23/4 kl. 17:30 Lau 29/4 kl. 14 Su 30/4 kl. 14 ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA KERTALJÓSATÓNLEIKAR HARÐAR TORFA FIMMTUDAGINN 6/4 Kl. 20 TALAÐU VIÐ MIG -ÍD- Fö 31/3 kl. 20 SÍÐASTA SÝNING KALLI Á ÞAKINU Fi 13/4 kl. 14 skírdagur UPPSELT Lau 15/4 kl. 14 UPPSELT Má 17/4 kl. 14 annar í páskum Fi 20/4 kl. 14 sumardagurinn fyrsti Lau 22/4 kl. 14 FULLKOMIÐ BRÚÐKAUP Su 30/4 kl. 20 UPPS. Má 1/5 kl. 20 UPPS. Þri 2/5 kl. 20 UPPS. Mi 3/5 kl. 20 UPPS. Su 7/5 kl. 20 UPPS. Má 8/5 kl. 20 UPPS. Þr 9/5 kl. 20 UPPS. Fi 18/5 kl. 20 UPPS. Fö 19/5 kl. 20 UPPS. Fö 19/5 kl. 22:30 Su 21/5 kl. 20 UPPS. Fi 25/5 kl. 20 AUKAS Fö 26/5 kl. 20 UPPS. Fö 26/5 kl. 22:30 VORSÝNING 2006 Listdansskóli Íslands Þri 11/4 kl . 20 Mi 12/4 kl. 20 Nýja svið / Litla svið BELGÍSKA KONGÓ Fi 6/4 kl. 20 UPPS. Fö 7/4 kl. 20 Fi 20/4 kl. 20 Fö 21/4 kl. 20 Lau 29/4 kl. 20 Su 30/4 kl. 20 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Í kvöld kl. 20 UPPS. Fö 31/3 kl. 20 100. SÝNING UPPS Lau 1/4 kl. 20 UPPS. Su 2/4 kl. 20 Lau 8/4 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR Í REYKJAVÍK HUNGUR Fi 4/5 kl. 20 Su 7/5 kl. 20 NAGLINN Fö 28/4 kl. 20 Lau 29/4 kl. 20 GLÆPUR GEGN DISKÓINU Lau 22/4 kl. 20 Fö 28/4 kl. 20 FORÐIST OKKUR Lau 1/4 kl. 20 Su 2/4 kl. 20 Fi 6/4 kl. 20 UPPS. Fö 7/4 kl. 20 Lau 8/4 kl. 20 Su 9/4 kl. 20 DANSleikhúsið Su 9/4 kl. 20 Þri 11/4 kl. 20 Mi 19/4 kl. 20 23/4 KL. 20 SÖNGLIST Lau 1/4 kl. 14:30 Su 2/4 kl. 12:00 Su 2/4 kl. 15 Má 3/4 kl 17 Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is Miðasala opin allan sólarhringinn á netinu. Litla hryllingsbúðin - tryggðu þér miða! Fim 30/3 kl. 20 4. kortasýn. UPPSELT Fös 31/3 kl. 19 UPPSELT Lau 1 /4 kl. 19 5. kortasýn. UPPSELT Lau 1 /4 kl. 22 AUKASÝNING UPPSELT Sun 2 /4 kl. 19 örfá sæti Fim 6/4 kl. 20 AUKASÝNING nokkur sæti Fös 7/4 kl. 19 6. kortasýn. UPPSELT Næstu sýningar: 8/4, 9/4, 12/4, 13/4, 15/4, 19/4, 21/4, 22/4, 23/4 - Takmarkaður sýningartimi Maríubjallan - sýnd í Rýminu Mið. 5/4 kl. 20 örfá sæti Hetjur úr heimi blásara Hljómsveitarstjóri ::: Christian Lindberg Einleikari ::: Ole Edvard Antonsen Franz Schubert ::: Forleikur í ítölskum stíl Christan Lindberg ::: Akbank Bunka Jan Sandström ::: En herrgårdssägen Anna S. Þorvaldsdóttir ::: Stund milli stríða Giuseppe Tartini ::: Trompetkonsert Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30 tónleikar í háskólabíói SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Christian Lindberg er einn mesti básúnuleikari allra tíma, en hann er líka tónskáld í fremstu röð. Það sannar einleikskonsert hans, Akbank Bunka sem trompetleikarinn Ole Edvard Antonsen mun flytja á þessum spennandi tónleikum. Og hver er betur fallinn til þess en einmitt einn fremsti trompetleikari heims? FL Group er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands FÖS. 31. MARS KL. 20 - SÍÐASTA SÝNING! VIÐTALIÐ eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur LAU. 01. APRÍL KL. 20 FIM. 06. APRÍL KL. 20 FÖS. 21. APRÍL KL. 20 FIM. 27. APRÍL KL. 20 FIM. 30. APRÍL KL. 20 FÖS. 31. APRÍL KL. 14 UPPSELT HVAÐ EF eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur                                      ! "         #   $    # % &''()* % $   #    #       # % +   ,    # ,       #  -./*/ 0 1 2 333     4       2  5 " 6  7 ! -  !  DRAUMAR og tengsl við undir- meðvitundina eru listamanninum Kristni Má Pálmasyni hugleikin og í viðtali vegna sýningar sinnar í Gall- erí Turpentine nefnir hann jafnvel einhvers konar trans, annað meðvit- undarstig sem hann kemst í við vinnu sína. Slíkar hugleiðingar minna á vinnuaðferðir súrreal- istanna sem unnu töluvert af teikn- ingum og ljóðum með svokallaðri ósjálfráðri teikningu og skrift, þar sem reynt var að opna fyrir frjálst flæði undirmeðvitundar og skapa listaverk án hafta lærdóms eða rök- hyggju. Kristinn Már vinnur mál- verk sín afturábak að vissu leyti, efniskenndar og nokkuð þungar myndir hans mótast að hluta til við það að hann skefur eða kroppar lit- inn af plötunni en verkin eru máluð á álplötur og tréplötur. Ég geri ráð fyrir að það sé vinnuaðferðin sem kallar á þennan efnivið og að strigi myndi ekki þola slíka meðferð. Litríkt og óreglulegt yfirborð málverka Kristins og tengslin við súrrealismann kalla m.a. yfirborð frottage-verka Max Ernst upp í hugann þar sem það er að nokkru tilviljun sem ræður endanlegri nið- urstöðu. Rómantísk og symbólísk málverk franska málarans Gustave Moreau koma líka upp hvað varðar áferð þó myndefni sé allt annað en þegar málverk Moreau eru skoðuð augliti til auglitis kemur í ljós að það sem á mynd og í fjarlægð eru litrík og að því er virðist vandlega máluð smáatriði er í raun mjög hrátt yfirborð þar sem auður strig- inn skín einatt í gegn, en í verkum Kristins eru það álplöturnar sem koma í gegn þar sem yfirborðið hef- ur verið skrapað af. Þessir litríku fletir og margbrotin smáatriði sem í nálægð leysast upp í aðskilda lita- fleti en skapa heild í fjarlægð minna líka á meistara Kjarval en sú sam- líking nær þó ekki lengra. Eitt eiga þessir listamenn þó allir sameig- inlegt og það er sú staðreynd að ljósmyndir skila verkum þeirra ekki til fullnustu, eins og oft er raunin. Nú eru þó nokkrir íslenskir mál- arar að vinna markvisst með mögu- leika málverksins í dag og ég geri ráð fyrir að Kristinn hafi metnað til að vera hluti af þeim hóp, en hér á ég við málara á borð við Eggert Pétursson, Tuma Magnússon, Guð- rúnu Einarsdóttur, Sigtrygg Bjarna Sigurbjörnsson, JBK Ransu, Ásdísi Spanó og fleiri, en málverkið er í miklum uppgangi um þessar mund- ir. Mér sýnist Kristinn hafa mögu- leika á að þróa verk sín áfram á metnaðarfullan hátt en eins og er eru sum verkanna fullhefðbundin til þess að standa undir nafni sem framsækin málaralist. Einnig vant- ar nokkuð upp á að listamaðurinn komi markmiðum sínum til skila til áhorfandans. Það eru helst þau verk Kristins Más sem eru hvað mest óhlutbundin sem lifna ræki- lega við, þar nær listamaðurinn einna helst að kveikja í ímyndunar- afli áhorfandans, á myndfletinum skapast ótal myndir og sú óræða dýpt sem ég tel að Kristinn sækist eftir. Ef til vill er stökk í hyldýpið það sem til þarf, dirfska súrreal- istanna sem dreymdi um að láta samfélagsleg gildi lönd og leið og hverfa inn í sálu sína til að finna hið sanna ljóð. Ég gæti trúað að enn meiri áræðni hjá listamanninum skilaði eftirminnilegri verkum en eins og er er sýningin nokkuð mis- jöfn að gæðum. Bestu verkin lofa þó góðu. Hyldýpið heillar MYNDLIST Gallerí Turpentine Kristinn Már Pálmason. Til 8. apríl. Opið þri–fös frá kl. 12–18 og lau. frá 11–16. Trans-Form, málverk Morgunblaðið/Eyþór „Mér sýnist Kristinn hafa mögu- leika á að þróa verk sín áfram á metnaðarfullan hátt en eins og er eru sum verkanna fullhefðbundin til þess að standa undir nafni sem framsækin málaralist“, segir m.a. í umsögninni. Ragna Sigurðardóttir „AF HVERJU eru allir fræg- ustu heimspekingarnir karl- menn?“ er algeng spurning nemenda í heimspekinámi. Svörum er því miður oftast ábótavant. Stórauknar rann- sóknir feminískra heimspekinga hafa hnekkt þeim útbreidda misskilningi að konur hafi ekki stundað heimspeki og að þeirra heimspeki hafi ekki verið merkileg. Þóra Björg Sigurð- ardóttir og Arnþrúður Ingólfs- dóttir flytja erindi um þetta í Árnagarði, stofu 201, á morgun, föstudag, kl. 12.15. Í erindinu kynna þær leiðir sem feminískir heimspekingar hafa farið í að gagnrýna og túlka kanon vestrænnar heim- speki, þ.e. mælikvarðann sem notaður hefur verið til að ákvarða hvaða rit og viðfangs- efni eru viðtekin í heimspeki. Einnig kynna þær niðurstöður eigin könnunar á því hvort heimspekiskorir hafi endur- skoðað námsefni sitt og aukið kennslu á textum og sjón- armiðum kven- og feminískra heimspekinga og heimspekinga sem ekki eru af vestrænum uppruna. Konur meðal heimspekinga GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.