Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ SAMBÍÓ AKUREYRISAMBÍÓ KEFLAVÍK Hagatorgi • S. 530 1919 www.haskolabio.is F R U M S Ý N I N G StærSta kvikmyndahúS landSinS Nýjasta snilldarverkið frá Wachowzki bræðrum þeim sömu og færðu okkur “Matrix” myndirnar. MEIRA EN HETJA. GOÐSÖGN. Ein magnaðasta kvikmyndaupplifun ársins. FRELSI AÐ EILÍFU ! Basic Instinct 2 kl. 5:40 - 8 og 10:20 b.i. 16 ára V for Vendetta kl. 5:20 - 8 og 10:45 b.i. 16 ára The Matador kl. 6 og 8 b.i. 16 ára The New World kl. 10 b.i. 12 ára The World´s Fastest Indian kl. 8 Syriana kl. 10:30 b.i. 16 ára Blóðbönd kl. 6 BASIC INSTINCT 2 kl. 8 - 10 B.i. 16 ára DATE MOVIE kl. 8 - 10:20 BASIC INSTINCT 2 kl. 8 - 10:15 B.i. 16 ára EIGHT BELOW kl. 5:45 - 8 V FOR VENDETTA kl. 10:15 B.i. 16 ára LASSIE kl. 6 FRELSI AÐ EILÍFU ! eee - VJV topp5.is eee - SV mbl eeee - S.K. - DV eeee - S.U.S. - XFM 91,9 eeeee - V.J.V. - TOPP5.IS eeee - KVIKMYNDIR.IS eeee - A.B. Blaðið eeee - S.U.S. - XFM 91,9 eeeee - V.J.V. - TOPP5.IS eeee - KVIKMYNDIR.IS eeee - A.B. Blaðið Ein magnaðasta kvikmyndaupplifun ársins. Allt áhugavert, hefst í huganum Biðin er á enda! Framhaldsmyndin sem allir hafa beðið spenntir eftir, er komin. Sjáið Sharon Stone í banastuði eins og hún var í fyrri myndinni. B.i. 16 ára. „Það er best að segja það bara hreint út; V for Vendetta er góð bíómynd. Vel gerð, spennandi og áhugaverð.“ Þ.Þ. Fréttablaðið „Það er best að segja það bara hreint út; V for Vendetta er góð bíómynd. Vel gerð, spennandi og áhugaverð.“ Þ.Þ. Fréttablaðið KVIKMYNDIN Eight Below er byggð á atburðum sem áttu sér stað á suðurpólnum árið 1957, þegar hópur vísindamanna þurfti að skilja átta sleðahunda eftir í óbyggðum, en hópurinn gat ekki vitjað þeirra fyrr en hálfu ári síð- ar. Leikstjóri myndarinnar er Frank Marshall, sem á að baki myndir á borð við Alive og Congo, en með helstu hlutverk fara Paul Walker (2 Fast 2 Furious, Into the Blue, Joyride), Jason Biggs (American Pie, Anything Else, Jersey Girl) og Bruce Greenwood (Capote, Thirteen Days, The Sweet Hereafter). Leikarinn Paul Walker ásamt sleðahundunum átta. . Frumsýning | Eight Below Sleðahundar í ógöngum ERLENDIR DÓMAR: Metacritic.com 64/100 Roger Ebert 75/100 Variety 70/100 Hollywood Reporter 80/100 The New York Times 50/100 (allt skv. Metacritic) UNDANFARNAR vikur hefur hálfgert stríð staðið yfir milli Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Hamrahlíð. Ástæðan er sú að annað kvöld mætast ræðulið skólanna í úr- slitum Morfís, mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi. Stríðið hófst með því að nemendur við MH „rændu“ Gunnari Hólm- steini Guðmundssyni, Inspector Scholae í MR. Gunnar segist hafa tekið atburðinum með stó- ískri ró. „Þetta var bara létt grín og ég ákvað að spila með,“ segir Gunnar, en farið var með hann upp í MH þar sem reynt var að láta hann skrifa undir hinar og þessar yfirlýsingar. MH- ingar létu ekki staðar numið því auk þess að nema Gunnar á brott, skrifuðu þeir „MH“ með hveiti á flötina fyrir framan MR, settu rauðar filmur í kastara sem lýsa skólann upp, hengdu upp fána MH á skólalóðinni og klæddu stytt- una af Pallas Aþenu í rauðan MH bol. Að sögn Gunnars fór þetta þó framhjá nemendum MR því Hannes Friðsteinsson, húsvörður skólans, fjarlægði allt saman áður en skóladagur hófst. Rændu Miðgarðsorminum Þrátt fyrir að aðgerðir MH-inga hafi farið framhjá flestum MR-ingum ákváðu þeir að grípa til sinna ráða. „Frá árinu 1992 hafa MH- ingar verið að prjóna risastóran orm sem er orðinn 70 metrar að lengd. Þetta er þeirra stolt og prýði og eitthvað sem þeir taka með á allar keppnir. Við stálum þess vegna orm- inum,“ segir Gunnar, en ormurinn sem nefnist Miðgarðsormurinn, er enn í vörslu MR-inga. „Við höfum líka verið að gagnrýna stéttaskipt- inguna í MH sem felst í sætaskipuninni. Við fórum þess vegna með risastóra keðju og lás, læstum Norðurkjallara og snerum öllum borð- unum við. Okkur finnst að allir eigi að sitja á sama stað og við sama borð,“ bætir Gunnar við. MR-ingar létu ekki staðar numið heldur fóru þeir upp í Hamrahlíð og úðuðu þar merki fatlaðra á bílastæðin fyrir utan skólann. Þegar hér var komið sögu þótti mönnum nóg að gert og ákveðið var að láta gott heita. Fulltrúar skólanna hittust því í gær og sömdu um vopnahlé. Fundurinn átti sér stað á Snorra- braut, en skólarnir hafa ákveðið að skipta Reykjavík í tvennt þannig að MR fær svæðið vestan Snorrabrautar og MH svæðið aust- anmegin. Að sögn Gunnars stendur vopna- hléið þó eingöngu yfir til klukkan 20.00 annað kvöld, en þá hefst úrslitaviðureignin í Há- skólabíói. Umræðuefnið er frelsi einstaklings- ins. Fólk | Margra vikna stríði MR og MH lýkur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Eins og sjá má úðuðu MR-ingar merki fatlaðra í bílastæðin við MH. Morgunblaðið/Sverrir Gunnar H. Guðmundsson, Inspector Scholae í MR, kemur til fundarins ásamt ræðuliði sínu í gær. Skipta Reykjavík á milli sín Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is MH-ingar klæddu styttu af Pallas Aþenu sem stendur við MR í MH-bol.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.