Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 53
MENNING
MESSAN í Vídalínskirkju í Garða-
bæ síðastliðinn sunnudagsmorgun
var sérstæð. Að svo til öllu leyti var
hún sungin; meira að segja predik-
unin var í höndum einsöngvara.
Þetta var Vídalínsmessa eftir Hildi-
gunni Rúnarsdóttur, en textinn var
latneskur messutexti auk kafla úr
predikunum Jóns Vídalín.
Að vanda heldur Hildigunnur sig
við hefðbundið tónmál; kirkjutónteg-
undir og dúr- og mollhljóma. Það
hefur þann kost að tónlist hennar er
aðgengilegri en títt er um nýja tón-
list. Þar með er ekki sagt að hún sé
endilega betri, hún er bara auðmelt-
anlegri.
Stundum jaðraði við að messan
væri klisjukennd; kröftugur páku-
leikur í upphafi minntu óþægilega
mikið á Jólaóratóríu Bachs og langir
hljómar og endurteknar nótur í lokin
til að skapa stemningu eru trix sem
eru afar oft notuð í kvikmyndum.
Fátt í tónmálinu kom á óvart; maður
hafði heyrt það allt saman áður og
því virkaði músíkin einkennilega
ópersónuleg.
Styrkur tónlistarinnar var hins-
vegar sá hve haganlega hún var
gerð. Jafnvægið á milli kórpartsins
og kammersveitarinnar var aðdáun-
arvert; það sem vantaði í röddum
kórsins bætti hljómsveitin upp og öf-
ugt. Úrvinnsla tónhugmyndanna var
líka rökrétt og eðlileg og heild-
arsvipur verksins var sterkur; stíg-
andin upp í hápunkt var markviss og
rólegir niðurlagskaflarnir snyrtilega
skrifaðir með fyrrgreindum löngum
hljómum og endurteknum nótum.
Og óneitanlega virkaði það síðar-
nefnda þótt það hafi ekki verið frum-
legt.
Flutningurinn var hinsvegar upp
og ofan. Blandaður Kór Vídalíns-
kirkju stóð sig ágætlega í sjálfu sér,
en hann er dálítið smávaxinn, sam-
anstendur af 28 söngvurum sem
væntanlega eru fæstir þrautþjálfaðir
söngvarar. Hljómurinn í kórnum var
því fremur loðinn og kom ekki alltaf
nægilega vel út, þótt söngurinn hafi
annars verið öruggur og fumlaus.
Hljómsveitin var betri og sumt
var sérlega fagurt eins og horna-
blástur Emils Friðfinnssonar. Helst
mátti finna að nokkuð ónákvæmum
sellóleik, en annað var yfirleitt á
hreinu og heildarhljómurinn þéttur
og greinilega vel ígrundaður.
Frammistaða einsöngvaranna var
misjöfn. Hallveig Rúnarsdóttir var
frábær; björt sópranrödd hennar
var einstaklega skær og falleg, en
bróðir hennar, Ólafur Rúnarsson
tenór, virtist ekki vera í sínu besta
formi. Rödd hans virkaði hol og bak-
stæð og hún brast a.m.k. þrisvar
sinnum, sem var áberandi. Það var
synd því túlkun hans var að öðru
leyti áhrifarík og tónlistin sem hann
söng, predikanir Jóns Vídalíns, með
því besta í öllu verkinu.
Almennt talað var þetta athygl-
isverð stund þrátt fyrir þá annmarka
sem hér hafa verið tíundaðir. Það
hlýtur að vera jákvætt að listamenn
okkar leitist við að víkka út messu-
formið; Kirkjan er stofnun sem má
ekki staðna.
Haganlega gerð messa
Jónas Sen
TÓNLIST
Vídalínskirkja
Hildigunnur Rúnarsdóttir: Vídalíns-
messa. Flytjendur voru Kór Vídalínskirkju
og hópur hljóðfæraleikara. Stjórnandi: Jó-
hann Baldvinsson. Einsöngvarar: Hall-
veig Rúnarsdóttir og Ólafur Rúnarsson.
Sunnudagur 26. mars.
Messa, kórtónleikar
ÞAÐ hefðu margir haldið að þegar
meistararafbassistinn Jóhann Ás-
mundsson og trommarinn Erik
Qvick, sem nú má kalla sænsk-
íslenskan, stjórnuðu kvintett og
hefðu fengið m.a. til liðs við sig
sænska gítaristann Johan Oijen yrði
djassrokkið alsráðandi, en svo var nú
ekki. Tónleikarnir hófust á frekar
hefðbundinn hátt með dauflegu Íll
catch you eftir John Scofield og síðan
kom Tell me a bedtime story eftir
Herbie Hancock þar sem undiraldan
var dálítið sterkari, en í þriðja laginu,
blús eftir Mike Brecker, Take a walk,
fór kvintettinn í gang og Jói keyrði í
fjórgangnum með NHØP fíling og á
stundum rauk úr sólistunum; Kjart-
an með víbrafónsánd á hljómborðinu
svo minnti á Milt Jackson í Bags
Grove, Jóel með hraðahlaup milli
blúshugleiðinganna og Oijen ekki
fjarri sterkhljóma stundum. Svo kom
eina frumsamda verk tónleikana,
ballaðan ljúfa eftir herra Ámundsson,
Áróra, sem Kjartan gaf klassískt yf-
irbragð með hljómborðsleik sínum.
Áður en hlé var tekið skelltu dreng-
irnir sér í djömpslagara a la Louis
Jordan. Sá nefndist Jig a jug og skrif-
aður af Joshua Redman. Það fór þó
ekki að hitna í kolunum fyrir alvöru
fyrr en eftir hlé að lokinni heldur lit-
lausri túlkun á Atlantis McCoy
Tyners, en lagið býður nú ekki uppá
mikil tilþrif. Bræðingsdjassinn er að-
all Jóa Ásmunds og í Joe Cool eftir
Rob Monsey var vel gefið í. Þá var
komið að Snakes eftir kollega Jóa,
Marcus Millers, og blómstaraði kvin-
tettinn sem aldrei fyrr. Þar var
bassaþumallinn á fullu og Jóel með
djassinn á hreinu yfir bræðingshryn-
inum. Sóló Jóhanns var perla og svo
var endað á stefi Markúsar sem var
með austur-evrópskum blæ. Það var
afturá móti allt eftir djassbókinni í
lagi Bob Bergs: Friday night at the
Cadilac Club og Johan var waken-
ískur í ýlfrandi sóló sínum, Jóel tryllti
svo sæmt hefði á JATP tónleikum,
Kjartan skipti aftur yfir í víbrafóns-
ándið og Erik Qvik sló velhugsaðan
trommusóló. Að lokum léku þeir fé-
lagar fallega útsetningu Eriks á
Naimu Coltranes sem Jóel blés í
anda meistarans, en þó með sínu lagi.
Þetta var vel heppnað kvöld þótt
ekki væri boðið uppá margt nýtt.
Þeir Jói og Erik eru samstíga í hryn-
inum og Jóel og Kjartan í hópi helstu
djasseinleikara okkar. Þetta er í
þriðja sinn sem Oijen leikur hér og þó
leikur hans beri með sér blæ frá
helsta djassgítarleikara Svía, Ulf
Wakenius og hann leiti víðar fanga,
eru sólóar hans mjög heilsteyptir.
Bræðingur og hefðardjass
Vernharður Linnet
DJASS
Múlinn í Þjóðleikhúskjallaranum
Jóel Pálsson saxófón, Johan Oijen gítar,
Kjartan Valdemarsson hljómborð, Jóhann
Ásmundsson bassa og Erik Qvick tromm-
ur. Miðvikudagskvöldið 22.3. 2006.
Bræðingssveit Jóa Ás og Erik Qvick
HJÁ Máli og menn-
ingu er komin út
barnabókin Rebbi
og Héra eftir belg-
ísku listamennina
Sylvia Vanden
Heede og Thé
Tjong-Khing. Jóna
Dóra Óskarsdóttir
þýddi.
Sögurnar um Rebba, Héru og vini
þeirra þykja með eindæmum
skemmtilegar og hugljúfar og hafa
notið gríðarlegra vinsælda um allan
heim á undanförnum árum. Fyrsta
bókin um Rebba og Héru segir frá
skemmtilegum vetri í skóginum og er
sérstaklega hugsuð fyrir börn sem
eru að byrja að lesa.
Bókin er 140 bls.
Verð: 2.490 kr.
Nýjar bækur
Fréttir í tölvupósti Fréttasíminn 904 1100
♦♦♦