Morgunblaðið - 07.04.2006, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 11
FRÉTTIR
Álfakúlur
gefa þér óendanlega
valmöguleika í að setja
samann þinn
eigin skartgrip
Hálsmen
Armbönd
Eyrnalokkar
Ófeigur gullsmiðja - Skólavörðustíg 5 - 551 1161 - www.ofeigur .is
FYRSTI flokksráðs-, formanna- og
frambjóðendafundur Sjálfstæð-
isflokksins, sem haldinn verður ut-
an höfuðborgarsvæðisins, verður
helgaður málefnum eldri borgara
og málefnum fjölskyldunnar. Um
þau verður fjallað af ýmsum for-
ystumönnum flokksins í sveit-
arstjórnum frá mörgum ólíkum
hliðum. Fundurinn verður í
Brekkuskóla á Akureyri og hefst
hann í dag klukkan 16. Fundinum
lýkur á morgun.
Á fundinn koma allir þingmenn
og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins,
flestir frambjóðendur hans til sveit-
arstjórna í vor og fjölmargir trún-
aðarmenn hans aðrir, alls á þriðja
hundrað manns.
Fundurinn hefst með ræðu for-
manns Sjálfstæðisflokksins, Geirs
H. Haarde utanríkisráðherra. Í dag
verður einnig umræða um drög að
stjórnmálaályktun.
Málefnastarf fer fram á morgun,
laugardag.
Sjálfstæðis-
menn þinga
á Akureyri
KOSIÐ verður á morgun um sam-
einingu tveggja sveitarfélaga á
Norðausturlandi, Þórshafn-
arhrepps og Skeggjastaðarhrepps.
Verði sameiningin samþykkt verða
sveitarfélög á Íslandi 79 talsins þeg-
ar gengið verður til sveitarstjórn-
arkosninga hinn 27. maí nk.
Sveitarstjórnum hreppanna
tveggja þótti rétt, í framhaldi af
sameiningarkosningum í fyrra-
haust, þar sem íbúar Skeggjastað-
arhrepps og Þórshafnarhrepps
samþykktu sameiningu við ná-
grannasveitarfélögin, að skoða
hvort hugsanlega væri grundvöllur
fyrir sameiningu þessara tveggja
sveitarfélaga. Alls bjuggu 542 ein-
staklingar í hreppunum tveimur 1.
desember síðastliðinn.
Kosið um samein-
ingu á Norðaust-
urlandi á morgun
„ÉG er feikilega ánægður með
listann. Ég held að hann sé mjög sig-
urstranglegur vegna þess að hann er
breiður eins og borgarsamfélagið,“
segir Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóraefni Samfylkingarinnar, um
framboðslista flokksins fyrir kom-
andi borgarstjórnarkosningar.
10 efstu sætin óbreytt
Listinn var samþykktur á fundi
fulltrúaráðs flokksins í Iðusölum í
Reykjavík í gærkvöldi og eru tíu
efstu sætin óbreytt frá úrslitum
prófkjörs hans. Þrjátíu manns skipa
listann; fimmtán konur og fimmtán
karlar.
„Ég held að það þurfi fjölbreyttan
hóp sem er tilbúinn að rökræða sig
niður á skynsamlega niðurstöðu í
hverju máli til þess að stýra borg
þannig að vel fari og Samfylkingin er
það. Ég held við förum allan skalann,
í aldri, kynjum og hverfum og síðast
en ekki síst höfum við mismunandi
bakgrunn úr atvinnulífinu og lífinu
sjálfu.“
1. Dagur B. Eggertsson
borgarfulltrúi
2. Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri
3. Stefán Jón Hafstein
borgarfulltrúi
4. Björk Vilhelmsdóttir
borgarfulltrúi
5. Oddný Sturludóttir
rithöfundur og píanókennari
6. Sigrún Elsa Smáradóttir
markaðsstjóri og
varaborgarfulltrúi
7. Dofri Hermannsson
meistaranemi í hagvísindum
8. Stefán Jóhann Stefánsson
hagfræðingur
9. Stefán Benediktsson arkitekt
10. Guðrún Erla Geirsdóttir
kennari og myndhöfundur
11. Kjartan Valgarðsson
markaðsstjóri
12. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
verslunareigandi og hönnuður
13. Felix Bergson leikari
14. Falasteen Abu Libdeh
skrifstofustúlka
15. Þorbjörn Guðmundsson
framkvæmdastjóri Samiðnar
16. Heiða Björg Pálmadóttir
lögfræðingur
17. Gunnar H. Gunnarsson
deildarverkfræðingur
18. Andrés Jónsson
formaður ungra jafnaðarmanna
19. Ragnhildur Sigríður
Eggertsdóttir stuðningsfulltrúi
og háskólanemi
20. Ingimundur Sveinn Pétursson
formaður Félags einstæðra
foreldra
21. Guðrún B. le Sage
de Fontenay háskólanemi
22. Jóhanna S. Eyjólfsdóttir
skrifstofustjóri
23. Tryggvi Þórhallsson
rafverktaki
24. Margrét Baldursdóttir
tölvunarfræðingur
25. Einar Kárason rithöfundur
26. Hulda Ólafsdóttir
framkvæmdastjóri
27. Halldór Gunnarsson
fyrrv. form. Þroskahjálpar
28. Adda Bára Sigfúsdóttir
fyrrverandi borgarfulltrúi
29. Björgvin E. Guðmundsson
fyrrverandi borgarfulltrúi
30. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
formaður Samfylkingarinnar
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjavík samþykktur
„Fjöl-
breyttur
hópur með
mismun-
andi bak-
grunn“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framboðslisti Samfylkingarinnar
STANGVEIÐI
EINS og fram hefur komið gerði
Stangaveiðifélag Reykjavíkur neta-
bændum á veiðisvæði Hvítár/Ölfusár
tilboð um leigu gegn upptöku neta
næstu þrjú árin. Tilboðið miðaðist
við að a.m.k. tækist að leigja veiði-
rétt sem samsvaraði að lágmarki
50% netaveiðinnar miðað við með-
altal síðustu 10 ára. Samkvæmt upp-
lýsingum SVFR hefur þorri veiði-
réttareigenda hafnað tilboðinu og er
því ljóst að meginmarkmið þess mun
ekki nást.
Stjórn SVFR fagnar því hins veg-
ar að einstakir netabændur hafi sýnt
áhuga á að semja við félagið um upp-
töku neta í tilraunaskyni. Telur
stjórnin að hvert net sem náist upp
sé mikilvægur áfangi og hyggst
ganga til viðræðna við þá veiðirétt-
areigendur. Takist samningar er
fyrirhugað að reyna stangveiðar á
viðkomandi veiðisvæðum.
Hefur SVFR jafnframt skorað á
netabændur á vatnasvæðinu að
leggja sitt af mörkum til að tryggja
vöxt og viðgang stórlaxastofnsins á
svæðinu og er þess farið á leit að
þeir seinki byrjun netaveiðitímabils-
ins um tvær vikur í sumar, eða til 28.
júní, til að auka líkur á að hlutfall
tveggja ára laxins í hrygningunni
aukist. Samkvæmt vefmiðli SVFR
segir stjórnin að stangaveiðimenn
hafi svarað kalli Veiðimálastofnunar
um að hlífa stórlaxinum og nú sé
kominn tími til að netabændur axli
einnig ábyrgð í því máli.
Samið að nýju við
netabændur í Borgarfirði
Fyrir nokkru var greint frá því að
samningaviðræður milli netabænda
og bergvatnsbænda í Borgarfirði
væru komnar í hnút og var jafnvel
óttast að bændur hæfu netaveiði aft-
ur.
Samkvæmt heimildum vefmiðils-
ins votnogveidi.is mun hafa náðst
samkomulag um áframhaldandi upp-
leigu netanna í Hvítá í Borgarfirði.
Þegar Sporður ehf., leigutaki
Þverár-Kjarrár, samdi við neta-
bændur fóru hjólin að snúast. Neta-
bændur gerðu öðrum bergvatns-
bændum sambærilegt tilboð, sem
var fyrst hafnað, en eftir að leigutak-
ar ánna komu að málinu í ein-
hverjum tilvikum mun deilan hafa
verið leyst.
Um 60 urriðar
úr Minnivallalæk
„Um hádegi í gær, miðvikudag,
höfðu veiðst um 60 urriðar í Minni-
vallalæk. Það hefur aldrei veiðst
svona mikið í byrjun, þetta er rosa-
lega gott og ekki síst við þessar erf-
iðu aðstæður,“ sagði Þröstur Elliða-
son í gær.
„Flestir fiskanna veiddust í Stöðv-
arhyl og á Húsabreiðu en einhver
reytingur var neðar í ánni. Flestir
tóku stórar straumflugur á sökk-
endum.“
55 af þessum urriðum var sleppt
aftur og eins og kunnugt er eru urr-
iðarnir í Minnivallalæk stórir. Sá
stærsti var ellefu pund, annar tíu,
tveir níu og sex urriðar voru átta
pund. „Þetta eru eins og góðar tölur
í laxveiði,“ sagði Þröstur.
Ágúst K. Ágústsson á skrifstofu
Lax-ár sagði 20 til 40 fiska hafa verið
að veiðast á dag í Varmá. Fiskurinn
er orðinn nokkuð dreifður, er ekki að
veiðast bara í Stöðvarhyl eins og oft
á þessum tíma. Nokkuð er að veiðast
við Stífluna, sem er miðsvæðis, og
þar sem Grímslækur rennur út í
Varmá.
SVFR skorar á netabænd-
ur að seinka veiðum í sumar
Ólafur Ragnar Garðarsson með 10 punda hæng í Minnivallalæk.
veidar@mbl.is
1"
23(
!**(43"-+"
+("23(
)5
(43"-+"
1"
2(
".
2"#55+"
*#664
%-.
2"#55+"