Morgunblaðið - 07.04.2006, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýjung!
Sykurskerta Kókómjólkin inniheldur
helmingi minni viðbættan sykur og fitu
en hefðbundin Kókómjólk og orkuinni-
haldið er fjórðungi lægra.
Yfir 80% af mjólkursykrinum hafa verið
klofin og hentar drykkurinn því flestum
þeim sem hafa mjólkursykursóþol.
Sykurskert Kókómjólk
er helmingi léttari!
FULLTRÚAR ófaglærðra starfs-
manna nokkurra hjúkrunar- og
dvalarheimila afhentu í gær Geir H.
Haarde, starfandi forsætisráðherra,
undirskriftalista þar sem stjórnvöld
eru hvött til að minnka launamun
ófaglærðra starfsmanna. Að sögn
Álfheiðar Bjarnadóttur, talsmanns
hópsins, skrifuðu á fimmta hundrað
manns á listann.
Hún sagði að Geir H. Haarde
ætlaði að koma listunum til fjár-
málaráðherra, þar sem listinn ætti
heima, og sagðist hún vera nokkuð
ánægð með þau svör og bætti því
við að nú gætu ráðherrar ekki leng-
ur hent málinu sín á milli. Álfheiður
bætti því við að stuðningsyfirlýs-
ingar hefðu borist frá faglærðu
fólki í heilbrigðisgeiranum og taldi
það vott um þá miklu samstöðu
starfsmanna sem myndast hefði í
þessari baráttu.
Aðspurð hvenær hún teldi að við-
bragða af hálfu stjórnvalda væri að
vænta sagðist Álfheiður vera von-
góð um að fá þau fyrir páska, ef
ekki þá myndi hennar fólk funda
um framhaldsaðgerðir strax eftir
páska.
Morgunblaðið/Eyþór
Geir H. Haarde tekur við undirskriftalistanum úr höndum Álfheiðar Bjarnadóttur.
Afhentu ráðherra á fimmta
hundrað undirskriftir
Á MILLI 60–70 ófaglærðir starfs-
menn sátu inni á kaffistofum Hjúkr-
unarheimilisins Eirar þegar Morg-
unblaðið leit við í gær, en þá hafði
setuverkfallið staðið í um 14
klukkustundir. Að sögn starfs-
manna hafði dagurinn gengið
stóráfallalaust fyrir sig en mikið
álag hefði verið á ættingjum vist-
manna sem komið hefðu til að-
stoðar en þrátt fyrir það hefðu þeir
sýnt baráttunni mikinn stuðning.
María Erla Ómarsdóttir, einn
ófaglærðra starfsmanna Eirar,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
starfsmenn hefðu veitt vistmönnum
litla þjónustu yfir daginn, aðeins
aðstoðað þá við að fara á salernið
og komast í matsalinn. Hún sagði
að starfsfólk væri orðið þreytt á
þessu ástandi og margir væru í
uppsagnarhugleiðingum. Aðspurð
hvert starfsmenn myndu leita eftir
nýjum störfum sagði hún að mögu-
lega kæmi til greina að sækja um á
hjúkrunarheimilum sveitarfé-
lagana eða leikskólum, þar sem
laun væru mun hærri.
Morgunblaðið/Eyþór
María Erla Ómarsdóttir var orðin
þreytt á ástandinu.
Starfsfólk orðið þreytt á
ástandinu og íhugar uppsagnir
SKRIFAÐ var undir samninga á
milli Ríkiskaupa og Vélsmiðju Orms
og Víglundar í Hafnarfirði í gærdag
um endurbætur á Grímseyjarferj-
unni en tilboð vélsmiðjunnar hljóðaði
upp á 1,3 milljónir evra, eða rúmar
115 milljónir króna. Tilboði litháísku
skipaviðgerðarstöðvarinnar JSC
Western Shiprepair var hins vegar
hafnað þrátt fyrir að vera lægst, eða
1,27 milljónir evra, um 113 milljónir
króna.
Guðmundur Víglundsson, einn eig-
enda vélsmiðjunnar, segir það vera
mikinn sigur fyrir innlendan málm-
iðnað að fá verkefnið hingað til lands,
það sé jafnframt hvatning og sýni að
íslensk fyrirtæki séu í stakk búin til
að taka að sér slík verkefni. „Það er
hægt að segja að verðið í málmiðn-
aðinum í dag sé of lágt enda sjáum
við hvað hefur gerst, s.s. fyrir norð-
an, og flestir slippir hafa verið í vand-
ræðum undanfarin ár,“ segir Guð-
mundur og bætir við að verkefnið
muni færa stöðugleika í reksturinn.
Nýja ferjan er smíðuð árið 1992 og
keypt frá Írlandi. Guðmundur býst
við að hún verði komin hingað til
lands 15. apríl nk. en áætlað er að
verkið taki sex mánuði. Miklar breyt-
ingar munu verða gerðar á henni, s.s.
í farþegarými en flutningsgetan
verður rúmlega 100 farþegar í sæt-
um – en er nú 92 farþegar. Mesti
munurinn er hins vegar sá að sigl-
ingatíminn á milli lands og Grímseyj-
ar mun styttast úr 3,5 klst. í 2,5 klst.
þar sem vélarafl nýju ferjunnar er
2.700 hestöfl í stað 805 í gamla Sæ-
fara.
Lægsta tilboðið ófullnægjandi
Tilboð Vélsmiðju Orms og Víg-
lundar var það næstlægsta í útboðinu
en lægsta tilboð átti litháísk skipa-
viðgerðastöð. Júlíus Ólafsson, for-
stjóri Ríkiskaupa, segir að litháíska
tilboðinu hafi ekki verið tekið þar
sem tilboðið reyndist ekki fullnægj-
andi. Eftir að farið var í skýringa-
viðræður við Litháana kom í ljós að
ekki var allt inni í tilboðinu sem þar
átti að vera og þrátt fyrir að hafa
fengið fresti til að skýra mál sín
reyndist ekki unnt að leysa það mál. Í
kjölfarið var því farið í viðræður við
hafnfirsku vélsmiðjuna þar sem
samningar náðust.
Sigur fyrir
málmiðnaðinn
Tilboði Vélsmiðju Orms og Víglundar í
endurbætur á Grímseyjarferjunni tekið
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
STEFNA Reykjavíkurborgar á
hendur olíufélögunum Skeljungi,
Keri og Olíuverslun Íslands, var
þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur
og kynnt á fundi borgarráðs í gær.
Reykjavíkurborg krefst bóta vegna
samráðs olíufélaganna við tilboðs-
gerð í viðskipti við borgina árið
1996 og nema kröfurnar alls tæp-
lega 158 milljónum króna auk drátt-
arvaxta. Reiknað er með að málið
verði flutt og dæmt með haustinu.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri telur að málið gæti hugs-
anlega orðið prófmál.
Legið hefur fyrir að borgin hygð-
ist leita réttar síns gagnvart olíufé-
lögunum allt frá því að efnisatriði úr
frummatsskýrslu Samkeppnisstofn-
unar um samráð félaganna urðu op-
inber sumarið 2003 og þegar nið-
urstaða stofnunarinnar lá fyrir.
Haustið 2004 fól borgarráð Vil-
hjálmi H. Vilhjálmssyni, hrl. og
fyrrverandi borgarlögmanni, að
meta hvort bótaréttur væri til stað-
ar. Steinunn Valdís segir niðurstöð-
una hafa orðið að sýna mætti með
afgerandi hætti fram á að Reykja-
víkurborg hefði orðið fyrir tjóni í
nokkrum útboðum og þá sérstak-
lega hjá Vélamiðstöð Reykjavíkur-
borgar og Strætó bs.
Borgin krafði félögin um bætur
síðastliðið haust og viðurkenndi Ker
í framhaldi af því brot á ákveðnum
þáttum. Hin félögin óskuðu aðeins
eftir samningaviðræðum við borg-
ina en þegar þær gengu ekki eftir
óskuðu olíufélögin eftir að setja af
stað vinnu sem Jón Þór Sturluson
hagfræðingur fór með fyrir þeirra
hönd. Sú vinna skilaði greinargerð í
janúar á þessu ári. Borgin féllst
ekki á niðurstöður hennar og fór
málið því fyrir dómstóla.
Aðalkrafan í málinu byggist á að
samráð olíufélaganna 1996 hafi
komið í veg fyrir samkeppni í útboði
og borgin orðið fyrir tjóni vegna
þess. Í útboði 2001 segir Vilhjálmur
að samráð hafi ekki verið til staðar í
útboði og samkeppni verið til stað-
ar. Forsenda bótakröfu Reykjavík-
urborgar er því sú að ef samráðið
1996 hefði ekki átt sér stað hefði
náðst sami afsláttur og í útboðinu
2001. Varakrafa byggist á sam-
komulagi olíufélaganna sjálfra um
að Skeljungur héldi viðskiptum sín-
um við borgina en greiddi hinum fé-
lögunum ákveðið hlutfall af hverjum
seldum lítra. Kröfuna segir Vil-
hjálmur því að byggjast á tölum
sem félögin hafi að hans viti verið
sammála um að skipta á milli sín en
hún nemur 78 milljónum króna auk
dráttarvaxta.
Steinunn Valdís sagði í gær brot-
ið blað með að borgin tæki frum-
kvæði og færi með málið fyrir dóm-
stóla.
Viss um að aðrir muni
fylgja í kjölfarið
„Við ætlum ekki að sitja þegjandi
hjá heldur sækja rétt okkar og ég
er alveg viss um að niðurstaða
þessa máls muni hafa mikið að
segja um það hvort aðrir fylgi í kjöl-
farið,“ sagði hún og sagði fleiri aðila
en borgina með ákveðna hluti í
skoðun. „Það má kannski segja að
um prófmál sé að ræða að einhverju
leyti og ef við vinnum er ég viss um
að fleiri muni fylgja á eftir.“
Vilhjálmur sagði sérstakt við mál
borgarinnar að nánast lægi fyrir að
samráð hefði átt sér stað og að um
afmörkuð viðskipti á ákveðnu tíma-
bili væri að ræða. „Það gerir þetta
mál auðveldara til meðferðar fyrir
dómstólum og til að fá í því dóm
sem yrði þá kannski fordæmisgef-
andi,“ sagði hann.
Stefna Reykjavíkurborgar á hendur
olíufélögum þingfest í Héraðsdómi
Borgarstjóri tel-
ur málið geta
orðið prófmál
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is