Morgunblaðið - 07.04.2006, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðbúnaðarstig aukið
Viðbúnaðarstig vegna fuglaflens-
unnar var í gær hækkað hérlendis
úr stigi I í II. Þetta var gert í
framhaldi af því að staðfest var að
dauður svanur, sem fannst norður
af Edinborg í Skotlandi á dögunum,
hafi verið með H5N1 fuglaflensu-
veiru, en það er í fyrsta skipti sem
veiran greinist á Bretlandseyjum.
Eining um innflytjendur
Leiðtogar flokkanna í öldunga-
deild Bandaríkjaþings fundu í gær
málamiðlun í deilum sem staðið
hafa yfir um breytingar á lögum
um innflytjendur. Um 11–12 millj-
ónir ólöglegra innflytjenda munu
vera í landinu og vilja margir reka
þá á brott. Markmiðið með tillög-
unni er að gera sumum ólöglegu
innflytjendanna kleift að fá land-
vistarleyfi.
Álframleiðsla mun aukast
Framleiðsla á áli í heiminum
mun ef fram fer sem horfir aukast
hratt næstu 20 árin og verður kom-
in upp í 64 milljónir tonna árið
2025.
„Týndur hlekkur“ fundinn
Fundist hefur steingervingur
sem vísindamenn telja að sé hinn
svonefndi „týndi hlekkur“ í þróun-
arsögunni milli fiska og landdýra.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 30
Fréttaskýring 8 Viðhorf 32
Úr verinu 14 Minningar 38/43
Viðskipti 16 Hestar 44
Erlent 18/19 Myndasögur 48
Minn staður 20 Dagbók 48/51
Landið 21 Staður og stund 49
Höfuðborgin 22 Leikhús 52
Akureyri 22 Menning 53/57
Suðurnes 23 Bíó 54/57
Daglegt líf 24 Ljósvakamiðlar 58
Menning 28/29 Veður 59
Umræðan 32/37 Staksteinar 59
* * *
Kynningar - Kynningarblaði frá Jack
& Jones er dreift með blaðinu í dag á
Suður, Norður og Vesturlandi.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
www.expressferdir.is
Express Fer›ir, Grímsbæ,
Efstalandi 26, sími 5 900 100
Nánar á www.expressferdir.is
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
FÓTBOLTAVEISLA Í MANCHESTER
79.900 kr.
INNIFALI‹:
21.–24. APRÍL
Laugardaginn 22. apríl mætast
Chelsea og Liverpool í undanúrslitum í
ensku bikarkeppninni á Old Trafford í
Manchester. Hvort liðið kemst í
úrslitaleikinn í Cardiff?
Ekki missa af þessum hörkuleik!
Flug og flugvallaskattar,
rútur til og frá Manchester, íslensk
fararstjórn, 3 nætur á hóteli með
morgunverði og miði á leik Chelsea og
Liverpool. Miðað er við að tveir séu
saman í herbergi.
CHELSEA–
LIVERPOOL
FÓTBOLTAFERÐ TIL MANCHESTER
FÆREYINGAR horfa mjög til
reynslu Íslendinga af einkavæðingu
nú þegar fyrir dyrum stendur að
ráðast í að einkavæða ýmis ríkisfyr-
irtæki í Færeyjum. Þetta var meðal
þess sem fram kom á fundi Halldórs
Ásgrímssonar forsætisráðherra og
Jóhannesar Eidesgaard, lögmanns
Færeyja, í gær. Forsætisráðherra
er í opinberri heimsókn í Færeyjum
í boði þarlendra stjórnvalda.
Á fundi þeirra Halldórs og Eid-
esgaard kom fram að færeysk
stjórnvöld stefna að einkavæðingu á
sviði bankaþjónustu, símaþjónustu
og trygginga. Fyrsta verkefnið sé
þó væntanlega sala á um þriðjungs-
hlut í flugfélaginu Atlantic Airways.
Eidesgaard sagði að horft væri til
reynslu Íslendinga af einkavæðingu,
þar sem Færeyingar teldu að vel
hefði tekist til með einkavæðingu ís-
lenskra ríkisfyrirtækja á undan-
förnum árum.
Á fréttamannafundi sem haldinn
var að loknum fundi þeirra Halldórs
og Eidesgaard kom fram að þeir
væru báðir mjög ánægðir með fund
þeirra. Auk þess að ræða um einka-
væðingaráform Færeyinga ræddu
þeir meðal annars um sjávarútvegs-
mál, viðskipti landanna og EFTA,
sem Færeyingar hafa mikinn áhuga
á að auka samskipti við. Þá ræddu
þeir um menningarsamskipti þjóð-
anna og um efnahagsmál á Íslandi,
og þá umræðu sem verið hefur um
þau mál víða að undanförnu.
Halldór sagðist aldrei áður hafa
orðið var við eins mikinn áhuga á
Færeyjum heima á Íslandi og nú.
Það komi meðal annars fram í því
hvað viðskiptasendinefnd, sem nú
er stödd í Færeyjum, er fjölmenn,
hátt í 70 manns. Það sé líklega fjöl-
mennasta viðskiptasendinefnd sem
komið hafi frá Íslandi til Færeyja til
þessa.
Öflugri heimamarkaður
Halldór var spurður á blaða-
mannafundinum hvers vegna Ís-
lendingar hefðu áhuga á að auka
samskipti sín við Færeyjar umfram
það sem nú er. Svaraði Halldór því
til að hann teldi heimamarkaðinn
mikilvægastan fyrir Íslendinga.
„En ég tel að ef við getum styrkt
heimamarkað okkar auki það styrk
okkar í útlöndum,“ sagði Halldór.
„Það á einnig við um Færeyjar. Ef
Færeyingar geta styrkt heima-
markað sinn eflir það Færeyjar í út-
löndum. Heimamarkaðurinn á Ís-
landi er of lítill og því þurfum við
stærri markað. Og ef við getum
styrkt heimamarkaðinn með auk-
inni samvinnu við Færeyjar kemur
það sér vel bæði fyrir Ísland og
Færeyjar.“
Fram kom í máli Halldórs að þó
Íslendingar hefðu fjárfest mikið í
útlöndum væri þörf á auknum fjár-
festingum erlendra aðila á Íslandi.
Fjárfestingar Færeyinga á Íslandi
væru því kærkomnar.
„Við höfum engan áhuga á því
eingöngu að fjárfesta í útlöndum.
Efnahagslífið þarf á erlendum fjár-
festingum að halda. Það er því mik-
ilvægt fyrir okkur ef Færeyingar
auka fjárfestingar sínar á Íslandi,“
sagði hann.
Halldór var spurður um skrif
Danske Bank um íslenskt efnahags-
líf og íslensku bankana, þar sem
dregin var upp dökk mynd af stöð-
unni.
„Ég veit ekki til þess að fulltrúar
Danske Bank hafi komið til Ís-
lands,“ sagði Halldór. „Ef hægt er
að tjá sig um Ísland á þann veg sem
Danske Bank hefur gert án þess að
heimsækja landið, eru þeir sem
starfa hjá bankanum sérstaklega
vel gefnir. En ég hef mínar efa-
semdir.“
Halldór og fylgdarlið fóru til
Klakksvíkur að loknum blaða-
mannafundinum í gær en heimsókn
ráðherrans lýkur í dag.
Líta til reynslu Íslend-
inga af einkavæðingu
Morgunblaðið/Grétar J. Guðmundsson
Halldór Ásgrímsson og Jóhannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, á fundi með blaðamönnum í Þórshöfn í gær.
Eftir Grétar Júníus
Guðmundsson í Færeyjum
gretar@mbl.is
Halldór Ásgrímsson í opinberri heimsókn í Færeyjum
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
Phu Tién Nguyén í 16 ára fangelsi
fyrir manndráp í Kópavogi í októ-
ber 2004. Ákærði veittist þar að
öðrum manni inni í baðherbergi
íbúðar og stakk hann með hnífi með
þeim afleiðingum að hann lést
skömmu síðar af innvortis blæðing-
um í brjóstholi. Hann var einnig
sakfelldur fyrir að stinga annan
mann í lærið.
Auk þess var ákærði dæmdur til
að greiða eiginkonu og dóttur hins
látna samtals rúmar 10 milljónir
króna í bætur og manninum, sem
hann stakk í lærið, 400 þúsund
krónur. Þá var hann dæmdur til að
greiða sakarkostnað, samtals rúmar
2,3 milljónir króna.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar
að ákærði játaði að hafa veist að
hinum manninum en bar við að sá
hefði ráðist að sér með höggum í
andlitið inni á baðherberginu í kjöl-
far deilna þeirra um hvort hann
hefði ávarpað sig með réttum hætti
í samræmi við víetnamskan sið. Við
það hafi hann orðið hræddur og
gripið til hnífsins til að verja sig.
Hæstiréttur mat frásögn ákærða
af atburðarásinni ótrúverðuga,
einkum í ljósi framburðar vitna og
réttarmeinafræðings. Var ákærði
sakfelldur fyrir manndráp og taldi
dómurinn ekki að neinar refsilækk-
unarástæður væru fyrir hendi eða
að ástæða væri til að draga sakhæfi
hans í efa. Með dómi sínum stað-
festi Hæstiréttur fangelsisrefsingu
Héraðsdóms Reykjaness frá 9. nóv-
ember 2005 en lækkaði bætur um
rúmlega 2 milljónir króna.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Gunnlaugur Claessen, Garðar
Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir,
Hrafn Bragason og Markús Sig-
urbjörnsson. Verjandi ákærða var
Sigmundur Hannesson hrl. og
sækjandi Sigríður J. Friðjónsdóttir,
saksóknari hjá ríkissaksóknara.
16 ára fangelsi
SAMKOMULAG þess efnis að sveit-
arfélagið Árborg eignist land Miðj-
unnar ehf. í miðbæ Selfoss náðist á
dögunum en í samkomulaginu er
gert ráð fyrir því að efnt verði til
samkeppni á meðal arkitekta um
skipulag miðbæjarsvæðisins. Til-
laga um tvö háhýsi í miðbænum frá
því í haust hefur því verið lögð á
hilluna en vilji sveitarfélagsins er
að skipulagið taki yfir mun stærra
svæði en áður var gert ráð fyrir og
afmarkist frá Kirkjuvegi með Eyra-
vegi og austur að Tryggvagötu.
Einar Njálsson, bæjarstjóri í Ár-
borg, segir að tillagan um háhýsin
hafi verið lögð til hliðar þar sem
hún hafi aðeins gert ráð fyrir
skipulagningu lítils hluta af mið-
bæjarsvæðinu og hafi ekki passað
ein og sér sem deiliskipulag fyrir
það svæði sem nú á að skipuleggja.
„En ef sú hugmynd kæmi inn í
samkeppninni og það yrði prjónað í
kringum hana yrði hún skoðuð eins
og aðrar hugmyndir,“ segir Einar.
Eiga framkvæmdir að tefjast
óverulega við breytt hönnunarferli.
Tillaga um háhýsi
í miðbæ Selfoss
lögð til hliðar
STJÓRNENDUR gjörgæsludeilda
LSH sendu í gær frá sér yfirlýsingu
vegna frétta um meðferð sjúklinga
í öndunarvélum. „Í kvöldfréttum á
RÚV 5/4 og í Morgunblaðinu 6/4 er
haft eftir hjúkrunarfræðingi að
sjúklingum sé haldið sofandi í önd-
unarvélum á gjörgæsludeildum
LSH lengur en eðlilegt getur talist
vegna skorts á hjúkrunarfræð-
ingum.
Mikilvægt er að leiðrétta þann
misskilning sem þessi fullyrðing
veldur. Það er ástand sjúklings sem
ræður öllu um hvenær sjúklingur
er vakinn og öndunarvélarmeðferð
hætt. Þá þarf hjúkrunarfræðingur
að vera stöðugt hjá sjúklingi og
læknir að vera til taks en á báðum
gjörgæsludeildunum eru sér-
fræðilæknar og deildarlæknar á
vakt á staðnum allan sólarhringinn
alla daga ársins,“ segir í tilkynning-
unni.
„Óvenju mikið álag hefur verið á
starfsfólki gjörgæsludeildanna
tveggja að undanförnu vegna mik-
ils fjölda bráðveikra og slasaðra
sjúklinga en ekki er vitað til neinna
tilvika þar sem sjúklingi hefur farn-
ast verr af þeim sökum enda hafa
stjórnendur deildanna lagt sig fram
um að stýra álaginu að því marki
sem unnt er,“ segir jafnframt í til-
kynningunni. | 32
Sjúklingum hefur
ekki farnast verr
sökum álags