Morgunblaðið - 07.04.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 96. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Fá›u hrós
hjá fjölskyldunni!
Fjölhæfur
aðalsmaður
Halldór Ásgeirsson keppti á
þrennum vígstöðvum | Menning
Bílablað og Íþróttir í dag
B́ílar | Mikill uppgangur í klifurhjólamennsku Kröftugri dísilvél í Tucson
Íþróttir | Stjarnan Íslandsmeistari í blaki karla Skallagrímur í úrslit í
fyrsta skipti Vijay Singh byrjar best á Masters-golfmótinu
LIÐ Menntaskólans á Akureyri sigraði lið Versl-
unarskóla Íslands í úrslitaviðureigninni í Gettu
betur sem fram fór í gærkvöldi. MA hlaut 34 stig
gegn 22 stigum Verslunarskólans.
Þetta er í þriðja sinn sem MA fagnar sigri í
Gettu betur, en hin tvö skiptin voru árin 1991 og
1992. Lið Menntaskólans á Akureyri var að þessu
sinni skipað þeim Ásgeiri Berg Matthíassyni,
Tryggva Páli Tryggvasyni og Magna Þór Ósk-
arssyni. Þess má til gamans geta að Pálmi, bróðir
Magna, var í sigurliði MA árin 1991–92 ásamt
þeim Finni Friðrikssyni og Magnúsi Teitssyni.
Morgunblaðið/Eggert
MA fagnaði sigri í Gettu betur
VIÐBÚNAÐARSTIG vegna fugla-
flensunnar var hækkað hérlendis úr
stigi I í II samkvæmt auglýsingu
sem landbúnaðarráðuneytið sendi
frá sér í gær. Þetta var gert í fram-
haldi af því að staðfest var sl. mið-
vikudagskvöld að dauður svanur
sem fannst í höfninni í Cellardyke,
norður af Edinborg í Skotlandi á
dögunum, hafi verið með H5N1
fuglaflensuveiru, en það er í fyrsta
skipti sem veiran greinist á Bret-
landseyjum.
„Viðbúnaðinum er fyrst og fremst
beint að alifuglaeigendum sem eru
með fugla úti. Við beinum því til
þeirra að þeir taki fuglana inn og
haldi þeim innivið, auk þess sem eig-
endur skuli efla allar varnir kringum
alifuglahús þannig að villtir fuglar
komist ekki inn í húsin eða að hugs-
anlegt smit frá villtum fuglum geti
ekki borist inn í alifuglahús,“ segir
Halldór Runólfsson yfirdýralæknir
og bendir á að auglýsingin taki gildi
12. apríl nk. sem gefi mönnum ráð-
rúm til að kynna sér hvað í henni
felst og uppfylla þau skilyrði sem
henni fylgja.
Aðspurður segir Halldór alla stóru
alifuglaræktendur hérlendis vera
með fugla sína innivið nú þegar,
þannig að tilmælin beinist fyrst og
fremst að minni ræktendum. „Víða
um land er fólk með hænsnfugla,
endur og gæsir vappandi utandyra
og það eru þeir fuglar sem við höfum
áhyggjur af að komist í snertingu við
villta fugla,“ segir Halldór.
Meðal þess sem alifuglaeigendum
er skylt að gera, samkvæmt auglýs-
ingu landbúnaðarráðuneytisins, er
að tryggja að gerði og hús séu fugla-
held, tryggja að ekkert í umhverfi
húsanna laði að villta fugla, setja
skal hatta á allar loftræstitúður og
fuglanet fyrir allar loftræstitúður, op
og glugga á þeim húsum þar sem ali-
fuglar eru haldnir auk þess sem öll-
um óviðkomandi skal bannaður að-
gangur að húsinu með sérstökum
merkingum á hurðum þess. Allir þeir
sem sinna fuglum eiga að nota hlífð-
arfatnað og þvo og sótthreinsa hend-
ur fyrir og eftir umhirðu fuglanna.
Halldór bendir á að samkvæmt
auglýsingunni skal fólk tilkynna til
Landbúnaðarstofnunar eða héraðs-
dýralæknis finnist tveir eða fleiri
villtir dauðir fuglar á sama stað. „Er
það gert til þess að við getum metið
það hvort ástæða þykir til að taka
fuglana í sýnatöku og hvernig skuli
farga þeim,“ segir Halldór.
Varna á því að smit
berist í alifugla
Ísland komið á viðbúnaðarstig II vegna fuglaflensunnar
HALLDÓR Runólfsson yfir-
dýralæknir segir að svo
stöddu enga ástæðu til þess að
vara við veiði manna á villtum
fugli.
Hins vegar beinir hann þeim
tilmælum til veiðimanna að
þeir umgangist veiði sína með
viðeigandi varúðarráðstöf-
unum og noti t.d. hanska með-
an fuglarnir séu verkaðir.
Óhætt að
veiða fugla
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Washington. AP. | Handrit sem var
skrifað í Egyptalandi um 300 eftir
Krist gæti umbylt hugmyndum
manna um samband Júdasar og
Jesú. Handritið, sem gengur undir
nafninu Júdasar-guðspjallið, til-
greinir hvernig Júdas hlýðir fyr-
irmælum Jesú, en svíki hann ekki,
þegar hann vísar yfirvöldum á læri-
meistara sinn.
Ólíkt hinum fjórum guðspjöllum í
Biblíunni, snýr Júdasarguðspjallið
því hinum sviksama lærisveini í
hlýðinn fylgisvein Jesú. Júdas er því
samkvæmt handritinu sýndur sem
bjargvættur mannkynsins. Lyk-
ilsetningu textans er að finna í orð-
um Jesú þegar hann segir við Júdas
að hann „muni skara fram úr“ öllum
lærisveinunum ef hann hlýði honum
og segi til hans.
Fræðimenn fagna þessum nýja
fundi og minna á að guðspjöllin hafi
áður verið fleiri, auk þess sem fjöl-
breytileiki trúarinnar hafi verið tölu-
verður á tímum frumkristni.
Júdasarguðspjallið, sem er ritað á
papírus, er talið vera ófalsað og afrit
af eldra handriti. Það fannst í
Egyptalandi um 1970 og er nú í
fyrsta skiptið til sýnis hjá National
Geographic Society í Washington í
enskri þýðingu.
Var Júdas
bjargvætt-
ur Krists?
NÆR víst má nú telja að samkomu-
lag náist í kvöld á Bandaríkjaþingi um
málamiðlun í deilunum um breytingar
á innflytjendalöggjöf en þær hafa ver-
ið mjög harðar. Stjórnvöld í Mexíkó
fögnuðu í gær samkomulaginu og
sagði í yfirlýsingu þeirra að um væri
að ræða mikilvægt skref í þá átt að
koma á fót nýju fyrirkomulagi sem
myndi „liðka fyrir öruggum og skipu-
legum fólksflutningum milli Banda-
ríkjanna og Mexíkó jafnframt því sem
mannréttindi verða virt“.
Háværar kröfur hafa verið meðal
sumra repúblikana um að reka á brott
alla ólöglega innflytjendur sem talið
er að séu um 11,5 milljónir, langflestir
frá Mexíkó og fleiri ríkjum Rómönsku
Ameríku. Margir
repúblikanar og
þó einkum demó-
kratar eru hins
vegar á móti
harkalegum að-
gerðum gegn ólög-
legum innflytjend-
um og benda á að
þeir sinni mörgum
mikilvægum störf-
um sem aðrir vilji ekki. „Þeir vinna í
eldhúsunum í Las Vegas, hreinsa fitu-
pottana, leggja bílunum okkar,“ sagði
leiðtogi þingflokks demókrata, Harry
Reid frá Nevada, í umræðunum í gær.
Verði tillagan samþykkt munu
margir innflytjendur sem nú eru án
skilríkja geta geta dvalist áfram í
landinu en milljónir manna munu hins
vegar verða að yfirgefa Bandaríkin.
Málamiðlun um
innflytjendalög
Harry Reid
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is