Morgunblaðið - 30.03.2006, Page 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
FLUGÞJÓNUSTAN á Keflavíkur-
flugvelli, dótturfélag FL Group,
misnotaði markaðsráðandi stöðu
sína við afgreiðslu farþegaflugvéla.
Er fyrirtækinu gert að greiða 80
milljóna króna stjórnvaldssekt til
ríkissjóðs. Þetta er niðurstaða Sam-
keppniseftirlitsins sem tilkynnt var
í gær.
Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri
Flugþjónustunnar, sagðist í samtali
við Morgunblaðið í gær ekki geta
tjáð sig um niðurstöðu Samkeppn-
iseftirlitsins, þar sem hann hefði
ekki verið búinn að kynna sér hana
til fulls. Málið yrði hins vegar skoð-
að með lögfræðingum fyrirtækisins.
Beinskeytt aðgerð
gegn Vallarvinum
Á árinu 2001 hóf félagið Vall-
arvinir samkeppni við Flugþjón-
ustuna. Segir í tilkynningu Sam-
keppniseftirlitsins að í kjölfar þess
hafi flugafgreiðslugjöld stórlega
lækkað á Keflavíkurflugvelli.
Þá segir í tilkynningunni að það
sé niðurstaða stofnunarinnar að
ekki hafi verið rekstrarlegar for-
sendur hjá Flugþjónustunni fyrir
verðtilboði sem félagið gerði flug-
félaginu LTU á árinu 2004. LTU
var þá stærsti viðskiptavinur Vall-
arvina.
Það er mat Samkeppniseftirlits-
ins að í tilboði Flugþjónustunnar til
LTU hafi falist beinskeytt og sér-
tæk aðgerð gegn Vallarvinum, sem
hafi verið til þess fallin að draga úr
umsvifum þess félags og þar með
samkeppni á mikilvægum markaði
sem áhrif hafi á stóran hluta ferða-
þjónustu í landinu.
Misnotaði markaðs-
ráðandi stöðu sína
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
Viðskipti | 2
BESTA leiðin til þess að vernda auð-
lindina sem felst í náttúrunni að
Fjallabaki, jafnframt því að gera
ferðamönnum svæðið aðgengilegt
væri að stofna þjóðgarð um Fjalla-
bak. Þetta er mat Karls Ingólfssonar,
rekstrarstjóra ferðaskrifstofunnar
Ultima Thule. Segir hann tilfinn-
anlega skorta að mótuð sé heildarsýn
fyrir umrætt svæði, en slíkt sé ekki
hægt fyrr en það sé orðið að einni
samhangandi skipulagseiningu.
Að mati Karls hefur sú uppbygg-
ing sem átt hafi sér stað á svæðinu
verið tilviljunum háð, en mikilvægt sé
að móta heildarsýn til þess að tryggja
að ferðafólki gefist raunverulega
kostur á að upplifa það sem svæðið
hefur upp á að bjóða, þ.e. að fólk kom-
ist að náttúrunni í því skyni að skoða
hana án þess að umferð og illa grund-
aðar framkvæmdir skemmi það sem
skoða eigi.
Bendir hann t.d. á að uppbygging
mannvirkja í Landmannalaugum,
ásamt bílum og tjaldstæði við laug-
arnar, sé orðin of áberandi og farin að
skerða upplifun þeirra ferðamanna
sem leggi leið sína á svæðið. Segir
hann æskilegt að mannvirkin verði
flutt norður fyrir Norðurbarm, sem
liggur í um 15 mínútna göngufæri frá
Landmannalaugum.
Viðhorfskönnun Önnu Dóru Sæ-
þórsdóttur, landfræðings, meðal
ferðamanna hérlendis bendir til að
þolmörkum mikilla náttúrusinna sé
náð á vinsælum og fjölmennum ferða-
mannastöðum á borð við Land-
mannalaugar. Þannig má nefna að
aðeins 3% ferðamanna sem leggja
leið sína í Landmannalaugar eru
miklir náttúrusinnar, 26% teljast
náttúrusinnar, en 47% þeirra eru al-
mennir ferðamenn og 24% þjón-
ustusinnar. Segir Anna Dóra ljóst að
eindregnir náttúrusinnar forðist í sí-
fellt auknum mæli vinsælustu ferða-
mannastaðina á hálendinu og leiti
fremur inn á fáfarnari svæði í því
skyni að geta notið ósnortinnar nátt-
úrunnar í einrúmi.
Náttúrusinnar sneiða hjá fjölsóttum ferðamannastöðum
Vilja þjóðgarð að Fjallabaki
Morgunblaðið/RAX
Mannvirkin við Landmannalaugar ásamt miklum fjölda bíla og tjaldstæði
eru, að mati Karls Ingólfssonar rekstrarstjóra ferðaskrifstofunnar Ultima
Thule, orðin of áberandi og í raun farin að skerða upplifun ferðamanna.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Lykilatriði að hægt sé | 12
HROSSIN á bænum Holti létu
veðrið lítið á sig fá þegar þau átu
fóðrið sitt við bakka Laxár á Ás-
um enda höfðu þau fengið úr
mannahöndum, öfugt við hrafninn
sem sveif fyrir ofan þau. Búast má
við því að hann hafi þurft að hafa
talsvert fyrir fæðuöfluninni því
leiðindatíð hefur verið að und-
anförnu á norðanverðu landinu.
Heimamenn eru orðnir langeygir
eftir betri tíð. Samkvæmt veð-
urspá fer rokinu að slota en áfram
verður kalt í veðri.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Hrossin á
Holti róleg
í hretinu
VÍSINDAMENN eiga við ímynd-
arvanda að stríða, ef marka má
niðurstöður rannsóknar sem gerð
var meðal íslenskra grunnskóla-
nema.
Rannsóknin var unnin af Krist-
jáni Katli Stefánssyni, meistara-
nema í kennslufræði raungreina
við Kennaraháskóla Íslands, og
var hún framkvæmd með spurn-
ingalistum sem lagðir voru fyrir
620 nemendur í 10. bekk, auk þess
sem tekin voru hópviðtöl við
nokkra unglingahópa. Sagt er frá
rannsókninni í RANNÍS-blaðinu,
sem fylgir Morgunblaðinu í dag.
Þar kemur fram að tæplega
90% þeirra sem svöruðu spurn-
ingalistanum sögðust sammála
því að vísindi og tækni væru mik-
ilvæg fyrir samfélagið, en þegar
spurt var hvort viðkomandi vildi
verða vísindamaður í framtíðinni
sögðust 80% stelpna og 70%
stráka ekki hafa hug á því.
Nemendur sem rætt var sér-
staklega við voru beðnir að lýsa
dæmigerðum vísindamanni, og
lýstu þeir undantekningalítið því
sama. Fullorðnum karlmanni í
hvítum sloppi, einkennilegum í út-
liti, sem vissi allt, væri utan við sig
og svolítið „nördalegur“. Er því
ljóst að nemendurnir höfðu nokk-
uð neikvæða mynd af vísinda-
mönnum.
Ímyndarvandi
vísindamanna
JENNIFER Con-
nelly mun leika
aðalhlutverkið í
kvikmyndinni
The Journey
Home sem Liv
Ullmann hyggst
gera eftir skáld-
sögu Ólafs Jó-
hanns Ólafssonar
Slóð fiðrildanna.
Undirbúningur að kvikmyndinni
hefur staðið yfir í þrjú ár en nú
þykir ljóst að með ráðningu Con-
nelly muni upptökur hefjast í lok
ágúst á Íslandi. Rúmur helmingur
myndarinnar verður tekinn upp
hér á landi.
Jennifer Connelly er með vinsælli
leikkonum af ungu kynslóðinni í
Hollywood og hlaut meðal annars
Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk
sitt í kvikmyndinni A Beautiful
Mind. | 55
Jennifer Connelly
á leið til landsins
Jennifer Connelly
ÞRIÐJA kynslóðin hefur tekið við
Axis húsgögnum ehf. Bræðurnir
Eyjólfur og Gunnar Eyjólfssynir
hafa keypt fyrirtækið af föður sín-
um, Eyjólfi Axelssyni. Hann tók við
fyrirtækinu af föður sínum, Axeli
Eyjólfssyni, fyrir rúmum þremur
áratugum.
Axel stofnaði fyrirtækið á Akra-
nesi fyrir 71 ári, eða árið 1935, og
hefur fyrirtækið verið í eigu fjöl-
skyldunnar síðan. „Við Gunnar höf-
um mikla trú á fyrirtækinu og hefð-
um ella ekki farið út í að kaupa
það,“ segir Eyjólfur yngri, sem er
nýr framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins. „Fyrirtækið byggist á sterk-
um grunni, hefur í raun aldrei stað-
ið betur og við tökum því við mjög
góðu búi.“ | Viðskipti 12
Kynslóðaskipti hjá
Axis húsgögnum